Javascript must be enabled to continue!
Traust og samvinna um skapandi skólastarf í opnu og sveigjanlegu námsumhverfi
View through CrossRef
Greinin sem hér fer á eftir og rannsóknin sem þar er lýst beinast að viðburðaríkum starfsferli og um margt einstæðri reynslu Margrétar Einarsdóttur grunnskólakennara og skólastjóra. Til grundvallar liggja rannsóknarviðtöl við Margréti ásamt fyrri athugunum höfundar á húsakynnum skóla og innleiðingu nýrra kennsluhátta tengdum nýsköpun og tækni í samvinnu við aðra rannsakendur. Rannsóknin varpar ljósi á samspil stjórnunar, kennslu og húsakynna eða annars námsumhverfis á löngum starfsferli við nokkra íslenska grunnskóla. Leitast er við að draga fram hvernig nýstárleg og opin húsakynni og stundum tækni studdu við eða ýttu undir samstarf kennara, teymiskennslu, samvinnu nemenda og verkefnamiðað nám. Greint er frá lærdómsríkri samvinnu á Dalvík, námsdvöl í Skotlandi og nánum kynnum af söguaðferð, samstarfi kennara í ævintýralegu kennsluumhverfi Korpúlfsstaða og hugmyndavinnu um nýjar skólabyggingar í Reykjavík austanverðri; Ingunnarskóla og Korpuskóla. Lýst er opnum svæðum og framsæknu starfi í Korpuskóla eftir að hann var risinn og greint frá viðbyggingu Vesturbæjarskóla og þróunarstarfi þar um teymisvinnu og innleiðingu á nýsköpun og stafrænni tækni. Leitast er við að draga fram gildi opinna og sveigjanlegra húsakynna þegar efla á samvinnu um nám og kennslu og ýta undir atbeina nemenda í eigin námi. Niðurstöður benda til að opin og nýstárleg húsakynni, ásamt hugmyndum um nám og kennslu sem þar liggja til grundvallar, geti orðið vettvangur fyrir skapandi skólastarf þar sem áhugi og samvinna kennara, ásamt traustri leiðsögn og hæfilegum stuðningi stjórnenda, leiða til fjölbreyttra kennsluhátta og sveigjanlegs náms. Rannsóknarniðurstöður endurspegla þá kennisetningu að til þess að opin og nýstárleg húsakynni kalli fram samráð og teymiskennslu, samvinnu og verkefnamiðað nám lagað að áhuga og þörfum nemenda, þurfi menning og skipulag skóla að haldast í hendur við hönnun bygginga og mótun námsumhverfis.
Title: Traust og samvinna um skapandi skólastarf í opnu og sveigjanlegu námsumhverfi
Description:
Greinin sem hér fer á eftir og rannsóknin sem þar er lýst beinast að viðburðaríkum starfsferli og um margt einstæðri reynslu Margrétar Einarsdóttur grunnskólakennara og skólastjóra.
Til grundvallar liggja rannsóknarviðtöl við Margréti ásamt fyrri athugunum höfundar á húsakynnum skóla og innleiðingu nýrra kennsluhátta tengdum nýsköpun og tækni í samvinnu við aðra rannsakendur.
Rannsóknin varpar ljósi á samspil stjórnunar, kennslu og húsakynna eða annars námsumhverfis á löngum starfsferli við nokkra íslenska grunnskóla.
Leitast er við að draga fram hvernig nýstárleg og opin húsakynni og stundum tækni studdu við eða ýttu undir samstarf kennara, teymiskennslu, samvinnu nemenda og verkefnamiðað nám.
Greint er frá lærdómsríkri samvinnu á Dalvík, námsdvöl í Skotlandi og nánum kynnum af söguaðferð, samstarfi kennara í ævintýralegu kennsluumhverfi Korpúlfsstaða og hugmyndavinnu um nýjar skólabyggingar í Reykjavík austanverðri; Ingunnarskóla og Korpuskóla.
Lýst er opnum svæðum og framsæknu starfi í Korpuskóla eftir að hann var risinn og greint frá viðbyggingu Vesturbæjarskóla og þróunarstarfi þar um teymisvinnu og innleiðingu á nýsköpun og stafrænni tækni.
Leitast er við að draga fram gildi opinna og sveigjanlegra húsakynna þegar efla á samvinnu um nám og kennslu og ýta undir atbeina nemenda í eigin námi.
Niðurstöður benda til að opin og nýstárleg húsakynni, ásamt hugmyndum um nám og kennslu sem þar liggja til grundvallar, geti orðið vettvangur fyrir skapandi skólastarf þar sem áhugi og samvinna kennara, ásamt traustri leiðsögn og hæfilegum stuðningi stjórnenda, leiða til fjölbreyttra kennsluhátta og sveigjanlegs náms.
Rannsóknarniðurstöður endurspegla þá kennisetningu að til þess að opin og nýstárleg húsakynni kalli fram samráð og teymiskennslu, samvinnu og verkefnamiðað nám lagað að áhuga og þörfum nemenda, þurfi menning og skipulag skóla að haldast í hendur við hönnun bygginga og mótun námsumhverfis.
Related Results
Sköpunarsmiðjur í þremur grunnskólum: Þróunarverkefni á góðri siglingu
Sköpunarsmiðjur í þremur grunnskólum: Þróunarverkefni á góðri siglingu
Þrír grunnskólar austast og vestast í Reykjavík; Ingunnarskóli, Selásskóli og Vesturbæjarskóli, standa að þróunarstarfi um innleiðingu á sköpunarsmiðjum (e. makerspaces). Þar er ka...
Sköpunar- og tæknismiðjur í þremur grunnskólum: Framkvæmd og kennslufræði fyrstu skrefin
Sköpunar- og tæknismiðjur í þremur grunnskólum: Framkvæmd og kennslufræði fyrstu skrefin
Samtíminn er fullur af móthverfum sem fela í sér ógnir og tækifæri, álitamál og áskoranir. Nútímasamfélag kallar á skólastarf, þar sem nemendur eru virkir og skapandi þátttakendur,...
„Þá má ekki missa kúlið“ Tilfinningar og tilfinningavinna grunnskólakennara
„Þá má ekki missa kúlið“ Tilfinningar og tilfinningavinna grunnskólakennara
Kulnun í kennslu hefur talsvert verið í umræðunni undanfarin misseri og er yfirleitt rakin til aukins álags í störfum kennara. Á vettvangi stjórnmála og í allri umfjöllun um skólam...
Draumaskólinn
Draumaskólinn
Virk þátttaka barna í samfélagi er ein leið til farsældar þeirra og því er það helsta verkefni menntakerfisins að tryggja öllum börnum hlutdeild í samfélagi jafnaldra. Greinin fjal...
Upplifun barna af leikskóladvöl „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf“
Upplifun barna af leikskóladvöl „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf“
Klukkan mótar starfshætti í leikskólum og stýrir tíma barna í daglegu starfi. Áhrif tímans á leikskólastarf og skipulag þess eru töluverð og er upplifun barna á tíma ekki sú sama o...
Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
Árið 2016 tók Ísland á móti hópi sýrlenskra kvótaflóttamanna í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Í þessari eigindlegu rannsókn er upplifun hluta þessa hóps, kenn...
Menningarmiðaðar kennsluaðferðir
Menningarmiðaðar kennsluaðferðir
Aukinn fjölbreytileiki í íslenskum grunnskólum skapar mörg tækifæri fyrir kennara til þess að nýta menningu, reynslu og tungumál nemenda í kennslu. Menningarmiðaðar kennsluaðferðir...
Ferðir til Azoreyja árin 1989 til 1994 (Geodetic research in the Azores 1989–1994)
Ferðir til Azoreyja árin 1989 til 1994 (Geodetic research in the Azores 1989–1994)
Í upphafi níunda áratugar síðustu aldar voru sett á laggir samtök eldfjallastöðva um víða veröld. Þessi samtök nefndust World Organization of Volcano Observatories og voru skammstö...

