Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

Ættmæði og peysuperrar – athugun á innsendum orðum á Nýyrðavefnum

View through CrossRef
Greinin fjallar um Nýyrðavef Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum sem er vettvangur þar sem notendur geta lagt fram ný orð sem þeir hafa tekið eftir í samfélaginu eða búið til sjálfir. Í greininni eru ástæður þess að nýyrði eru send inn skoðaðar, á hvaða merkingarsviðum þau eru og hvað einkennir innsend orð á vefnum. Þá er einnig fjallað um þá kosti og áskoranir sem fylgja því að halda úti nýyrðavef með virkri þátttöku almennings. Athugun leiddi í ljós að mikill meirihluti innsendra orða er myndaður af þeim sem senda þau inn og að nýyrði eru ekki aðeins búin til fyrir nýjungar sem ekki eiga sér heiti heldur einnig yfir gömul eða rótgróin fyrirbæri sem ýmist eiga sér eldra heiti eða ekki. Nýyrði sem lýsa nýjungum tengjast gjarna menningu, tækni og umhverfismálum. Mörg orð eru eins konar orðaleikir og oft eru orð yfir gömul fyrirbæri samheiti eldri orða og ekki virðist alltaf líklegt að þau nái fótfestu í málinu. Algengasta aðferðin við orðmyndun eru samsetning en þar á eftir er blöndun algengust. Lykilorð: nýyrði, íslenska, veforðabók, orðabókarfræði
The National and University Library of Iceland
Title: Ættmæði og peysuperrar – athugun á innsendum orðum á Nýyrðavefnum
Description:
Greinin fjallar um Nýyrðavef Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum sem er vettvangur þar sem notendur geta lagt fram ný orð sem þeir hafa tekið eftir í samfélaginu eða búið til sjálfir.
Í greininni eru ástæður þess að nýyrði eru send inn skoðaðar, á hvaða merkingarsviðum þau eru og hvað einkennir innsend orð á vefnum.
Þá er einnig fjallað um þá kosti og áskoranir sem fylgja því að halda úti nýyrðavef með virkri þátttöku almennings.
Athugun leiddi í ljós að mikill meirihluti innsendra orða er myndaður af þeim sem senda þau inn og að nýyrði eru ekki aðeins búin til fyrir nýjungar sem ekki eiga sér heiti heldur einnig yfir gömul eða rótgróin fyrirbæri sem ýmist eiga sér eldra heiti eða ekki.
Nýyrði sem lýsa nýjungum tengjast gjarna menningu, tækni og umhverfismálum.
Mörg orð eru eins konar orðaleikir og oft eru orð yfir gömul fyrirbæri samheiti eldri orða og ekki virðist alltaf líklegt að þau nái fótfestu í málinu.
Algengasta aðferðin við orðmyndun eru samsetning en þar á eftir er blöndun algengust.
Lykilorð: nýyrði, íslenska, veforðabók, orðabókarfræði.

Related Results

Íslenskur námsorðaforði
Íslenskur námsorðaforði
Viðfangsefni þessarar rannsóknar er íslenskur námsorðaforði sem byggist á lagskiptingu orðaforða tungumálsins. Markmiðið var að móta lista yfir íslenskan námsorðaforða, orða í lagi...
Álitamál tengd innleiðingu hæfnimiðaðs námsmats í skyldunámi
Álitamál tengd innleiðingu hæfnimiðaðs námsmats í skyldunámi
Rannsóknastofa um námskrár, námsmat og námsskipulag stóð fyrir tveimur málþingum um námskrár og námsmat á vordögum 2019. Gestur fyrra málþingsins var hollenski námskrárfræðingurinn...
Vernd mannréttinda samkvæmt EES-samningnum
Vernd mannréttinda samkvæmt EES-samningnum
Í meginmáli EES-samningsins er ekki að finna nein fyrirmæli um vernd mannréttinda samkvæmt samningnum. Því féll það í hlut EFTA-dómstólsins að móta reglur þar að lútandi innan EFTA...
Örnefni í Álfasögunni miklu
Örnefni í Álfasögunni miklu
Greinin fjallar um örnefni í Sögu Ólafs Þórhallasonar eftir Eirík Laxdal, sem skrifuð var um aldamótin 1800 og er af ýmsum talin elsta skáldsaga í nútímaskilningi á íslensku. Athug...

Back to Top