Javascript must be enabled to continue!
Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni
View through CrossRef
Bakgrunnur
Öldruðum kemur til með að fjölga hratt á næstu áratugum ef
mannfjöldaspár ganga eftir. Með fjölgun í hópi eldra fólks má áætla aukið
álag á heilbrigðiskerfið. Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu
hefur lítið verið rannsakað en ef næringarþörf þessa viðkvæma hóps er
mætt má mögulega stuðla að auknum lífsgæðum, minni þjónustuþörf,
færri legudögum á sjúkrahúsum og ótímabærum búferlaflutningi á
öldrunarheimili. Tilgangur rannsóknarinnar var að meta næringarástand
eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni sem fá þjónustu frá
heimahjúkrun Heilbrigðistofnunar Norðurlands (HSN).
Aðferð
Rannsóknin var þversniðsrannsókn. Heimahjúkrun skimaði skjólstæðinga
sína (n=193), ≥65 ára í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni í mars
2022 með matstækinu „Mat á áhættu fyrir vannæringu“ sem finnst í Sögu
sjúkraskrá. Skimunin gefur skjólstæðingunum stig (0-30) eftir því hve
mikil áhættan er talin vera á vannæringu, þar sem hærri stig lýsa meiri
áhættu. Við skimun þarf að skrá hæð og þyngd, skoða þyngdarsögu m.t.t.
þyngdartaps, svara spurningum um t.d. ógleði, uppköst og niðurgang,
erfiðleika við að kyngja eða tyggja, nýlega sjúkrahúslegu og aðgerð. Í lok
skimunar gefur matstækið stig eftir svörum skjólstæðingsins.
Niðurstöður
Miðgildi aldurs var 84 ár (IQR:10), miðgildi þyngdar 79 kg (IQR:24) og
miðgildi líkamsþyngdarstuðuls (LÞS (kg/m2) 27,5 (IQR:7,5). Í heild voru
4% með LÞS <18,5 og 35% þátttakenda með LÞS ≥30. Alls reyndist 31,1%
þátttakenda vera með ákveðnar líkur á vannæringu (3-4 stig) og 5,2% vera
með sterkar líkur á vannæringu (≥5 stig). Ósjálfrátt þyngdartap undanfarið,
viðvarandi léleg matarlyst eða ógleði og nýleg dvöl á sjúkrastofnun voru
veigamestu áhættuþættirnir meðal þátttakenda sem höfðu ákveðnar eða
sterkar líkur á vannæringu (≥3 stig).
Ályktanir
Niðurstöðurnar sýna að 36% (n=70) einstaklinga í sjálfstæðri búsetu á
Akureyri með þjónustu frá heimahjúkrun eru með ákveðnar eða sterkar
líkur á vannæringu. Þörf er á forvörnum og íhlutandi aðgerðum til að
stuðla að fullnægjandi næringarinntekt eldra fólks í sjálfstæðri búsetu.
Lykilorð
Eldra fólk, næringarástand, sjálfstæð búseta, þversniðsrannsókn, skimun.
The National and University Library of Iceland
Title: Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni
Description:
Bakgrunnur
Öldruðum kemur til með að fjölga hratt á næstu áratugum ef
mannfjöldaspár ganga eftir.
Með fjölgun í hópi eldra fólks má áætla aukið
álag á heilbrigðiskerfið.
Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu
hefur lítið verið rannsakað en ef næringarþörf þessa viðkvæma hóps er
mætt má mögulega stuðla að auknum lífsgæðum, minni þjónustuþörf,
færri legudögum á sjúkrahúsum og ótímabærum búferlaflutningi á
öldrunarheimili.
Tilgangur rannsóknarinnar var að meta næringarástand
eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni sem fá þjónustu frá
heimahjúkrun Heilbrigðistofnunar Norðurlands (HSN).
Aðferð
Rannsóknin var þversniðsrannsókn.
Heimahjúkrun skimaði skjólstæðinga
sína (n=193), ≥65 ára í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni í mars
2022 með matstækinu „Mat á áhættu fyrir vannæringu“ sem finnst í Sögu
sjúkraskrá.
Skimunin gefur skjólstæðingunum stig (0-30) eftir því hve
mikil áhættan er talin vera á vannæringu, þar sem hærri stig lýsa meiri
áhættu.
Við skimun þarf að skrá hæð og þyngd, skoða þyngdarsögu m.
t.
t.
þyngdartaps, svara spurningum um t.
d.
ógleði, uppköst og niðurgang,
erfiðleika við að kyngja eða tyggja, nýlega sjúkrahúslegu og aðgerð.
Í lok
skimunar gefur matstækið stig eftir svörum skjólstæðingsins.
Niðurstöður
Miðgildi aldurs var 84 ár (IQR:10), miðgildi þyngdar 79 kg (IQR:24) og
miðgildi líkamsþyngdarstuðuls (LÞS (kg/m2) 27,5 (IQR:7,5).
Í heild voru
4% með LÞS <18,5 og 35% þátttakenda með LÞS ≥30.
Alls reyndist 31,1%
þátttakenda vera með ákveðnar líkur á vannæringu (3-4 stig) og 5,2% vera
með sterkar líkur á vannæringu (≥5 stig).
Ósjálfrátt þyngdartap undanfarið,
viðvarandi léleg matarlyst eða ógleði og nýleg dvöl á sjúkrastofnun voru
veigamestu áhættuþættirnir meðal þátttakenda sem höfðu ákveðnar eða
sterkar líkur á vannæringu (≥3 stig).
Ályktanir
Niðurstöðurnar sýna að 36% (n=70) einstaklinga í sjálfstæðri búsetu á
Akureyri með þjónustu frá heimahjúkrun eru með ákveðnar eða sterkar
líkur á vannæringu.
Þörf er á forvörnum og íhlutandi aðgerðum til að
stuðla að fullnægjandi næringarinntekt eldra fólks í sjálfstæðri búsetu.
Lykilorð
Eldra fólk, næringarástand, sjálfstæð búseta, þversniðsrannsókn, skimun.
Related Results
Mellem Færeyinga saga og Sigmundarkvæðið eldra / Between Færeyinga saga and Sigmundarkvæði eldra
Mellem Færeyinga saga og Sigmundarkvæðið eldra / Between Færeyinga saga and Sigmundarkvæði eldra
ÚrtakTað føroyska Sigmundarkvæðið eldra varð yrkt í styttri ella longri tíð fyri 1673, tá ið Lucas Debes nevndi tað í sínari bók. Evnið var komið – ígjøgnum millumliðir – úr tí ísl...
IMPACT OF SEA ROBBERY ON ARTISANAL FISH PRODUCTION IN AKWA IBOM STATE, NIGERIA
IMPACT OF SEA ROBBERY ON ARTISANAL FISH PRODUCTION IN AKWA IBOM STATE, NIGERIA
The study assessed the Impact of Sea Robbery on Artisanal Fish Production in Akwa Ibom State, Nigeria. Specifically, this study compared the income of the fisher-folks affected by ...
Eldra fólk sem kom á bráðamóttöku og var vísað á greiningarmóttöku öldrunarlækningadeildar Landspítala árin 2016-2018: heilsufar og afdrif
Eldra fólk sem kom á bráðamóttöku og var vísað á greiningarmóttöku öldrunarlækningadeildar Landspítala árin 2016-2018: heilsufar og afdrif
Tilgangur
Með fjölgun aldraðra á komandi árum er líklegt að þeim fjölgi sem eru
fjölveikir, með skerta færni eða hrumleika. Því verður aukin þörf fyrir
sérhæfða heilbrigðisþjónustu...
Black Wax(ing): On Gil Scott-Heron and the Walking Interlude
Black Wax(ing): On Gil Scott-Heron and the Walking Interlude
The film opens in an unidentified wax museum. The camera pans from right to left, zooming in on key Black historical figures who have been memorialized in wax. W.E.B. Du Bois, Mari...
The Information Practices of the Fishermen in the Bay of Bengal, Bangladesh
The Information Practices of the Fishermen in the Bay of Bengal, Bangladesh
AbstractUtilizing de Certeau’s concepts of “tactics” and “strategies,” and Chatman’s “information poverty,” this study examines the information practices of the fishermen in the Ba...
Remote Patient Care Monitoring System for Rural Area
Remote Patient Care Monitoring System for Rural Area
Recent advancement in health care technologies provides a brand new edge to medical services. The health condition of the folks living in remote rural areas of Asian countries is m...
Redefining America, Arena Stage, and Territory Folks in a Multiracial Oklahoma!
Redefining America, Arena Stage, and Territory Folks in a Multiracial Oklahoma!
In 2010, Arena Stage, the pioneering regional theatre of Washington, D.C., celebrated its sixtieth anniversary and new theatre complex with a multiracial production of Richard Rodg...

