Javascript must be enabled to continue!
„Þá má ekki missa kúlið“ Tilfinningar og tilfinningavinna grunnskólakennara
View through CrossRef
Kulnun í kennslu hefur talsvert verið í umræðunni undanfarin misseri og er yfirleitt rakin til aukins álags í störfum kennara. Á vettvangi stjórnmála og í allri umfjöllun um skólamál er mikil áhersla lögð á árangursríkt skólastarf. Árangurinn er metinn með samræmdum mælingum og skimunum en um leið er farið fram á vissan sveigjanleika þar sem öllum nemendum skal mætt á einstaklingsgrundvelli. Þegar uppi er grunur um að árangur hafi ekki náðst eða að ákveðnum nemendahópum líði illa í skólanum verður almannarómur hávær þar sem skuldinni er skellt á skólakerfið og kennara með óvæginni gagnrýni. Almannarómur hefur skipað kennurum í sérstaka samfélagsstöðu og þegar sú staða er skoðuð í samhengi við heilsu þeirra vakna spurningar um líðan þeirra í vinnunni og hvernig þeir takast á við tilfinningar sínar í kennslu margbreytilegra nemendahópa. Í þessari grein eru skoðaðar tilfinningar og tilfinningavinna (e. emotional labour) kennara og bent á hvaða þættir stjórna þeim. Gerð er grein fyrir niðurstöðum eigindlegrar rannsóknar þar sem viðtöl voru tekin við 14 grunnskólakennara sem höfðu reynslu af kennslu í margbreytilegum nemendahópum. Í greininni verða niðurstöður settar í samhengi við kenningar Söru Ahmed um svokallað tilfinningahagkerfi (e. affective economies) og Arlie Hochschild um tilfinningavinnu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að tilfinningar kennara séu fjölbreyttar, síbreytilegar og sveif list í samræmi við álagspunkta skólaársins. Kennarastarfinu virðast fylgja tilfinningar á borð við ástríðu, umhyggju, skömm og sektarkennd. Kennarar þurfa meðal annars að stjórna tilfinningum sínum í samskiptum við stjórnendur, nemendur og foreldra til að skapa traust og jákvætt andrúmsloft til náms um leið og þeir þurfa oft að sætta ólík sjónarmið og skoðanir allra hagsmunaaðila skólastarfsins. Mikilvægt er að skoða tilfinningar og tilfinningavinnu í skólastarfi svo mögulegt sé að draga úr tilfinningavinnu kennara og skapa þannig betra andrúmsloft og vinnuumhverfi öllu skólastarfi í hag.
The National and University Library of Iceland
Title: „Þá má ekki missa kúlið“ Tilfinningar og tilfinningavinna grunnskólakennara
Description:
Kulnun í kennslu hefur talsvert verið í umræðunni undanfarin misseri og er yfirleitt rakin til aukins álags í störfum kennara.
Á vettvangi stjórnmála og í allri umfjöllun um skólamál er mikil áhersla lögð á árangursríkt skólastarf.
Árangurinn er metinn með samræmdum mælingum og skimunum en um leið er farið fram á vissan sveigjanleika þar sem öllum nemendum skal mætt á einstaklingsgrundvelli.
Þegar uppi er grunur um að árangur hafi ekki náðst eða að ákveðnum nemendahópum líði illa í skólanum verður almannarómur hávær þar sem skuldinni er skellt á skólakerfið og kennara með óvæginni gagnrýni.
Almannarómur hefur skipað kennurum í sérstaka samfélagsstöðu og þegar sú staða er skoðuð í samhengi við heilsu þeirra vakna spurningar um líðan þeirra í vinnunni og hvernig þeir takast á við tilfinningar sínar í kennslu margbreytilegra nemendahópa.
Í þessari grein eru skoðaðar tilfinningar og tilfinningavinna (e.
emotional labour) kennara og bent á hvaða þættir stjórna þeim.
Gerð er grein fyrir niðurstöðum eigindlegrar rannsóknar þar sem viðtöl voru tekin við 14 grunnskólakennara sem höfðu reynslu af kennslu í margbreytilegum nemendahópum.
Í greininni verða niðurstöður settar í samhengi við kenningar Söru Ahmed um svokallað tilfinningahagkerfi (e.
affective economies) og Arlie Hochschild um tilfinningavinnu.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að tilfinningar kennara séu fjölbreyttar, síbreytilegar og sveif list í samræmi við álagspunkta skólaársins.
Kennarastarfinu virðast fylgja tilfinningar á borð við ástríðu, umhyggju, skömm og sektarkennd.
Kennarar þurfa meðal annars að stjórna tilfinningum sínum í samskiptum við stjórnendur, nemendur og foreldra til að skapa traust og jákvætt andrúmsloft til náms um leið og þeir þurfa oft að sætta ólík sjónarmið og skoðanir allra hagsmunaaðila skólastarfsins.
Mikilvægt er að skoða tilfinningar og tilfinningavinnu í skólastarfi svo mögulegt sé að draga úr tilfinningavinnu kennara og skapa þannig betra andrúmsloft og vinnuumhverfi öllu skólastarfi í hag.
Related Results
Áhrif EES-réttar á réttarfar
Áhrif EES-réttar á réttarfar
Útdráttur:
EES-samningurinn kveður ekki á um samræmingu reglna á sviði réttarfars. Í samræmi við það hefur EFTA-dómstóllinn, líkt og Evrópudómstóllinn, byggt á því að EES-ríkin njó...
Krefjandi lífsreynsla og flókin sorg: Að lifa af sjálfsvíg dóttur eða sonar
Krefjandi lífsreynsla og flókin sorg: Að lifa af sjálfsvíg dóttur eða sonar
Tilgangur
Sjálfsvíg eru alþjóðlegt heilbrigðisvandamál og fjórða algengasta dánarorsökin
í aldurshópnum 15–29 ára. Reynsla foreldra af því að missa son
eða dóttur í sjálfsvígi hefu...
A critical edition of 'Missa gratiarum in C' by Antonio Caldara (ca. 1671 - 1736)
A critical edition of 'Missa gratiarum in C' by Antonio Caldara (ca. 1671 - 1736)
<p>The Italian composer Antonio Caldara served as vice-chapel master to Charles VI in Vienna from 1716 until his death in 1736. Caldara was one of the most prolific composers...
Vernd mannréttinda samkvæmt EES-samningnum
Vernd mannréttinda samkvæmt EES-samningnum
Í meginmáli EES-samningsins er ekki að finna nein fyrirmæli um vernd mannréttinda samkvæmt samningnum. Því féll það í hlut EFTA-dómstólsins að móta reglur þar að lútandi innan EFTA...
Pierre Bourdieu (höfundur); Davíð Kristinsson (ritstjóri, ritar inngang); Björn Þorsteinsson, Egill Arnarson og Gunnar Harðarson (þýðendur): Almenningsálitið er ekki til
Pierre Bourdieu (höfundur); Davíð Kristinsson (ritstjóri, ritar inngang); Björn Þorsteinsson, Egill Arnarson og Gunnar Harðarson (þýðendur): Almenningsálitið er ekki til
Ég hlakkaði til að lesa þetta kver eftir Bourdieu, enda hef ég rannsakað lýðræði, kosningar og almenningsálit í þrjátíu ár og kennt námskeið um efnið. Hafði auk þess heyrt ýmsa tal...
Foreldraútilokun, reynsla útsettra foreldra í Tyrklandi
Foreldraútilokun, reynsla útsettra foreldra í Tyrklandi
Markmið rannsóknarinnar var að kanna reynslu útsettra foreldra í Tyrklandi af þeim útilokandi aðferðum sem notaðar voru til að útiloka þá frá barni sínu. Rannsóknin kannaði einnig ...
Ættmæði og peysuperrar – athugun á innsendum orðum á Nýyrðavefnum
Ættmæði og peysuperrar – athugun á innsendum orðum á Nýyrðavefnum
Greinin fjallar um Nýyrðavef Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum sem er vettvangur þar sem notendur geta lagt fram ný orð sem þeir hafa tekið eftir í samfélaginu eða búið...
Upplifun barna af leikskóladvöl „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf“
Upplifun barna af leikskóladvöl „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf“
Klukkan mótar starfshætti í leikskólum og stýrir tíma barna í daglegu starfi. Áhrif tímans á leikskólastarf og skipulag þess eru töluverð og er upplifun barna á tíma ekki sú sama o...

