Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

Alþjóðlegur bakgrunnur, skólasókn og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum 2001-2021

View through CrossRef
Jón Torfi Jónasson hefur á ferli sínum dregið fram hið lítt öfundsverða hlutskipti íslenskra framhaldskólanema sem birtist í miklu brotthvarfi þeirra frá námi. Í þessari rannsókn er sjónum beint að framhaldsskólasókn, þar sem kannaðar eru líkur á því að nemendur hefji nám að loknum grunnskóla og er þeim svo fylgt til 22 ára aldurs. Markmiðið er að bera saman framhaldsskólasókn fjögurra árganga (1985–88) sem luku grunnskóla við upphaf 21. aldar og fjögurra árganga (1995–98) sem luku grunnskóla tíu árum síðar. Könnuð er framhaldsskólasókn eftir uppruna nemenda, þ.e. hvort þeir hafa innlendan eða alþjóðlegan bakgrunn og eftir kyni. Byggt er á gögnum frá Hagstofu Íslands úr gagnagrunnum um mannfjölda, prófaskrá og nemendaskrá. Svipmót íslensks samfélags hefur tekið miklum breytingum á þessum tíma og er nú mun alþjóðlegra en það var við upphaf aldarinnar. Innflytjendum og ungmennum með alþjóðlegan bakgrunn hefur þannig fjölgað í íslenskum skólum og er verulegur munur milli hópanna sem hér eru til skoðunar. Af þessum ástæðum er mikilvægt og gagnlegt að fylgjast með þróun skólasóknar hjá þessum hópi ungmenna. Þegar litið er til alls hópsins hefur dregið talsvert úr brotthvarfi frá námi milli eldri og yngri fæðingarárganganna. Fleiri ungmenni í yngri fæðingarárgöngunum en þeim eldri hefja þannig nám í framhaldsskóla og fleiri ljúka því fyrir 22 ára aldur. Þetta á bæði við um íslenska nemendur og ungmenni með alþjóðlegan bakgrunn. Líkur á því að þau sem fædd eru erlendis hefji nám í framhaldsskóla aukast á milli fæðingarárganganna og hlutfallslega fleiri ljúka nú framhaldsskólanámi en áður var. Áfram er hlutfall nema með alþjóðlegan bakgrunn sem ekki ljúka námi fyrir 22 ára aldur hátt. Í báðum hópunum hafa þannig meira en helmingur karla í hópi innflytjenda horfið frá námi fyrir 22 ára aldur. Brotthvarf karla frá námi er áberandi meira en meðal kvenna hvort sem litið er til fólks með innlendan eða alþjóðlegan bakgrunn.
Title: Alþjóðlegur bakgrunnur, skólasókn og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum 2001-2021
Description:
Jón Torfi Jónasson hefur á ferli sínum dregið fram hið lítt öfundsverða hlutskipti íslenskra framhaldskólanema sem birtist í miklu brotthvarfi þeirra frá námi.
Í þessari rannsókn er sjónum beint að framhaldsskólasókn, þar sem kannaðar eru líkur á því að nemendur hefji nám að loknum grunnskóla og er þeim svo fylgt til 22 ára aldurs.
Markmiðið er að bera saman framhaldsskólasókn fjögurra árganga (1985–88) sem luku grunnskóla við upphaf 21.
aldar og fjögurra árganga (1995–98) sem luku grunnskóla tíu árum síðar.
Könnuð er framhaldsskólasókn eftir uppruna nemenda, þ.
e.
hvort þeir hafa innlendan eða alþjóðlegan bakgrunn og eftir kyni.
Byggt er á gögnum frá Hagstofu Íslands úr gagnagrunnum um mannfjölda, prófaskrá og nemendaskrá.
Svipmót íslensks samfélags hefur tekið miklum breytingum á þessum tíma og er nú mun alþjóðlegra en það var við upphaf aldarinnar.
Innflytjendum og ungmennum með alþjóðlegan bakgrunn hefur þannig fjölgað í íslenskum skólum og er verulegur munur milli hópanna sem hér eru til skoðunar.
Af þessum ástæðum er mikilvægt og gagnlegt að fylgjast með þróun skólasóknar hjá þessum hópi ungmenna.
Þegar litið er til alls hópsins hefur dregið talsvert úr brotthvarfi frá námi milli eldri og yngri fæðingarárganganna.
Fleiri ungmenni í yngri fæðingarárgöngunum en þeim eldri hefja þannig nám í framhaldsskóla og fleiri ljúka því fyrir 22 ára aldur.
Þetta á bæði við um íslenska nemendur og ungmenni með alþjóðlegan bakgrunn.
Líkur á því að þau sem fædd eru erlendis hefji nám í framhaldsskóla aukast á milli fæðingarárganganna og hlutfallslega fleiri ljúka nú framhaldsskólanámi en áður var.
Áfram er hlutfall nema með alþjóðlegan bakgrunn sem ekki ljúka námi fyrir 22 ára aldur hátt.
Í báðum hópunum hafa þannig meira en helmingur karla í hópi innflytjenda horfið frá námi fyrir 22 ára aldur.
Brotthvarf karla frá námi er áberandi meira en meðal kvenna hvort sem litið er til fólks með innlendan eða alþjóðlegan bakgrunn.

Related Results

Harry Potter, Inc.
Harry Potter, Inc.
Engagement in any capacity with mainstream media since mid-2001 has meant immersion in the cross-platform, multimedia phenomenon of Harry Potter: Muggle outcast; boy wizard; corpor...
Burden of the Beast
Burden of the Beast
Introduction Throughout the COVID-19 pandemic, and its fluctuating waves of infections and the emergence of new variants, Indigenous populations in Australia and worldwide have re...
Conurban
Conurban
Conurbation [f. CON- + L. urb- and urbs city + -ation] An aggregation of urban areas. (OED) Beyond the urban, further and lower even than the suburban, lies th...
Dagleg einkunnagjöf í íslenskum skólum
Dagleg einkunnagjöf í íslenskum skólum
Greinin fylgir eftir rannsókn Lofts Guttormssonar (2007) á svonefndum „daglegum einkunnagjöfum“ í íslenskum barnaskólum, sérstaklega í Reykjavík, áratugina kringum 1900. Samsvarand...
Current Perspectives on Cystic Echinococcosis: A Systematic Review
Current Perspectives on Cystic Echinococcosis: A Systematic Review
Abstract Introduction: Hydatidosis, a zoonotic disease caused by the larval stage of Echinococcus granulosus, is a significant public health concern with notable economic impact. I...
PENGATURAN KEKAYAAN YAYASAN DITINJAU DARI PASAL 6 UNDANG-UNDANG NOMOR 16 TAHUN 2001 TENTANG YAYASAN
PENGATURAN KEKAYAAN YAYASAN DITINJAU DARI PASAL 6 UNDANG-UNDANG NOMOR 16 TAHUN 2001 TENTANG YAYASAN
Undang-Undang tentang Yayasan keberadaannya hingga saat ini menimbulkan kritik dari berbagai kalangan, karena terdapat beberapa pasal yang dianggap berbeda dengan praktek/pelaksana...
Breast Carcinoma within Fibroadenoma: A Systematic Review
Breast Carcinoma within Fibroadenoma: A Systematic Review
Abstract Introduction Fibroadenoma is the most common benign breast lesion; however, it carries a potential risk of malignant transformation. This systematic review provides an ove...
Digital Government in the USA
Digital Government in the USA
Recently, digital government is a prevailing concept in public sectors around the world. Regarding digital governments’ contributions to the democratic administration or democratic...

Back to Top