Javascript must be enabled to continue!
Upplifun barna af leikskóladvöl „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf“
View through CrossRef
Klukkan mótar starfshætti í leikskólum og stýrir tíma barna í daglegu starfi. Áhrif tímans á leikskólastarf og skipulag þess eru töluverð og er upplifun barna á tíma ekki sú sama og fullorðinna. Klukkan hefur áhrif á barnahópinn og tengist fagmennsku kennara sem felst í skýru dagskipulagi og vel skipulögðu starfi. Á sama tíma getur skipulag tímans komið í veg fyrir flæði í leik barna og dýpt. Markmið þessarar rannsóknar er að leita eftir upplifun barna á dvalartíma sínum í leikskóla og varpa ljósi á hvaða þættir hafa áhrif þar á í þeim tilgangi að koma betur til móts við sjónarmið þeirra. Rannsakendur byggðu á aðferðum sniðnum að ungum börnum í anda þátttökurannsókna og vörðu tíma með 160 til 180 börnum á aldrinum 4 til 5 ára á níu deildum í sex leikskólum á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður sýna að leikskólarnir sem tóku þátt í rannsókninni störfuðu eftir hefðbundnu dagskipulagi eða sveigjanlegu, sem þó var í eðli sínu ekki ósvipað hefðbundnu skipulagi, þar sem fastir liðir eru matartímar, samverustundir, leikur og útivera. Fram kom að börnin sem rætt var við þekkja ekki annað en að dvelja í leikskóla megnið af vökutíma sínum. Mörg barnanna töldu sig vera lengi í leikskólanum, sumum börnum fannst misjafnt hvort þau eru lengi eða stutt og einhverjum barnanna fannst þau vera stutt í leikskólanum. Fram kom að vinátta barna er þeim mikilvæg og að þau fái tækifæri til að fást við fjölbreytt, menntandi og merkingarbær viðfangsefni í leikskólanum sem þau fá að stýra sjálf. Gefa þarf tímaskyni barna gaum og ætti skipulag leikskólastarfs að taka mið af upplifun og skynjun barna á tíma.
Title: Upplifun barna af leikskóladvöl „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf“
Description:
Klukkan mótar starfshætti í leikskólum og stýrir tíma barna í daglegu starfi.
Áhrif tímans á leikskólastarf og skipulag þess eru töluverð og er upplifun barna á tíma ekki sú sama og fullorðinna.
Klukkan hefur áhrif á barnahópinn og tengist fagmennsku kennara sem felst í skýru dagskipulagi og vel skipulögðu starfi.
Á sama tíma getur skipulag tímans komið í veg fyrir flæði í leik barna og dýpt.
Markmið þessarar rannsóknar er að leita eftir upplifun barna á dvalartíma sínum í leikskóla og varpa ljósi á hvaða þættir hafa áhrif þar á í þeim tilgangi að koma betur til móts við sjónarmið þeirra.
Rannsakendur byggðu á aðferðum sniðnum að ungum börnum í anda þátttökurannsókna og vörðu tíma með 160 til 180 börnum á aldrinum 4 til 5 ára á níu deildum í sex leikskólum á höfuðborgarsvæðinu.
Niðurstöður sýna að leikskólarnir sem tóku þátt í rannsókninni störfuðu eftir hefðbundnu dagskipulagi eða sveigjanlegu, sem þó var í eðli sínu ekki ósvipað hefðbundnu skipulagi, þar sem fastir liðir eru matartímar, samverustundir, leikur og útivera.
Fram kom að börnin sem rætt var við þekkja ekki annað en að dvelja í leikskóla megnið af vökutíma sínum.
Mörg barnanna töldu sig vera lengi í leikskólanum, sumum börnum fannst misjafnt hvort þau eru lengi eða stutt og einhverjum barnanna fannst þau vera stutt í leikskólanum.
Fram kom að vinátta barna er þeim mikilvæg og að þau fái tækifæri til að fást við fjölbreytt, menntandi og merkingarbær viðfangsefni í leikskólanum sem þau fá að stýra sjálf.
Gefa þarf tímaskyni barna gaum og ætti skipulag leikskólastarfs að taka mið af upplifun og skynjun barna á tíma.
Related Results
Sameiginlegir leikheimar barna og leikskólakennar
Sameiginlegir leikheimar barna og leikskólakennar
Í þessari grein er fjallað um rannsókn sem hafði að markmiði að varpa ljósi á sameiginlega leikheima barna og leikskólakennara í fjórum leikskólum á Íslandi. Leikur hefur lengi ver...
Ósýnileiki barna sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi í fylgd foreldra
Ósýnileiki barna sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi í fylgd foreldra
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) áætlar að á árinu 2017 hafi um 68,5 milljónir einstaklinga verið á flótta, þar af sé rúmlega helmingur börn (UNHCR, 2018). Umsækjandi ...
Pierre Bourdieu (höfundur); Davíð Kristinsson (ritstjóri, ritar inngang); Björn Þorsteinsson, Egill Arnarson og Gunnar Harðarson (þýðendur): Almenningsálitið er ekki til
Pierre Bourdieu (höfundur); Davíð Kristinsson (ritstjóri, ritar inngang); Björn Þorsteinsson, Egill Arnarson og Gunnar Harðarson (þýðendur): Almenningsálitið er ekki til
Ég hlakkaði til að lesa þetta kver eftir Bourdieu, enda hef ég rannsakað lýðræði, kosningar og almenningsálit í þrjátíu ár og kennt námskeið um efnið. Hafði auk þess heyrt ýmsa tal...
Hvaða augum líta börn leikskólakennara? Hlutverk og miðlun gilda í leikskólum
Hvaða augum líta börn leikskólakennara? Hlutverk og miðlun gilda í leikskólum
Greinin byggir á tveimur rannsóknum þar sem leitað var eftir hugmyndum barna um hlutverk og ábyrgð leikskólakennara. Þannig var reynt að skilja þau ómeðvituðu og meðvituðu gildi se...
Afrina barna-like Virus, a Novel Virus Associated with Afrina sporoboliae, the Drop Seed Gall-Forming Nematode
Afrina barna-like Virus, a Novel Virus Associated with Afrina sporoboliae, the Drop Seed Gall-Forming Nematode
A novel barna-like virus was found to be associated with field-collected Afrina sporoboliae plant-parasitic nematodes. The positive-sense, single-stranded RNA genome of this virus,...
Draumaskólinn
Draumaskólinn
Virk þátttaka barna í samfélagi er ein leið til farsældar þeirra og því er það helsta verkefni menntakerfisins að tryggja öllum börnum hlutdeild í samfélagi jafnaldra. Greinin fjal...
Áhrif EES-réttar á réttarfar
Áhrif EES-réttar á réttarfar
Útdráttur:
EES-samningurinn kveður ekki á um samræmingu reglna á sviði réttarfars. Í samræmi við það hefur EFTA-dómstóllinn, líkt og Evrópudómstóllinn, byggt á því að EES-ríkin njó...
Ættmæði og peysuperrar – athugun á innsendum orðum á Nýyrðavefnum
Ættmæði og peysuperrar – athugun á innsendum orðum á Nýyrðavefnum
Greinin fjallar um Nýyrðavef Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum sem er vettvangur þar sem notendur geta lagt fram ný orð sem þeir hafa tekið eftir í samfélaginu eða búið...

