Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

Ósýnileiki barna sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi í fylgd foreldra

View through CrossRef
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) áætlar að á árinu 2017 hafi um 68,5 milljónir einstaklinga verið á flótta, þar af sé rúmlega helmingur börn (UNHCR, 2018). Umsækjandi um alþjóðlega vernd er hver sá sem hefur flúið heimaríki sitt og sótt um að fá viðurkennda stöðu flóttamanns og dvalarleyfi hjá stjórnvöldum annars ríkis (Rauði krossinn, e.d.). Mikil aukning hefur orðið á slíkum umsóknum á Íslandi undanfarið og er nokkur fjöldi barnafjölskyldna þar á meðal. Árið 2015 voru 79 börn á meðal umsækjenda um alþjóðlega vernd, 249 börn ári seinna (Útlendingastofnun, 2017) og 156 börn árið 2017 (Útlendingastofnun, 2018). Árið 2018 voru 166 börn meðal umsækjenda (Útlendingastofnun, 2019) en þessar tölur eiga við um börn sem leitað hafa alþjóðlegrar verndar í fylgd með foreldrum sínum eða forráðamönnum. Þann 1. janúar 2017 tóku gildi ný lög á Íslandi um útlendinga, nr. 80/2016, þar sem lögð er aukin áhersla á sjálfstæð réttindi barna miðað við fyrri lög um útlendinga nr. 96/2002. Helsta réttarfarsbótin er í 25. grein laganna en þar kemur fram að „barni sem getur myndað eigin skoðanir skal tryggður réttur til að tjá sig í máli sem það varðar og skal tekið tillit til skoðana þess í samræmi við aldur og þroska“ (Lög um útlendinga nr. 80/2016). Að auki er réttarstaða fylgdarlausra barna skýrð og komið er á rétti til fjölskyldusameiningar fyrir fylgdarlaus börn sem hafa fengið vernd. Tekið er fram að bestu hagsmunir barnsins skulu alltaf hafðir að leiðarljósi en ekki hafa verið sett upp viðmið um hvernig meta skuli hagsmuni barna. Mikilvægt er að huga að réttindum barna sem sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi í fylgd foreldra og að rödd þeirra heyrist og að á þau sé hlustað. Markmið rannsóknarinnar er að lýsa og greina hvernig börn og foreldrar upplifa umsóknarferlið um alþjóðlega vernd hér á landi og áhrif þessarar reynslu á sálfélagslega vellíðan þeirra. Uppfyllir umsóknarferlið ákvæði um réttindi barna í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna? Ef ekki, að hvaða leyti er Barnasáttmálinn ekki uppfylltur? Fyrst er gerð grein fyrir stöðu barnafræða (e. childhood studies) og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með sérstöku tilliti til stöðu barna sem sækja um alþjóðlega vernd. Þá er aðferðafræðin kynnt og gerð grein fyrir niðurstöðum. Loks er staða barnanna skoðuð í alþjóðlegu samhengi og niðurstöður dregnar saman í lokaorðum.
Title: Ósýnileiki barna sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi í fylgd foreldra
Description:
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) áætlar að á árinu 2017 hafi um 68,5 milljónir einstaklinga verið á flótta, þar af sé rúmlega helmingur börn (UNHCR, 2018).
Umsækjandi um alþjóðlega vernd er hver sá sem hefur flúið heimaríki sitt og sótt um að fá viðurkennda stöðu flóttamanns og dvalarleyfi hjá stjórnvöldum annars ríkis (Rauði krossinn, e.
d.
).
Mikil aukning hefur orðið á slíkum umsóknum á Íslandi undanfarið og er nokkur fjöldi barnafjölskyldna þar á meðal.
Árið 2015 voru 79 börn á meðal umsækjenda um alþjóðlega vernd, 249 börn ári seinna (Útlendingastofnun, 2017) og 156 börn árið 2017 (Útlendingastofnun, 2018).
Árið 2018 voru 166 börn meðal umsækjenda (Útlendingastofnun, 2019) en þessar tölur eiga við um börn sem leitað hafa alþjóðlegrar verndar í fylgd með foreldrum sínum eða forráðamönnum.
Þann 1.
janúar 2017 tóku gildi ný lög á Íslandi um útlendinga, nr.
80/2016, þar sem lögð er aukin áhersla á sjálfstæð réttindi barna miðað við fyrri lög um útlendinga nr.
96/2002.
Helsta réttarfarsbótin er í 25.
grein laganna en þar kemur fram að „barni sem getur myndað eigin skoðanir skal tryggður réttur til að tjá sig í máli sem það varðar og skal tekið tillit til skoðana þess í samræmi við aldur og þroska“ (Lög um útlendinga nr.
80/2016).
Að auki er réttarstaða fylgdarlausra barna skýrð og komið er á rétti til fjölskyldusameiningar fyrir fylgdarlaus börn sem hafa fengið vernd.
Tekið er fram að bestu hagsmunir barnsins skulu alltaf hafðir að leiðarljósi en ekki hafa verið sett upp viðmið um hvernig meta skuli hagsmuni barna.
Mikilvægt er að huga að réttindum barna sem sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi í fylgd foreldra og að rödd þeirra heyrist og að á þau sé hlustað.
Markmið rannsóknarinnar er að lýsa og greina hvernig börn og foreldrar upplifa umsóknarferlið um alþjóðlega vernd hér á landi og áhrif þessarar reynslu á sálfélagslega vellíðan þeirra.
Uppfyllir umsóknarferlið ákvæði um réttindi barna í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna? Ef ekki, að hvaða leyti er Barnasáttmálinn ekki uppfylltur? Fyrst er gerð grein fyrir stöðu barnafræða (e.
childhood studies) og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með sérstöku tilliti til stöðu barna sem sækja um alþjóðlega vernd.
Þá er aðferðafræðin kynnt og gerð grein fyrir niðurstöðum.
Loks er staða barnanna skoðuð í alþjóðlegu samhengi og niðurstöður dregnar saman í lokaorðum.

Related Results

Sameiginlegir leikheimar barna og leikskólakennar
Sameiginlegir leikheimar barna og leikskólakennar
Í þessari grein er fjallað um rannsókn sem hafði að markmiði að varpa ljósi á sameiginlega leikheima barna og leikskólakennara í fjórum leikskólum á Íslandi. Leikur hefur lengi ver...
Upplifun barna af leikskóladvöl „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf“
Upplifun barna af leikskóladvöl „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf“
Klukkan mótar starfshætti í leikskólum og stýrir tíma barna í daglegu starfi. Áhrif tímans á leikskólastarf og skipulag þess eru töluverð og er upplifun barna á tíma ekki sú sama o...
Krefjandi lífsreynsla og flókin sorg: Að lifa af sjálfsvíg dóttur eða sonar
Krefjandi lífsreynsla og flókin sorg: Að lifa af sjálfsvíg dóttur eða sonar
Tilgangur Sjálfsvíg eru alþjóðlegt heilbrigðisvandamál og fjórða algengasta dánarorsökin í aldurshópnum 15–29 ára. Reynsla foreldra af því að missa son eða dóttur í sjálfsvígi hefu...
Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
Árið 2016 tók Ísland á móti hópi sýrlenskra kvótaflóttamanna í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Í þessari eigindlegu rannsókn er upplifun hluta þessa hóps, kenn...
Hvaða augum líta börn leikskólakennara? Hlutverk og miðlun gilda í leikskólum
Hvaða augum líta börn leikskólakennara? Hlutverk og miðlun gilda í leikskólum
Greinin byggir á tveimur rannsóknum þar sem leitað var eftir hugmyndum barna um hlutverk og ábyrgð leikskólakennara. Þannig var reynt að skilja þau ómeðvituðu og meðvituðu gildi se...
Draumaskólinn
Draumaskólinn
Virk þátttaka barna í samfélagi er ein leið til farsældar þeirra og því er það helsta verkefni menntakerfisins að tryggja öllum börnum hlutdeild í samfélagi jafnaldra. Greinin fjal...
Foreldraútilokun, reynsla útsettra foreldra í Tyrklandi
Foreldraútilokun, reynsla útsettra foreldra í Tyrklandi
Markmið rannsóknarinnar var að kanna reynslu útsettra foreldra í Tyrklandi af þeim útilokandi aðferðum sem notaðar voru til að útiloka þá frá barni sínu. Rannsóknin kannaði einnig ...
Þróun leikskóla á Íslandi: Samtal við skrif Jóns Torfa Jónassonar
Þróun leikskóla á Íslandi: Samtal við skrif Jóns Torfa Jónassonar
Árið 2006 gaf dr. Jón Torfi Jónasson, prófessor út bókina Frá gæslu til skóla: Um þróun leikskóla á Íslandi. Þar greindi hann þróun leikskólastigsins frá mörgum ólíkum sjónarhornum...

Back to Top