Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

Að lifa með ólýsanlegri örmögnun

View through CrossRef
Þótt þreyta sé daglegur hluti lífsins þá er það oft hlutskipti langveiks fólks að lifa með meiri þreytu; ólýsanlegri örmögnun og orkuskerðingu. Á síðustu árum hefur komið betur og betur í ljós að einn hópur langveikra sem lifa með ME sjúkdómnum (Myalgic Encephalomyelitis) – sem áður var kenndur við síþreytu – finni til ákveðinnar gerðar af þreytu sem kallast í daglegu máli PEM (e. post exertional malaise). Sérkenni PEM-þreytu eru þau að þreytu-upplifunin finnst ekki endilega á því augnabliki þegar manneskjan er í mikilli virkni, hvort sem um er að ræða líkamlegt álag, tilfinningalegt eða hugrænt. PEM getur komið 24 klukkustundum eftir álag. Þar sem enn skortir lífmerki fyrir ME sjúkdóminn hefur þessi gerð þreytu skipt sköpum fyrir ME sjúklinga til þess að temja sér (takmarkaða) meðferð að nafni virkniaðlögun til aðlögunar þeim skerðingum sem fylgir sjúkdómnum. Markmið þessarar greinar er að fjalla um viðtalsrannsókn við þrettán ME sjúklinga um upplifun þeirra af þreytu, veikindum og hvernig það sé að lifa með ME á Íslandi í dag. Til þess að útskýra flókna stöðu þessa sjúklingahóps er gerð grein fyrir viðtökusögu ME og síþreytu á Íslandi sem og hugvísindalegum heimildum um þreytu. Viðtalsrannsóknin sýnir að þótt virkniaðlögun hjálpi þá geti verið erfitt að gera sér grein fyrir ýmsum tegundum af álagi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna þannig fram á að í PEM-þreytu blandast saman hugrænar, líkamlegrar, skynrænar og tilfinningalegar gerðir af örmögnun. Eins og viðtalsrannsóknin ber vitni um, er þessi margslungna þreyta erfiðari viðfangs en mælanlegar einingar líkamlegrar virkni geta sagt til um á borð við 500 metra göngutúr. Þetta undirstrikar hve erfitt er að lifa með sjúkdómi þar sem skortur á úrræðum og meðferðum er svo mikill.
The National and University Library of Iceland
Title: Að lifa með ólýsanlegri örmögnun
Description:
Þótt þreyta sé daglegur hluti lífsins þá er það oft hlutskipti langveiks fólks að lifa með meiri þreytu; ólýsanlegri örmögnun og orkuskerðingu.
Á síðustu árum hefur komið betur og betur í ljós að einn hópur langveikra sem lifa með ME sjúkdómnum (Myalgic Encephalomyelitis) – sem áður var kenndur við síþreytu – finni til ákveðinnar gerðar af þreytu sem kallast í daglegu máli PEM (e.
post exertional malaise).
Sérkenni PEM-þreytu eru þau að þreytu-upplifunin finnst ekki endilega á því augnabliki þegar manneskjan er í mikilli virkni, hvort sem um er að ræða líkamlegt álag, tilfinningalegt eða hugrænt.
PEM getur komið 24 klukkustundum eftir álag.
Þar sem enn skortir lífmerki fyrir ME sjúkdóminn hefur þessi gerð þreytu skipt sköpum fyrir ME sjúklinga til þess að temja sér (takmarkaða) meðferð að nafni virkniaðlögun til aðlögunar þeim skerðingum sem fylgir sjúkdómnum.
Markmið þessarar greinar er að fjalla um viðtalsrannsókn við þrettán ME sjúklinga um upplifun þeirra af þreytu, veikindum og hvernig það sé að lifa með ME á Íslandi í dag.
Til þess að útskýra flókna stöðu þessa sjúklingahóps er gerð grein fyrir viðtökusögu ME og síþreytu á Íslandi sem og hugvísindalegum heimildum um þreytu.
Viðtalsrannsóknin sýnir að þótt virkniaðlögun hjálpi þá geti verið erfitt að gera sér grein fyrir ýmsum tegundum af álagi.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna þannig fram á að í PEM-þreytu blandast saman hugrænar, líkamlegrar, skynrænar og tilfinningalegar gerðir af örmögnun.
Eins og viðtalsrannsóknin ber vitni um, er þessi margslungna þreyta erfiðari viðfangs en mælanlegar einingar líkamlegrar virkni geta sagt til um á borð við 500 metra göngutúr.
Þetta undirstrikar hve erfitt er að lifa með sjúkdómi þar sem skortur á úrræðum og meðferðum er svo mikill.

Related Results

Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni
Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni
Bakgrunnur Öldruðum kemur til með að fjölga hratt á næstu áratugum ef mannfjöldaspár ganga eftir. Með fjölgun í hópi eldra fólks má áætla aukið álag á heilbrigðiskerfið. Næringarás...
Bylgjubrotsmælingaferð á Mýrdalsjökli í júní 1991 (Mýrdalsjökull refraction measurements in June 1991)
Bylgjubrotsmælingaferð á Mýrdalsjökli í júní 1991 (Mýrdalsjökull refraction measurements in June 1991)
Mér var ætlað að aðstoða Bryndísi Brandsdóttur við útsetningu jarðskjálftamæla til bylgjubrotsmælinga á Mýrdalsjökli um miðjan júní 1991, en meiningin með þeim leiðangri var að kan...
Alþjóðlegur bakgrunnur, skólasókn og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum 2001-2021
Alþjóðlegur bakgrunnur, skólasókn og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum 2001-2021
Jón Torfi Jónasson hefur á ferli sínum dregið fram hið lítt öfundsverða hlutskipti íslenskra framhaldskólanema sem birtist í miklu brotthvarfi þeirra frá námi. Í þessari rannsókn e...
Analisis Sistem Informasi Penjualan kacamata pada Optik Lifa di Kabupaten Sumenep
Analisis Sistem Informasi Penjualan kacamata pada Optik Lifa di Kabupaten Sumenep
 Optik Lifa merupakan usaha yang mengkhususkan dalam menjual kacamata. Sistem informasi penjualan yang sedang berjalan saat ini masih bersifat manual sehingga masih banyak kendala-...
Ný tegund sæsnigils í Atlantshafi
Ný tegund sæsnigils í Atlantshafi
Sumarið 2020 varð vart við óþekkta eggjasekki í fjöru í Fossvogi. Árið 2021 sáust sams konar eggjasekkir í fjöru í Sandgerði og árið 2022 í Breiðafirði. Í ágúst 2023 var leitað í f...
Menningarmiðaðar kennsluaðferðir
Menningarmiðaðar kennsluaðferðir
Aukinn fjölbreytileiki í íslenskum grunnskólum skapar mörg tækifæri fyrir kennara til þess að nýta menningu, reynslu og tungumál nemenda í kennslu. Menningarmiðaðar kennsluaðferðir...
Eldra fólk sem kom á bráðamóttöku og var vísað á greiningarmóttöku öldrunarlækningadeildar Landspítala árin 2016-2018: heilsufar og afdrif
Eldra fólk sem kom á bráðamóttöku og var vísað á greiningarmóttöku öldrunarlækningadeildar Landspítala árin 2016-2018: heilsufar og afdrif
Tilgangur Með fjölgun aldraðra á komandi árum er líklegt að þeim fjölgi sem eru fjölveikir, með skerta færni eða hrumleika. Því verður aukin þörf fyrir sérhæfða heilbrigðisþjónustu...
„Ég hef alltaf minni og minni áhuga á þessu hefðbundna sambandi“. Tilhugalíf fráskilinna framakvenna
„Ég hef alltaf minni og minni áhuga á þessu hefðbundna sambandi“. Tilhugalíf fráskilinna framakvenna
Hér er rýnt í ástarreynslu kvenna á miðjum aldri sem hafa skilið við langtímamaka og eru að reyna að fóta sig í breyttum og sítengdum veruleika tilhugalífsins. Tekin voru djúpviðtö...

Back to Top