Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

Eldra fólk sem kom á bráðamóttöku og var vísað á greiningarmóttöku öldrunarlækningadeildar Landspítala árin 2016-2018: heilsufar og afdrif

View through CrossRef
Tilgangur Með fjölgun aldraðra á komandi árum er líklegt að þeim fjölgi sem eru fjölveikir, með skerta færni eða hrumleika. Því verður aukin þörf fyrir sérhæfða heilbrigðisþjónustu og mikilvægt að bregðast við með viðeigandi meðferð til að fyrirbyggja versnun á heilsufari, þörf á sjúkrahúslegu eða vistun á hjúkrunarheimili. Markmið rannsóknarinnar var að skoða heilsufar, færni og heimaþjónustu þeirra sem vísað var á greiningarmóttöku öldrunarlækningadeildar á Landspítala. Einnig að skoða hvernig heilsufar og færni tengist andláti og flutningi á hjúkrunarheimili innan árs frá komu. Aðferð Rannsóknin er afturskyggn þversniðsrannsókn á sjúkraskrárgögnum einstaklinga sem komu á greiningarmóttöku (GM), auk upplýsinga um andlát og flutning á hjúkrunarheimili (N=161). Lýsandi og greinandi tölfræði var notuð til að greina gögnin og aðhvarfsgreining hlutfalla var notuð til að greina forspárþætti fyrir andláti eða flutningi á hjúkrunarheimili. Niðurstöður Meðalaldur var 84,4 ár og 71,6% voru konur. Þeir sem höfðu tvær eða fleiri komur á bráðamóttöku á síðastliðnum 90 dögum voru 62 (43,9%). Komum á bráðamóttöku fækkaði hjá einstaklingunum um 82% þegar borið var saman 30 daga tímabil fyrir og eftir komu á GM en fækkaði um 70% ef tímabilið var 90 dagar fyrir og eftir komu á GM (p=0,001). Eftirfarandi þættir sýndu auknar hlutfallslíkur á að einstaklingarnir létust eða flyttu á hjúkrunarheimili innan árs frá komu á greiningarmóttöku: voru með heimahjúkrun (OR 3,44 (CI 1,115–10,592), p<0,032); skert sjálfsbjargargeta við að klæðast (OR 5,60 (CI 1,702–18,458), p<0,005); byltur (OR 4,38 (CI 1,333–14,418), p<0,015); innlögn á bráðasjúkrahús (OR 3,79 (CI 1,004– 14,295), p<0,049). Ályktanir Sérhæfð þverfagleg þjónusta við hrumt eldra fólk í hættu á alvarlegum heilsubresti getur tryggt viðeigandi meðferð, fækkað komum á bráðamóttöku og stutt við sjálfstæða búsetu. Lykilorð eldra fólk, göngudeild, heilsufar, færni
Title: Eldra fólk sem kom á bráðamóttöku og var vísað á greiningarmóttöku öldrunarlækningadeildar Landspítala árin 2016-2018: heilsufar og afdrif
Description:
Tilgangur Með fjölgun aldraðra á komandi árum er líklegt að þeim fjölgi sem eru fjölveikir, með skerta færni eða hrumleika.
Því verður aukin þörf fyrir sérhæfða heilbrigðisþjónustu og mikilvægt að bregðast við með viðeigandi meðferð til að fyrirbyggja versnun á heilsufari, þörf á sjúkrahúslegu eða vistun á hjúkrunarheimili.
Markmið rannsóknarinnar var að skoða heilsufar, færni og heimaþjónustu þeirra sem vísað var á greiningarmóttöku öldrunarlækningadeildar á Landspítala.
Einnig að skoða hvernig heilsufar og færni tengist andláti og flutningi á hjúkrunarheimili innan árs frá komu.
Aðferð Rannsóknin er afturskyggn þversniðsrannsókn á sjúkraskrárgögnum einstaklinga sem komu á greiningarmóttöku (GM), auk upplýsinga um andlát og flutning á hjúkrunarheimili (N=161).
Lýsandi og greinandi tölfræði var notuð til að greina gögnin og aðhvarfsgreining hlutfalla var notuð til að greina forspárþætti fyrir andláti eða flutningi á hjúkrunarheimili.
Niðurstöður Meðalaldur var 84,4 ár og 71,6% voru konur.
Þeir sem höfðu tvær eða fleiri komur á bráðamóttöku á síðastliðnum 90 dögum voru 62 (43,9%).
Komum á bráðamóttöku fækkaði hjá einstaklingunum um 82% þegar borið var saman 30 daga tímabil fyrir og eftir komu á GM en fækkaði um 70% ef tímabilið var 90 dagar fyrir og eftir komu á GM (p=0,001).
Eftirfarandi þættir sýndu auknar hlutfallslíkur á að einstaklingarnir létust eða flyttu á hjúkrunarheimili innan árs frá komu á greiningarmóttöku: voru með heimahjúkrun (OR 3,44 (CI 1,115–10,592), p<0,032); skert sjálfsbjargargeta við að klæðast (OR 5,60 (CI 1,702–18,458), p<0,005); byltur (OR 4,38 (CI 1,333–14,418), p<0,015); innlögn á bráðasjúkrahús (OR 3,79 (CI 1,004– 14,295), p<0,049).
Ályktanir Sérhæfð þverfagleg þjónusta við hrumt eldra fólk í hættu á alvarlegum heilsubresti getur tryggt viðeigandi meðferð, fækkað komum á bráðamóttöku og stutt við sjálfstæða búsetu.
Lykilorð eldra fólk, göngudeild, heilsufar, færni.

Related Results

ANALISIS KETERKAITAN KEKERASAN DENGAN PERBUATAN CABUL TERHADAP ANAK
ANALISIS KETERKAITAN KEKERASAN DENGAN PERBUATAN CABUL TERHADAP ANAK
<span id="page3R_mcid85" class="markedContent"><em><span style="left: calc(var(--scale-factor)*85.10px); top: calc(var(--scale-factor)*399.05px); font-size: calc(var...
Hartsa med brylcreme
Hartsa med brylcreme
From the point of departure of a folk song (Marching melody from Gärdeby) which by way of radio and television gained great popularity both in Sweden and abroad, light is thrown up...
Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni
Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni
Bakgrunnur Öldruðum kemur til með að fjölga hratt á næstu áratugum ef mannfjöldaspár ganga eftir. Með fjölgun í hópi eldra fólks má áætla aukið álag á heilbrigðiskerfið. Næringarás...
Mellem Færeyinga saga og Sigmundarkvæðið eldra / Between Færeyinga saga and Sigmundarkvæði eldra
Mellem Færeyinga saga og Sigmundarkvæðið eldra / Between Færeyinga saga and Sigmundarkvæði eldra
ÚrtakTað føroyska Sigmundarkvæðið eldra varð yrkt í styttri ella longri tíð fyri 1673, tá ið Lucas Debes nevndi tað í sínari bók. Evnið var komið – ígjøgnum millumliðir – úr tí ísl...
Summary
Summary
RESUMÉKapitlet indeholder en kortfattet litteraturgennemgang med særligt vægt på epidemiologiske aspekter af diabetiske øjenmanifestationer samt en beskrivelse af formålet med den ...
Karakterisasi Tiga Jenis Simplisia Jahe yang Tumbuh di Jawa Barat
Karakterisasi Tiga Jenis Simplisia Jahe yang Tumbuh di Jawa Barat
Abstract. Emprit ginger (Zingiber officinale var. Amarum), elephant ginger (Zingiber officinale var. Rosc), and red ginger (Zingiber officinale var. sunti Valeton) are notable biop...
Suha Arın Filmografyasında Aykırı Bir Belgesel Tahtacı Fatma (1979): Sinematografik Analiz
Suha Arın Filmografyasında Aykırı Bir Belgesel Tahtacı Fatma (1979): Sinematografik Analiz
Suha Arın modern Türk Belgesel Sineması’nın kurucusu olarak tanımlanabilir. Arın; hem belgesel sinemanın Türkiye’de kurumsallaşma sürecini başlatmıştır (Çelik Gülersoy’la birlikte)...
Pengukuran Value at Risk pada Aset Perusahaan dengan Metode Simulasi Monte Carlo
Pengukuran Value at Risk pada Aset Perusahaan dengan Metode Simulasi Monte Carlo
Telah dilakukan penelitian untuk mengukur Value at Risk (VaR) pada aset perusahaan PT. Indo Tambangraya Megah Tbk (ITMG), PT. Bank Mandiri Tbk (BMRI), dan PT. Astra International T...

Back to Top