Javascript must be enabled to continue!
Krefjandi lífsreynsla og flókin sorg: Að lifa af sjálfsvíg dóttur eða sonar
View through CrossRef
Tilgangur
Sjálfsvíg eru alþjóðlegt heilbrigðisvandamál og fjórða algengasta dánarorsökin
í aldurshópnum 15–29 ára. Reynsla foreldra af því að missa son
eða dóttur í sjálfsvígi hefur lítið verið rannsökuð hér á landi. Tilgangur
rannsóknarinnar var að kanna reynslu foreldra af því að missa dóttur eða
son í sjálfsvígi og þann stuðning sem þeim stóð til boða í kjölfar þess.
Aðferð
Í þessari fyrirbærafræðilegu rannsókn voru tekin 13 viðtöl við 10 foreldra,
sjö mæður og þrjá feður, sem höfðu misst son eða dóttur á aldrinum 17-37
ára í sjálfsvígi.
Niðurstöður
Fyrir foreldrana var sjálfsvígið krefjandi lífsreynsla og við tók flókin,
langvinn og stöðug sorg. Það höfðu verið erfiðleikar hjá sonum og
dætrum þátttakenda fyrir sjálfsvígið í öllum tilvikum nema einu, svo
sem sjálfsvígshugsanir, sjálfsskaðandi hegðun og tilraunir til sjálfsvígs.
Sjálfsvígið kom samt öllum foreldrunum í opna skjöldu og var þeim mikið
áfall. Við tók doði og þeir áttu erfitt með daglegt líf, misstu matarlyst,
svefn, skammtímaminni, þrek, jafnvægi, jarðtengingu og tengsl við
raunveruleikann. Flóknar tilfinningar komu upp hjá þeim öllum svo sem
sektarkennd og sjálfsásakanir og áfallið kom mikið niður á andlegri og
líkamlegri heilsu þeirra þar sem kvíði, þunglyndi og verkir voru áberandi.
Sorgarúrvinnsla hjá foreldrunum tók langan tíma og stuðningur var af
misjöfnum toga og mikið undir foreldrunum sjálfum komið að sækja sér
stuðning ef hann brást eða þegar frá leið. Áberandi voru vonbrigði gagnvart
heilbrigðiskerfinu að ekki var framkvæmt einhvers konar mat á þörfum
þeirra fyrir stuðning í kjölfar áfallsins.
Ályktun
Af niðurstöðum að dæma er nauðsynlegt að koma upp verkferlum
fyrir hjúkrunarfræðinga og annað starfsfólk heilbrigðiskerfisins
sem styður betur við foreldra sem missa son eða dóttur í sjálfsvígi.
Þeir þurfa einstaklingsbundinn stuðning í sorginni og upplýsingar
um langtímastuðning og úrræði. Heilsugæslan gæti tekið að sér
leiðtogahlutverk á þessu sviði í samráði við viðkomandi aðila.
The National and University Library of Iceland
Title: Krefjandi lífsreynsla og flókin sorg: Að lifa af sjálfsvíg dóttur eða sonar
Description:
Tilgangur
Sjálfsvíg eru alþjóðlegt heilbrigðisvandamál og fjórða algengasta dánarorsökin
í aldurshópnum 15–29 ára.
Reynsla foreldra af því að missa son
eða dóttur í sjálfsvígi hefur lítið verið rannsökuð hér á landi.
Tilgangur
rannsóknarinnar var að kanna reynslu foreldra af því að missa dóttur eða
son í sjálfsvígi og þann stuðning sem þeim stóð til boða í kjölfar þess.
Aðferð
Í þessari fyrirbærafræðilegu rannsókn voru tekin 13 viðtöl við 10 foreldra,
sjö mæður og þrjá feður, sem höfðu misst son eða dóttur á aldrinum 17-37
ára í sjálfsvígi.
Niðurstöður
Fyrir foreldrana var sjálfsvígið krefjandi lífsreynsla og við tók flókin,
langvinn og stöðug sorg.
Það höfðu verið erfiðleikar hjá sonum og
dætrum þátttakenda fyrir sjálfsvígið í öllum tilvikum nema einu, svo
sem sjálfsvígshugsanir, sjálfsskaðandi hegðun og tilraunir til sjálfsvígs.
Sjálfsvígið kom samt öllum foreldrunum í opna skjöldu og var þeim mikið
áfall.
Við tók doði og þeir áttu erfitt með daglegt líf, misstu matarlyst,
svefn, skammtímaminni, þrek, jafnvægi, jarðtengingu og tengsl við
raunveruleikann.
Flóknar tilfinningar komu upp hjá þeim öllum svo sem
sektarkennd og sjálfsásakanir og áfallið kom mikið niður á andlegri og
líkamlegri heilsu þeirra þar sem kvíði, þunglyndi og verkir voru áberandi.
Sorgarúrvinnsla hjá foreldrunum tók langan tíma og stuðningur var af
misjöfnum toga og mikið undir foreldrunum sjálfum komið að sækja sér
stuðning ef hann brást eða þegar frá leið.
Áberandi voru vonbrigði gagnvart
heilbrigðiskerfinu að ekki var framkvæmt einhvers konar mat á þörfum
þeirra fyrir stuðning í kjölfar áfallsins.
Ályktun
Af niðurstöðum að dæma er nauðsynlegt að koma upp verkferlum
fyrir hjúkrunarfræðinga og annað starfsfólk heilbrigðiskerfisins
sem styður betur við foreldra sem missa son eða dóttur í sjálfsvígi.
Þeir þurfa einstaklingsbundinn stuðning í sorginni og upplýsingar
um langtímastuðning og úrræði.
Heilsugæslan gæti tekið að sér
leiðtogahlutverk á þessu sviði í samráði við viðkomandi aðila.
Related Results
Að lifa með ólýsanlegri örmögnun
Að lifa með ólýsanlegri örmögnun
Þótt þreyta sé daglegur hluti lífsins þá er það oft hlutskipti langveiks fólks að lifa með meiri þreytu; ólýsanlegri örmögnun og orkuskerðingu. Á síðustu árum hefur komið betur og ...
Tvímælis: Heimspeki menntunar og skólakerfi nútímans
Tvímælis: Heimspeki menntunar og skólakerfi nútímans
Þetta rit er inngangur að heimspeki menntunar. Það inniheldur gagnrýna umfjöllun um hugmyndir sem stundum er gengið að sem gefnum þegar rætt er um skólamál. Þetta eru einkum hugmyn...
Eldra fólk sem kom á bráðamóttöku og var vísað á greiningarmóttöku öldrunarlækningadeildar Landspítala árin 2016-2018: heilsufar og afdrif
Eldra fólk sem kom á bráðamóttöku og var vísað á greiningarmóttöku öldrunarlækningadeildar Landspítala árin 2016-2018: heilsufar og afdrif
Tilgangur
Með fjölgun aldraðra á komandi árum er líklegt að þeim fjölgi sem eru
fjölveikir, með skerta færni eða hrumleika. Því verður aukin þörf fyrir
sérhæfða heilbrigðisþjónustu...
An Adaptive Image-stitching Algorithm for an Underwater Monitoring System
An Adaptive Image-stitching Algorithm for an Underwater Monitoring System
Against the narrow range of sonar images for underwater monitoring, an adaptive sonar image-stitching algorithm is proposed in this paper. Compared with conventional sonar image-st...
Surgical Efficacy and Prognosis of 54 Cases of Spinal Metastases from Breast Cancer
Surgical Efficacy and Prognosis of 54 Cases of Spinal Metastases from Breast Cancer
Abstract
OBJECTIVE
To analyze the efficacy and complications of spinal metastasis surgery for breast cancer; to understand the survival and the influencing factors; and to...
Multiple ping sonar accuracy improvement using robust motion estimation and ping fusion
Multiple ping sonar accuracy improvement using robust motion estimation and ping fusion
Noise degrades the accuracy of sonar systems. We demonstrate a practical method for increasing the effective signal-to-noise ratio (SNR) by fusing time delay information from a bur...
ASSESSMENT OF A LOW-COST SIDE-SCAN SONAR FOR RIVER ESTUARY UNDERWATER IMAGING
ASSESSMENT OF A LOW-COST SIDE-SCAN SONAR FOR RIVER ESTUARY UNDERWATER IMAGING
River and estuary areas commonly exhibit complex and heterogeneous habitats. Thus, revealing the distribution of riverbed morphologies could promote the area management and habitat...
Low Correlation Codes for Sonar Systems
Low Correlation Codes for Sonar Systems
<p>Sonar is a vital technology for the detection of objects in the water. Sonarsystems have been redefined over many decades, but research is still beingconducted into optima...

