Javascript must be enabled to continue!
Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
View through CrossRef
Árið 2016 tók Ísland á móti hópi sýrlenskra kvótaflóttamanna í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Í þessari eigindlegu rannsókn er upplifun hluta þessa hóps, kennara hans og foreldra, af grunnskólanámi á Íslandi könnuð. Til gagnaöflunar voru notuð hálfstöðluð viðtöl. Þátttakendur voru alls sautján; foreldrar og börn úr þremur fjölskyldum og fimm kennarar, og voru tekin viðtöl einu sinni, vorið 2018. Einstaklingsviðtöl voru tekin við kennara og foreldra en hópviðtöl tekin við nemendur. Þemagreining var notuð við að greina gögnin. Niðurstöður eru kynntar undir þremur meginþemum: (1) Að skilja ný viðmið um nám og kennslu, (2) Hlutverk samskipta og ábyrgð, og (3) Er Ísland hluti af framtíðinni? Þemun þrjú eiga sér sameiginlegan þráð sem ræddur verður sérstaklega en það er menningarmunur sem birtist þó með ólíkum hætti í máli viðmælenda. Niðurstöður benda til þess að menningarleg gildi hafi haft áhrif á menntunarferlið sem varð til þess að samskipti heimilis og skóla urðu ómarkviss. Það leiddi meðal annars til þess að foreldrar báru ekki fullt traust til íslenskra skóla barna sinna. Kennara virtist skorta viðeigandi stuðning og þjálfun til að takast á við aðstæður þessa tiltekna nemendahóps. Þrátt fyrir þetta sögðust nemendur sjálfir vera ánægðir með skólann sinn og eiga í góðu sambandi við kennara sína
The National and University Library of Iceland
Title: Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
Description:
Árið 2016 tók Ísland á móti hópi sýrlenskra kvótaflóttamanna í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna.
Í þessari eigindlegu rannsókn er upplifun hluta þessa hóps, kennara hans og foreldra, af grunnskólanámi á Íslandi könnuð.
Til gagnaöflunar voru notuð hálfstöðluð viðtöl.
Þátttakendur voru alls sautján; foreldrar og börn úr þremur fjölskyldum og fimm kennarar, og voru tekin viðtöl einu sinni, vorið 2018.
Einstaklingsviðtöl voru tekin við kennara og foreldra en hópviðtöl tekin við nemendur.
Þemagreining var notuð við að greina gögnin.
Niðurstöður eru kynntar undir þremur meginþemum: (1) Að skilja ný viðmið um nám og kennslu, (2) Hlutverk samskipta og ábyrgð, og (3) Er Ísland hluti af framtíðinni? Þemun þrjú eiga sér sameiginlegan þráð sem ræddur verður sérstaklega en það er menningarmunur sem birtist þó með ólíkum hætti í máli viðmælenda.
Niðurstöður benda til þess að menningarleg gildi hafi haft áhrif á menntunarferlið sem varð til þess að samskipti heimilis og skóla urðu ómarkviss.
Það leiddi meðal annars til þess að foreldrar báru ekki fullt traust til íslenskra skóla barna sinna.
Kennara virtist skorta viðeigandi stuðning og þjálfun til að takast á við aðstæður þessa tiltekna nemendahóps.
Þrátt fyrir þetta sögðust nemendur sjálfir vera ánægðir með skólann sinn og eiga í góðu sambandi við kennara sína.
Related Results
Menningarmiðaðar kennsluaðferðir
Menningarmiðaðar kennsluaðferðir
Aukinn fjölbreytileiki í íslenskum grunnskólum skapar mörg tækifæri fyrir kennara til þess að nýta menningu, reynslu og tungumál nemenda í kennslu. Menningarmiðaðar kennsluaðferðir...
Sameiginlegir leikheimar barna og leikskólakennar
Sameiginlegir leikheimar barna og leikskólakennar
Í þessari grein er fjallað um rannsókn sem hafði að markmiði að varpa ljósi á sameiginlega leikheima barna og leikskólakennara í fjórum leikskólum á Íslandi. Leikur hefur lengi ver...
Sköpunarsmiðjur í þremur grunnskólum: Þróunarverkefni á góðri siglingu
Sköpunarsmiðjur í þremur grunnskólum: Þróunarverkefni á góðri siglingu
Þrír grunnskólar austast og vestast í Reykjavík; Ingunnarskóli, Selásskóli og Vesturbæjarskóli, standa að þróunarstarfi um innleiðingu á sköpunarsmiðjum (e. makerspaces). Þar er ka...
Traust og samvinna um skapandi skólastarf í opnu og sveigjanlegu námsumhverfi
Traust og samvinna um skapandi skólastarf í opnu og sveigjanlegu námsumhverfi
Greinin sem hér fer á eftir og rannsóknin sem þar er lýst beinast að viðburðaríkum starfsferli og um margt einstæðri reynslu Margrétar Einarsdóttur grunnskólakennara og skólastjóra...
Sköpunar- og tæknismiðjur í þremur grunnskólum: Framkvæmd og kennslufræði fyrstu skrefin
Sköpunar- og tæknismiðjur í þremur grunnskólum: Framkvæmd og kennslufræði fyrstu skrefin
Samtíminn er fullur af móthverfum sem fela í sér ógnir og tækifæri, álitamál og áskoranir. Nútímasamfélag kallar á skólastarf, þar sem nemendur eru virkir og skapandi þátttakendur,...
Alþjóðlegur bakgrunnur, skólasókn og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum 2001-2021
Alþjóðlegur bakgrunnur, skólasókn og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum 2001-2021
Jón Torfi Jónasson hefur á ferli sínum dregið fram hið lítt öfundsverða hlutskipti íslenskra framhaldskólanema sem birtist í miklu brotthvarfi þeirra frá námi. Í þessari rannsókn e...
Foreldraútilokun, reynsla útsettra foreldra í Tyrklandi
Foreldraútilokun, reynsla útsettra foreldra í Tyrklandi
Markmið rannsóknarinnar var að kanna reynslu útsettra foreldra í Tyrklandi af þeim útilokandi aðferðum sem notaðar voru til að útiloka þá frá barni sínu. Rannsóknin kannaði einnig ...
Krefjandi lífsreynsla og flókin sorg: Að lifa af sjálfsvíg dóttur eða sonar
Krefjandi lífsreynsla og flókin sorg: Að lifa af sjálfsvíg dóttur eða sonar
Tilgangur
Sjálfsvíg eru alþjóðlegt heilbrigðisvandamál og fjórða algengasta dánarorsökin
í aldurshópnum 15–29 ára. Reynsla foreldra af því að missa son
eða dóttur í sjálfsvígi hefu...

