Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

Þróun leikskóla á Íslandi: Samtal við skrif Jóns Torfa Jónassonar

View through CrossRef
Árið 2006 gaf dr. Jón Torfi Jónasson, prófessor út bókina Frá gæslu til skóla: Um þróun leikskóla á Íslandi. Þar greindi hann þróun leikskólastigsins frá mörgum ólíkum sjónarhornum, fjallaði m.a. um stöðugleika orðræðunnar um leikskóla og um hvað umræður og deilur um leikskólastarf snerust. Í ritinu er farið yfir sögu leikskólans á Íslandi, formleg umgjörð hans og starfshættir skoðuð sem og menntun leikskólakennara. Þá fjallaði höfundur sérstaklega um bæði bóknámsrek og kerfisrek í skólakerfinu. Í þessari grein verður litið til baka og nokkur þeirra álitaefna sem Jón Torfi veltir upp skoðuð nú 16 árum síðar. Spurt er: Hvað hefur gerst í málefnum leikskólans á hálfum öðrum áratug? Á hvaða vegferð er íslenski leikskólinn? Sjónum er annars vegar beint að ytri áhrifaþáttum, svo sem samfélagsbreytingum liðinna ára, breytingum á leikskólakennaramenntuninni og opinberri stefnumótun í málefnum leikskólans. Hins vegar er litið til innra starfs leikskólans og leitast við að greina þau áhrif sem stefnumótunin hefur haft eða ekki haft á starfshætti leikskólans. Fjallað er um leikskólann sem gæslu eða skóla og færð rök fyrir að í leikskólum fari fram hvort tveggja; nám og umönnun. Bóknámsrek í leikskólum landsins er til umfjöllunar og velt vöngum yfir ástæðum þess að samfellt nám barna hefur ekki orðið að veruleika. Loks eru þær breytingar sem orðið hafa á viðhorfum til barna í kjölfar Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins reifaðar. Notuð var skjalagreining og farið yfir opinber gögn um leikskólann á liðnum 16 árum. Meginniðurstaða greinarinnar er að sú þróun sem orðið hefur varðandi ytri umgjörð og innra starf íslenska leikskólans sé um margt til fyrirmyndar. Hins vegar virðast vera teikn á lofti um ósamræmi milli opinberrar stefnu og starfshátta sem benda til þess að huga þurfi betur að innleiðingu og eftirfylgni stefnumótunar.
The National and University Library of Iceland
Title: Þróun leikskóla á Íslandi: Samtal við skrif Jóns Torfa Jónassonar
Description:
Árið 2006 gaf dr.
Jón Torfi Jónasson, prófessor út bókina Frá gæslu til skóla: Um þróun leikskóla á Íslandi.
Þar greindi hann þróun leikskólastigsins frá mörgum ólíkum sjónarhornum, fjallaði m.
a.
um stöðugleika orðræðunnar um leikskóla og um hvað umræður og deilur um leikskólastarf snerust.
Í ritinu er farið yfir sögu leikskólans á Íslandi, formleg umgjörð hans og starfshættir skoðuð sem og menntun leikskólakennara.
Þá fjallaði höfundur sérstaklega um bæði bóknámsrek og kerfisrek í skólakerfinu.
Í þessari grein verður litið til baka og nokkur þeirra álitaefna sem Jón Torfi veltir upp skoðuð nú 16 árum síðar.
Spurt er: Hvað hefur gerst í málefnum leikskólans á hálfum öðrum áratug? Á hvaða vegferð er íslenski leikskólinn? Sjónum er annars vegar beint að ytri áhrifaþáttum, svo sem samfélagsbreytingum liðinna ára, breytingum á leikskólakennaramenntuninni og opinberri stefnumótun í málefnum leikskólans.
Hins vegar er litið til innra starfs leikskólans og leitast við að greina þau áhrif sem stefnumótunin hefur haft eða ekki haft á starfshætti leikskólans.
Fjallað er um leikskólann sem gæslu eða skóla og færð rök fyrir að í leikskólum fari fram hvort tveggja; nám og umönnun.
Bóknámsrek í leikskólum landsins er til umfjöllunar og velt vöngum yfir ástæðum þess að samfellt nám barna hefur ekki orðið að veruleika.
Loks eru þær breytingar sem orðið hafa á viðhorfum til barna í kjölfar Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins reifaðar.
Notuð var skjalagreining og farið yfir opinber gögn um leikskólann á liðnum 16 árum.
Meginniðurstaða greinarinnar er að sú þróun sem orðið hefur varðandi ytri umgjörð og innra starf íslenska leikskólans sé um margt til fyrirmyndar.
Hins vegar virðast vera teikn á lofti um ósamræmi milli opinberrar stefnu og starfshátta sem benda til þess að huga þurfi betur að innleiðingu og eftirfylgni stefnumótunar.

Related Results

Stafræn tækni í leikskólastarfi: Sjónarhorn frumkvöðla
Stafræn tækni í leikskólastarfi: Sjónarhorn frumkvöðla
Snjalltækni hefur orðið hluti af daglegu lífi fólks og sífellt yngri börn hafa greiðari aðgang að henni. Skólar hafa væðst þessari nýju tækni og henni er ætlað að vera hluti af sta...
Eysteinn Tryggvason – minning (in memoriam)
Eysteinn Tryggvason – minning (in memoriam)
Eysteinn Tryggvason jarðeðlisfræðingur lést 11. janúar 2021, í hárri elli. Hann fæddist á Litlulaugum í Reykjadal 19. júlí 1924 og ólst þar upp í stórum systkinahópi. Foreldrar han...
Existentiella samtal inom hälso- och sjukvård: Kuratorers erfarenheter av samtal om döden
Existentiella samtal inom hälso- och sjukvård: Kuratorers erfarenheter av samtal om döden
Syftet med denna studie var att undersöka kuratorers erfarenheter av samtal om döden med patienter och närstående, vilka faktorer som hindrar respektive underlättar för dessa samta...
Ósýnileiki barna sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi í fylgd foreldra
Ósýnileiki barna sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi í fylgd foreldra
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) áætlar að á árinu 2017 hafi um 68,5 milljónir einstaklinga verið á flótta, þar af sé rúmlega helmingur börn (UNHCR, 2018). Umsækjandi ...
Sköpunarsmiðjur í þremur grunnskólum: Þróunarverkefni á góðri siglingu
Sköpunarsmiðjur í þremur grunnskólum: Þróunarverkefni á góðri siglingu
Þrír grunnskólar austast og vestast í Reykjavík; Ingunnarskóli, Selásskóli og Vesturbæjarskóli, standa að þróunarstarfi um innleiðingu á sköpunarsmiðjum (e. makerspaces). Þar er ka...
Sameiginlegir leikheimar barna og leikskólakennar
Sameiginlegir leikheimar barna og leikskólakennar
Í þessari grein er fjallað um rannsókn sem hafði að markmiði að varpa ljósi á sameiginlega leikheima barna og leikskólakennara í fjórum leikskólum á Íslandi. Leikur hefur lengi ver...
Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
Árið 2016 tók Ísland á móti hópi sýrlenskra kvótaflóttamanna í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Í þessari eigindlegu rannsókn er upplifun hluta þessa hóps, kenn...
Traust og samvinna um skapandi skólastarf í opnu og sveigjanlegu námsumhverfi
Traust og samvinna um skapandi skólastarf í opnu og sveigjanlegu námsumhverfi
Greinin sem hér fer á eftir og rannsóknin sem þar er lýst beinast að viðburðaríkum starfsferli og um margt einstæðri reynslu Margrétar Einarsdóttur grunnskólakennara og skólastjóra...

Back to Top