Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

Tvímælis: Heimspeki menntunar og skólakerfi nútímans

View through CrossRef
Þetta rit er inngangur að heimspeki menntunar. Það inniheldur gagnrýna umfjöllun um hugmyndir sem stundum er gengið að sem gefnum þegar rætt er um skólamál. Þetta eru einkum hugmyndir í þá veru að: Þau sem gera námskrár fyrir skóla þurfi að velja milli þess að leggja áherslu á námsgreinar og þess að hafa barnið í brennidepli eða bæta samfélagið; skólar eigi að þjóna þörfum nemenda sinna eða hagsmunum atvinnulífsins; hægt sé að skipuleggja nám og kennslu sem sókn að námsmarkmiðum eða hæfniviðmiðum; stjórnvöld geti bætt skóla með fyrirmælum að ofan eða með því að skapa hagræna hvata; aukin skólaganga bæti efnahag samfélagsins.Í bókinni eru tólf kaflar og hver þeirra lýsir hugtakalegum ógöngum eða rökum sem vísa í ólíkar áttir. Fyrstu fimm kaflarnir sem og kaflar númer níu og tíu fjalla um efni sem liggja á mörkum heimspeki og námskrárfræða. Kaflar númer sex til átta og kafli ellefu snúast um efni á mörkum menntavísinda og stjórnmálaheimspeki. Tólfti og síðasti kaflinn fjallar um fagmennsku kennara.Hverjum kafla lýkur með spurningum fyrir lesanda. Flestar þessar spurningar snúast um tilgang skóla, skólastefnu og stjórn menntakerfa. Þótt fæstum þeirra sé beinlínis svarað er rökstutt að hugsunarleysi um þær ali af sér afglöp í stjórn og uppbyggingu skólakerfisins
The National and University Library of Iceland
Title: Tvímælis: Heimspeki menntunar og skólakerfi nútímans
Description:
Þetta rit er inngangur að heimspeki menntunar.
Það inniheldur gagnrýna umfjöllun um hugmyndir sem stundum er gengið að sem gefnum þegar rætt er um skólamál.
Þetta eru einkum hugmyndir í þá veru að: Þau sem gera námskrár fyrir skóla þurfi að velja milli þess að leggja áherslu á námsgreinar og þess að hafa barnið í brennidepli eða bæta samfélagið; skólar eigi að þjóna þörfum nemenda sinna eða hagsmunum atvinnulífsins; hægt sé að skipuleggja nám og kennslu sem sókn að námsmarkmiðum eða hæfniviðmiðum; stjórnvöld geti bætt skóla með fyrirmælum að ofan eða með því að skapa hagræna hvata; aukin skólaganga bæti efnahag samfélagsins.
Í bókinni eru tólf kaflar og hver þeirra lýsir hugtakalegum ógöngum eða rökum sem vísa í ólíkar áttir.
Fyrstu fimm kaflarnir sem og kaflar númer níu og tíu fjalla um efni sem liggja á mörkum heimspeki og námskrárfræða.
Kaflar númer sex til átta og kafli ellefu snúast um efni á mörkum menntavísinda og stjórnmálaheimspeki.
Tólfti og síðasti kaflinn fjallar um fagmennsku kennara.
Hverjum kafla lýkur með spurningum fyrir lesanda.
Flestar þessar spurningar snúast um tilgang skóla, skólastefnu og stjórn menntakerfa.
Þótt fæstum þeirra sé beinlínis svarað er rökstutt að hugsunarleysi um þær ali af sér afglöp í stjórn og uppbyggingu skólakerfisins.

Related Results

Er syndin náttúruleg? Um mikilvægi heimsmynda og uppsprettu gilda
Er syndin náttúruleg? Um mikilvægi heimsmynda og uppsprettu gilda
Eins og kunnugt er blasir við okkur alvarlegur umhverfisvandi sem ógnar lífi á jörðinni. Framferði mannsins á þar stærstan hlut að máli. Á líkingamáli má segja að orðið hafi misgen...
Sameiginlegir leikheimar barna og leikskólakennar
Sameiginlegir leikheimar barna og leikskólakennar
Í þessari grein er fjallað um rannsókn sem hafði að markmiði að varpa ljósi á sameiginlega leikheima barna og leikskólakennara í fjórum leikskólum á Íslandi. Leikur hefur lengi ver...
Menningarmiðaðar kennsluaðferðir
Menningarmiðaðar kennsluaðferðir
Aukinn fjölbreytileiki í íslenskum grunnskólum skapar mörg tækifæri fyrir kennara til þess að nýta menningu, reynslu og tungumál nemenda í kennslu. Menningarmiðaðar kennsluaðferðir...

Back to Top