Javascript must be enabled to continue!
Sameiginlegir leikheimar barna og leikskólakennar
View through CrossRef
Í þessari grein er fjallað um rannsókn sem hafði að markmiði að varpa ljósi á sameiginlega leikheima barna og leikskólakennara í fjórum leikskólum á Íslandi. Leikur hefur lengi verið álitinn helsta námsleið ungra barna og er talinn grundvallarréttur barna samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (1992). Með þeim breytingum sem gerðar voru árið 2023 á Aðalnámskrá leikskóla (Miðstöð menntunar og skólaþjónustu [MMS], e.d.) er lögð aukin áhersla á sjálfsprottinn leik barna og þátttöku kennara í leiknum. Í greininni er fjallað um hvernig leikur á að byggja á áhugasviði barna og á hvaða hátt kennarar geta tekið þátt í leik. Rannsóknarverkefnið Leikheimar var þróað í fjórum leikskólum í Reykjavík út frá sameiginlegum sögum og áhuga barna og kennara í samstarfi við fjóra leikskóla í Stokkhólmi. Fræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar byggir meðal annars á kenningum Vygotsky (1987, 2004) um samspil kennara og barna í leik og á hugmyndum Lindqvist (1998) um sameiginlega leikheima barna og kennara. Lögð er áhersla á hlutverka- og ímyndunarleik barna sem leið til náms og þroska. Rannsóknin var tilviksrannsókn þar sem fjögur leiktilvik frá fjórum leikskólum voru skoðuð. Gagnasöfnun fól í sér frásagnir kennara af leikstundum, rýnihópaviðtöl við stjórnendur og reglulegar skráningar rannsakanda. Niðurstöður sýna að kennarar eru tvístígandi í innkomu sinni í leik barna og að börn bjóða þeim sjaldan að taka þátt í leik. Þegar kennarar taka þátt í leik barnanna þarf að gæta þess að leikurinn sé á forsendum barna til að hann verði sjálfsprottinn og skapandi. Vísbendingar eru um að þátttaka kennara í leik barna geti breytt samskiptum, eflt leik barna og aukið gleði og vellíðan. Jafnframt eru dregnar ályktanir um hvernig kennarar og leikskólastjórar geta stutt við leikmenningu í leikskólum.
Title: Sameiginlegir leikheimar barna og leikskólakennar
Description:
Í þessari grein er fjallað um rannsókn sem hafði að markmiði að varpa ljósi á sameiginlega leikheima barna og leikskólakennara í fjórum leikskólum á Íslandi.
Leikur hefur lengi verið álitinn helsta námsleið ungra barna og er talinn grundvallarréttur barna samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (1992).
Með þeim breytingum sem gerðar voru árið 2023 á Aðalnámskrá leikskóla (Miðstöð menntunar og skólaþjónustu [MMS], e.
d.
) er lögð aukin áhersla á sjálfsprottinn leik barna og þátttöku kennara í leiknum.
Í greininni er fjallað um hvernig leikur á að byggja á áhugasviði barna og á hvaða hátt kennarar geta tekið þátt í leik.
Rannsóknarverkefnið Leikheimar var þróað í fjórum leikskólum í Reykjavík út frá sameiginlegum sögum og áhuga barna og kennara í samstarfi við fjóra leikskóla í Stokkhólmi.
Fræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar byggir meðal annars á kenningum Vygotsky (1987, 2004) um samspil kennara og barna í leik og á hugmyndum Lindqvist (1998) um sameiginlega leikheima barna og kennara.
Lögð er áhersla á hlutverka- og ímyndunarleik barna sem leið til náms og þroska.
Rannsóknin var tilviksrannsókn þar sem fjögur leiktilvik frá fjórum leikskólum voru skoðuð.
Gagnasöfnun fól í sér frásagnir kennara af leikstundum, rýnihópaviðtöl við stjórnendur og reglulegar skráningar rannsakanda.
Niðurstöður sýna að kennarar eru tvístígandi í innkomu sinni í leik barna og að börn bjóða þeim sjaldan að taka þátt í leik.
Þegar kennarar taka þátt í leik barnanna þarf að gæta þess að leikurinn sé á forsendum barna til að hann verði sjálfsprottinn og skapandi.
Vísbendingar eru um að þátttaka kennara í leik barna geti breytt samskiptum, eflt leik barna og aukið gleði og vellíðan.
Jafnframt eru dregnar ályktanir um hvernig kennarar og leikskólastjórar geta stutt við leikmenningu í leikskólum.
Related Results
Upplifun barna af leikskóladvöl „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf“
Upplifun barna af leikskóladvöl „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf“
Klukkan mótar starfshætti í leikskólum og stýrir tíma barna í daglegu starfi. Áhrif tímans á leikskólastarf og skipulag þess eru töluverð og er upplifun barna á tíma ekki sú sama o...
Hvaða augum líta börn leikskólakennara? Hlutverk og miðlun gilda í leikskólum
Hvaða augum líta börn leikskólakennara? Hlutverk og miðlun gilda í leikskólum
Greinin byggir á tveimur rannsóknum þar sem leitað var eftir hugmyndum barna um hlutverk og ábyrgð leikskólakennara. Þannig var reynt að skilja þau ómeðvituðu og meðvituðu gildi se...
Afrina barna-like Virus, a Novel Virus Associated with Afrina sporoboliae, the Drop Seed Gall-Forming Nematode
Afrina barna-like Virus, a Novel Virus Associated with Afrina sporoboliae, the Drop Seed Gall-Forming Nematode
A novel barna-like virus was found to be associated with field-collected Afrina sporoboliae plant-parasitic nematodes. The positive-sense, single-stranded RNA genome of this virus,...
Draumaskólinn
Draumaskólinn
Virk þátttaka barna í samfélagi er ein leið til farsældar þeirra og því er það helsta verkefni menntakerfisins að tryggja öllum börnum hlutdeild í samfélagi jafnaldra. Greinin fjal...
Ósýnileiki barna sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi í fylgd foreldra
Ósýnileiki barna sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi í fylgd foreldra
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) áætlar að á árinu 2017 hafi um 68,5 milljónir einstaklinga verið á flótta, þar af sé rúmlega helmingur börn (UNHCR, 2018). Umsækjandi ...
Evaluation of Economically Important Cultivars of Seed Potato for Minituber Production
Evaluation of Economically Important Cultivars of Seed Potato for Minituber Production
Experiments were conducted to evaluate mass production of potato minitubers by using in vitro produced plants and sprout cuttings under Gilgit Baltistan conditions. The experiments...
Beskrivelse og vurdering av tiltaket: Barneperspektivsamtalen
Beskrivelse og vurdering av tiltaket: Barneperspektivsamtalen
Innledning: Barneperspektivsamtalen er et lavterskel helsefremmende tiltak for barn av foreldre med psykisk sykdom og/eller rusmiddelmisbruk. Det overordnede målet med tiltaket er ...
Beskrivelse og vurdering av tiltaket: Mestringsgruppe
Beskrivelse og vurdering av tiltaket: Mestringsgruppe
Innledning: Mestringsgrupper er et helsefremmende og forebyggende tiltak for barn av foreldre med psykisk sykdom og/eller rusmiddelmisbruk. Tiltaket er samtalegrupper for barn og u...

