Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

Menntun eða úrræði?

View through CrossRef
Þessi grein sprettur upp úr heildarendurskoðun á framhaldsfræðslukerfinu hér á Íslandi sem hófst í janúar 2023. Skoðað er hvernig stjórnvöld á Íslandi hafa skilgreint markmið fullorðinsfræðslu í frumvörpum sínum og lögum allt frá 1974. Í framhaldi af því er rýnt í framtíðarsýn UNESCO, OECD og íslenskra stjórnvalda varðandi menntun fullorðinna og að lokum velt upp hvernig má nýta þessar greiningar og stefnuskjöl til markvissrar endurskoðunar á gildandi lögum um framhaldsfræðslu (nr. 27/2010) sem unnið er að um þessar mundir. Greining frumvarpanna leiðir í ljós að hugmyndafræði almennrar menntunar með víða skírskotun til fjölbreyttrar menntunar fyrir alla hefur æ meir vikið fyrir aukinni tæknihyggju og skólahyggju sem beinist fyrst og fremst að þröngum hópi fullorðinna einstaklinga með stutta skólagöngu að baki. Einnig kemur fram að núverandi lög um framhaldsfræðslu ná ekki að takast á við þær áskoranir og þrástef sem koma fram í fjölþjóðlegum framtíðarstefnuskjölum OECD og UNESCO. Greinin endar á því að leggja fram tillögur um inntak markmiðsgreinar þar sem gætt er að jafnvægi milli ólíkra þátta og að þróa markmið sem eiga rætur sínar í almennri menntun, skólahyggju og tæknihyggju og efla fólk til samfélagslegrar, borgaralegrar og atvinnutengdrar þátttöku. Auk þess er lögð áhersla á að tekið verði tillit til framtíðaráskorana sem eru þrástef í fjölþjóðlegum stefnuskjölum og fundið aukið jafnvægi milli áherslunnar á opinbert líf og einkalíf í inntaki námsins.
The National and University Library of Iceland
Title: Menntun eða úrræði?
Description:
Þessi grein sprettur upp úr heildarendurskoðun á framhaldsfræðslukerfinu hér á Íslandi sem hófst í janúar 2023.
Skoðað er hvernig stjórnvöld á Íslandi hafa skilgreint markmið fullorðinsfræðslu í frumvörpum sínum og lögum allt frá 1974.
Í framhaldi af því er rýnt í framtíðarsýn UNESCO, OECD og íslenskra stjórnvalda varðandi menntun fullorðinna og að lokum velt upp hvernig má nýta þessar greiningar og stefnuskjöl til markvissrar endurskoðunar á gildandi lögum um framhaldsfræðslu (nr.
27/2010) sem unnið er að um þessar mundir.
Greining frumvarpanna leiðir í ljós að hugmyndafræði almennrar menntunar með víða skírskotun til fjölbreyttrar menntunar fyrir alla hefur æ meir vikið fyrir aukinni tæknihyggju og skólahyggju sem beinist fyrst og fremst að þröngum hópi fullorðinna einstaklinga með stutta skólagöngu að baki.
Einnig kemur fram að núverandi lög um framhaldsfræðslu ná ekki að takast á við þær áskoranir og þrástef sem koma fram í fjölþjóðlegum framtíðarstefnuskjölum OECD og UNESCO.
Greinin endar á því að leggja fram tillögur um inntak markmiðsgreinar þar sem gætt er að jafnvægi milli ólíkra þátta og að þróa markmið sem eiga rætur sínar í almennri menntun, skólahyggju og tæknihyggju og efla fólk til samfélagslegrar, borgaralegrar og atvinnutengdrar þátttöku.
Auk þess er lögð áhersla á að tekið verði tillit til framtíðaráskorana sem eru þrástef í fjölþjóðlegum stefnuskjölum og fundið aukið jafnvægi milli áherslunnar á opinbert líf og einkalíf í inntaki námsins.

Related Results

Krefjandi lífsreynsla og flókin sorg: Að lifa af sjálfsvíg dóttur eða sonar
Krefjandi lífsreynsla og flókin sorg: Að lifa af sjálfsvíg dóttur eða sonar
Tilgangur Sjálfsvíg eru alþjóðlegt heilbrigðisvandamál og fjórða algengasta dánarorsökin í aldurshópnum 15–29 ára. Reynsla foreldra af því að missa son eða dóttur í sjálfsvígi hefu...
Tvímælis: Heimspeki menntunar og skólakerfi nútímans
Tvímælis: Heimspeki menntunar og skólakerfi nútímans
Þetta rit er inngangur að heimspeki menntunar. Það inniheldur gagnrýna umfjöllun um hugmyndir sem stundum er gengið að sem gefnum þegar rætt er um skólamál. Þetta eru einkum hugmyn...
Eldra fólk sem kom á bráðamóttöku og var vísað á greiningarmóttöku öldrunarlækningadeildar Landspítala árin 2016-2018: heilsufar og afdrif
Eldra fólk sem kom á bráðamóttöku og var vísað á greiningarmóttöku öldrunarlækningadeildar Landspítala árin 2016-2018: heilsufar og afdrif
Tilgangur Með fjölgun aldraðra á komandi árum er líklegt að þeim fjölgi sem eru fjölveikir, með skerta færni eða hrumleika. Því verður aukin þörf fyrir sérhæfða heilbrigðisþjónustu...
Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni
Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni
Bakgrunnur Öldruðum kemur til með að fjölga hratt á næstu áratugum ef mannfjöldaspár ganga eftir. Með fjölgun í hópi eldra fólks má áætla aukið álag á heilbrigðiskerfið. Næringarás...
Sératkvæði dómara
Sératkvæði dómara
Í fjölskipuðum dómi má gera ráð fyrir því að dómarar séu ekki alltaf á einu máli um niðurstöðu eða rökstuðning fyrir henni. Í íslenskri réttarfarslöggjöf er almennt gert ráð fyrir ...
Stafræn tækni í leikskólastarfi: Sjónarhorn frumkvöðla
Stafræn tækni í leikskólastarfi: Sjónarhorn frumkvöðla
Snjalltækni hefur orðið hluti af daglegu lífi fólks og sífellt yngri börn hafa greiðari aðgang að henni. Skólar hafa væðst þessari nýju tækni og henni er ætlað að vera hluti af sta...
Ættmæði og peysuperrar – athugun á innsendum orðum á Nýyrðavefnum
Ættmæði og peysuperrar – athugun á innsendum orðum á Nýyrðavefnum
Greinin fjallar um Nýyrðavef Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum sem er vettvangur þar sem notendur geta lagt fram ný orð sem þeir hafa tekið eftir í samfélaginu eða búið...
The Devil’s in the Detail: Diabolical names in the Icelandic place-name record
The Devil’s in the Detail: Diabolical names in the Icelandic place-name record
Í þessari grein eru íslensk örnefni sem tengjast djöflinum eða öðrum bölvættum tekin saman og greind. Aðalfrumheimildir eru örnefnalýsingar frá 20. öld sem nú eru leitarbærar og að...

Back to Top