Javascript must be enabled to continue!
Er syndin náttúruleg? Um mikilvægi heimsmynda og uppsprettu gilda
View through CrossRef
Eins og kunnugt er blasir við okkur alvarlegur umhverfisvandi sem ógnar lífi á jörðinni. Framferði mannsins á þar stærstan hlut að máli. Á líkingamáli má segja að orðið hafi misgengi milli viðhorfa okkar, siðferðis og lífshátta annars vegar og náttúrunnar hins vegar. Maðurinn hefur í krafti hraðvaxandi tæknilegrar getu sinnar og valds sagt sig úr lögum við vistkerfi jarðarinnar og farið að drottna yfir því og nýta sér á mjög óvarlegan hátt. Með því vinnur hann gegn viðgangi náttúrunnar sem hann er þó órjúfanlega samofinn. Í þessu birtist áðurnefnt misgengi. Í ritgerð þessari er leitast við að greina og leita skilnings á þessari stöðu, orsökum hennar og afleiðingum sem og úrræðum við vandanum. Nálgunin er þverfagleg og niðurstöður vísinda og fræða eru skoðaðar samhliða áhrifum siðmenningar og gildismats. Í þessu skyni er stuðst við leiðir líffræði og heimspeki, ekki síst líftáknfræði og siðfræði, og bent á órofa samspil þessara greina. Niðurstaðan er sú að menningu okkar, þekkingu og vitund verði að samstilla betur hinni náttúrulegu skipan, í þágu fjölbreytni og skapandi framvindu lífs á jörðinni. Í ferlum náttúrunnar liggi rætur þeirra gilda og merkingar sem gera tilveru okkar og annarra lífvera í senn mögulega og verðuga. Að þeim rótum þarf maðurinn að hlúa mun betur og tengjast; víkja af vegi drottnunar gagnvart náttúrunni og laga viðhorf og lifnaðarhætti sína að þeim breytta veruleika.
Title: Er syndin náttúruleg? Um mikilvægi heimsmynda og uppsprettu gilda
Description:
Eins og kunnugt er blasir við okkur alvarlegur umhverfisvandi sem ógnar lífi á jörðinni.
Framferði mannsins á þar stærstan hlut að máli.
Á líkingamáli má segja að orðið hafi misgengi milli viðhorfa okkar, siðferðis og lífshátta annars vegar og náttúrunnar hins vegar.
Maðurinn hefur í krafti hraðvaxandi tæknilegrar getu sinnar og valds sagt sig úr lögum við vistkerfi jarðarinnar og farið að drottna yfir því og nýta sér á mjög óvarlegan hátt.
Með því vinnur hann gegn viðgangi náttúrunnar sem hann er þó órjúfanlega samofinn.
Í þessu birtist áðurnefnt misgengi.
Í ritgerð þessari er leitast við að greina og leita skilnings á þessari stöðu, orsökum hennar og afleiðingum sem og úrræðum við vandanum.
Nálgunin er þverfagleg og niðurstöður vísinda og fræða eru skoðaðar samhliða áhrifum siðmenningar og gildismats.
Í þessu skyni er stuðst við leiðir líffræði og heimspeki, ekki síst líftáknfræði og siðfræði, og bent á órofa samspil þessara greina.
Niðurstaðan er sú að menningu okkar, þekkingu og vitund verði að samstilla betur hinni náttúrulegu skipan, í þágu fjölbreytni og skapandi framvindu lífs á jörðinni.
Í ferlum náttúrunnar liggi rætur þeirra gilda og merkingar sem gera tilveru okkar og annarra lífvera í senn mögulega og verðuga.
Að þeim rótum þarf maðurinn að hlúa mun betur og tengjast; víkja af vegi drottnunar gagnvart náttúrunni og laga viðhorf og lifnaðarhætti sína að þeim breytta veruleika.
Related Results
Gilda de Mello e Souza
Gilda de Mello e Souza
Os quatro ensaios que compõem este livro procuram dar conta do que se poderia chamar de “método” do ensaísmo crítico de Gilda de Mello e Souza. Muito embora a nota específica de su...
Aproximações entre a “atividade fenomenológica” de Gilda de Mello e Souzae o “método” de Aby Warburg / Approximations between the “phenomenological activity” of Gilda de Mello e Souza and the “method” of Aby Warburg
Aproximações entre a “atividade fenomenológica” de Gilda de Mello e Souzae o “método” de Aby Warburg / Approximations between the “phenomenological activity” of Gilda de Mello e Souza and the “method” of Aby Warburg
Neste ensaio sugerimos que a análise iconológica desempenhada por Gilda deMello e Souza (1919-2005), a qual privilegia os objetos particulares e a valorização dos detalhes, se apro...
Jorge de Sena por Gilda Santos
Jorge de Sena por Gilda Santos
Entrevista com a Professora Doutora Gilda Santos (UFRJ/Polo de Pesquisas Luso-Brasileiras) realizada em 5 de Dezembro de 2019, no Real Gabinete Português de Leitura – em razão do c...
Documentary survey on the life and mural painting works of Brazilian artist Gilda Neuberger (1911-2011)
Documentary survey on the life and mural painting works of Brazilian artist Gilda Neuberger (1911-2011)
Gilda Gelmini Neuberger (1911-2011), with a career spanning more than 60 years, was one of the rare artists to produce frescoes in Brazil during the 20th century. She was probably ...
Imaginário coletivo sob as palafitas do dique da Vila Gilda
Imaginário coletivo sob as palafitas do dique da Vila Gilda
A pesquisa tem como objetivo identificar os principais elementos que compõem o imaginário coletivo dos moradores do Dique da Vila Gilda - a maior favela de palafitas da América Lat...
Hvaða augum líta börn leikskólakennara? Hlutverk og miðlun gilda í leikskólum
Hvaða augum líta börn leikskólakennara? Hlutverk og miðlun gilda í leikskólum
Greinin byggir á tveimur rannsóknum þar sem leitað var eftir hugmyndum barna um hlutverk og ábyrgð leikskólakennara. Þannig var reynt að skilja þau ómeðvituðu og meðvituðu gildi se...
Ný tegund sæsnigils í Atlantshafi
Ný tegund sæsnigils í Atlantshafi
Sumarið 2020 varð vart við óþekkta eggjasekki í fjöru í Fossvogi. Árið 2021 sáust sams konar eggjasekkir í fjöru í Sandgerði og árið 2022 í Breiðafirði. Í ágúst 2023 var leitað í f...

