Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

Útbreiðsla og líffræði agna (krabbadýr: Lophogastrida og Mysida) í hafinu við Ísland

View through CrossRef
Rannsóknaverkefnið Botndýr á Íslandsmiðum (BIOICE) hófst formlega árið 1992 en fyrsti leiðangur til gagnasöfnunar var farinn 1991. Meginmarkmið verkefnisins var að kanna magn og útbreiðslu dýralífs á hafsbotninum innan íslensku 200 mílna lögsögunnar. Það var unnið á vegum umhverfis og auðlindaráðuneytisins í samstarfi Náttúrufræðistofnunar Íslands, Hafrannsóknastofnunar, Háskóla Íslands og Sandgerðisbæjar. Í þessari grein er fjallað um umfangsmikið safn krabbadýra af ættbálkunum Lophogastrida og Mysida (áður Mysidacea, agnir á íslensku) sem safnað var með svokölluðum RP-sleða og síðan greint til tegunda og útbreiðsla, dýptardreifing og lífsferlar rannsakaðir í tengslum við umhverfisaðstæður eftir því sem gögn gáfu tilefni til. Alls voru tegundagreind 30.605 dýr sem fengust á 276 af þeim 370 togstöðum sem teknar voru með RP-sleðanum á 20–3000 m dýpi. Alls voru greindar 50 tegundir, þrjár tilheyrðu Lophogastrida og 47 Mysida (sjá samantekt í 3. töflu). Þar af voru 25 tegundir sem ekki höfðu áður fundist innan íslensku efnahagslögsögunnar: Hansenomysis falklandica O. Tattersall, 1955; Hansenomysis nouveli Lagardère, 1983; Boreomysis arctica (Krøyer, 1861); Amblyops kempi (Holt & Tattersall, 1905); Amblyops spiniferus Nouvel & Lagardère, 1976; Amblyops tenuicaudus W. Tattersall, 1911; Amblyops trisetosus Nouvel & Lagardère, 1976; Amblyopsoides ohlinii (W. Tattersall, 1951); Paramblyops bidigitatus W. Tattersall, 1911; Paramblyops rostratus Holt & Tattersall, 1905; Dactylamblyops thaumatops W. Tattersall, 1907; Dactylerythrops bidigitatus W. Tattersall, 1907; Erythrops glacialis G.O. Sars, 1885; Parapseudomma calloplura (Holt & Tattersall, 1905); Pseudomma affine G.O. Sars, 1870; Pseudomma antarcticum Zimmer, 1914; Pseudomma islandicum Meland & Brattegard, 2007; Pseudomma jasi Meland & Brattegard, 1995; Pseudomma maasakii Meland & Brattegard, 2007; Pseudomma nanum Holt & Tattersall, 1906; Michthyops parvus (Vanhöffen, 1897); Michthyops theeli (Ohlin, 1901); Mysidetes farrani (Holt & Tattersall, 1905); Bathymysis helgae W. Tattersall, 1907; Mysidella typhlops G.O. Sars, 1872. Tvær af þessum tegundum, P. islandicum og P. maasakii eru nýjar fyrir vísindin og var þeim lýst af Meland og Brattegard (2007). Flestar tegundanna eru einnig þekktar frá djúpshafsslóðum í norðaustanverðu Norður-Atlantshafi, t.d. vestur af Bretlandseyjum og undan ströndum Noregs, en mjög lítið er vitað um líffræði þeirra fyrir utan það sem hér birtist. Þrjár algengustu tegundirnar voru Erythrops serratus (11.095 dýr, 36,3% allra dýra í sýnum), Schistomysis ornata (2852 dýr) og Mysis mixta (2849 dýr). Þær þrjár tegundir sem fengust á flestum stöðvum voru Erythrops serratus (93 stöðvar, 33,9% stöðva sem agnir fengust á), Parerythrops obesus (48 stöðvar) og Pseudomma roseum (11 stöðvar). Sextán af tegundunum 50 fundust á færri en fimm stöðvum og sex tegundir fundust aðeins á einni stöð. Tegundir voru flokkaðar eftir útbreiðslumynstri í fimm hópa: Sex tegundir fengust umhverfis allt Ísland, 32 tegundir fundust aðeins í hlýjum sjó sunnan við GIF-hrygginn (Grænlands-Íslands-Færeyjahryggur), tvær suðrænar tegundir höfðu tilhneigingu til að leita norður fyrir hrygginn, sjö norrænar tegundir fengust aðeins í köldum sjó norðan við hrygginn og þrjár norrænar tegundir höfðu tilhneigingu til að leita suður yfir hrygginn (130. mynd). Samanlagður fjöldi tegunda jókst með dýpi og náði hámarki á 500–1000 m (30 tegundir) og 1000–1500 m (31 tegund) (130. mynd). Flestar tegundanna virðast hafa 1–2 ára lífsferil en hjá sumum kaldsjávartegundunum getur hann verið allt að 4–5 ár. Aðeins lítill hluti kvendýra var með fóstur í kviðpoka og þar sem það var tilfellið virtist hluti fóstranna oft hafa tapast og þá sennilega við söfnun og skolun sýna (4. tafla). Við upphaf söfnunar í tengslum við BIOICE-verkefnið voru 33 tegundir agna þekktar innan íslensku efnahagslögsögunnar en rannsóknirnar sem hér eru kynntar hafa nú aukið þann fjölda í 58 tegundir (1. tafla og 130. mynd).
Title: Útbreiðsla og líffræði agna (krabbadýr: Lophogastrida og Mysida) í hafinu við Ísland
Description:
Rannsóknaverkefnið Botndýr á Íslandsmiðum (BIOICE) hófst formlega árið 1992 en fyrsti leiðangur til gagnasöfnunar var farinn 1991.
Meginmarkmið verkefnisins var að kanna magn og útbreiðslu dýralífs á hafsbotninum innan íslensku 200 mílna lögsögunnar.
Það var unnið á vegum umhverfis og auðlindaráðuneytisins í samstarfi Náttúrufræðistofnunar Íslands, Hafrannsóknastofnunar, Háskóla Íslands og Sandgerðisbæjar.
Í þessari grein er fjallað um umfangsmikið safn krabbadýra af ættbálkunum Lophogastrida og Mysida (áður Mysidacea, agnir á íslensku) sem safnað var með svokölluðum RP-sleða og síðan greint til tegunda og útbreiðsla, dýptardreifing og lífsferlar rannsakaðir í tengslum við umhverfisaðstæður eftir því sem gögn gáfu tilefni til.
Alls voru tegundagreind 30.
605 dýr sem fengust á 276 af þeim 370 togstöðum sem teknar voru með RP-sleðanum á 20–3000 m dýpi.
Alls voru greindar 50 tegundir, þrjár tilheyrðu Lophogastrida og 47 Mysida (sjá samantekt í 3.
töflu).
Þar af voru 25 tegundir sem ekki höfðu áður fundist innan íslensku efnahagslögsögunnar: Hansenomysis falklandica O.
Tattersall, 1955; Hansenomysis nouveli Lagardère, 1983; Boreomysis arctica (Krøyer, 1861); Amblyops kempi (Holt & Tattersall, 1905); Amblyops spiniferus Nouvel & Lagardère, 1976; Amblyops tenuicaudus W.
Tattersall, 1911; Amblyops trisetosus Nouvel & Lagardère, 1976; Amblyopsoides ohlinii (W.
Tattersall, 1951); Paramblyops bidigitatus W.
Tattersall, 1911; Paramblyops rostratus Holt & Tattersall, 1905; Dactylamblyops thaumatops W.
Tattersall, 1907; Dactylerythrops bidigitatus W.
Tattersall, 1907; Erythrops glacialis G.
O.
Sars, 1885; Parapseudomma calloplura (Holt & Tattersall, 1905); Pseudomma affine G.
O.
Sars, 1870; Pseudomma antarcticum Zimmer, 1914; Pseudomma islandicum Meland & Brattegard, 2007; Pseudomma jasi Meland & Brattegard, 1995; Pseudomma maasakii Meland & Brattegard, 2007; Pseudomma nanum Holt & Tattersall, 1906; Michthyops parvus (Vanhöffen, 1897); Michthyops theeli (Ohlin, 1901); Mysidetes farrani (Holt & Tattersall, 1905); Bathymysis helgae W.
Tattersall, 1907; Mysidella typhlops G.
O.
Sars, 1872.
Tvær af þessum tegundum, P.
islandicum og P.
maasakii eru nýjar fyrir vísindin og var þeim lýst af Meland og Brattegard (2007).
Flestar tegundanna eru einnig þekktar frá djúpshafsslóðum í norðaustanverðu Norður-Atlantshafi, t.
d.
vestur af Bretlandseyjum og undan ströndum Noregs, en mjög lítið er vitað um líffræði þeirra fyrir utan það sem hér birtist.
Þrjár algengustu tegundirnar voru Erythrops serratus (11.
095 dýr, 36,3% allra dýra í sýnum), Schistomysis ornata (2852 dýr) og Mysis mixta (2849 dýr).
Þær þrjár tegundir sem fengust á flestum stöðvum voru Erythrops serratus (93 stöðvar, 33,9% stöðva sem agnir fengust á), Parerythrops obesus (48 stöðvar) og Pseudomma roseum (11 stöðvar).
Sextán af tegundunum 50 fundust á færri en fimm stöðvum og sex tegundir fundust aðeins á einni stöð.
Tegundir voru flokkaðar eftir útbreiðslumynstri í fimm hópa: Sex tegundir fengust umhverfis allt Ísland, 32 tegundir fundust aðeins í hlýjum sjó sunnan við GIF-hrygginn (Grænlands-Íslands-Færeyjahryggur), tvær suðrænar tegundir höfðu tilhneigingu til að leita norður fyrir hrygginn, sjö norrænar tegundir fengust aðeins í köldum sjó norðan við hrygginn og þrjár norrænar tegundir höfðu tilhneigingu til að leita suður yfir hrygginn (130.
mynd).
Samanlagður fjöldi tegunda jókst með dýpi og náði hámarki á 500–1000 m (30 tegundir) og 1000–1500 m (31 tegund) (130.
mynd).
Flestar tegundanna virðast hafa 1–2 ára lífsferil en hjá sumum kaldsjávartegundunum getur hann verið allt að 4–5 ár.
Aðeins lítill hluti kvendýra var með fóstur í kviðpoka og þar sem það var tilfellið virtist hluti fóstranna oft hafa tapast og þá sennilega við söfnun og skolun sýna (4.
tafla).
Við upphaf söfnunar í tengslum við BIOICE-verkefnið voru 33 tegundir agna þekktar innan íslensku efnahagslögsögunnar en rannsóknirnar sem hér eru kynntar hafa nú aukið þann fjölda í 58 tegundir (1.
tafla og 130.
mynd).

Related Results

Eysteinn Tryggvason – minning (in memoriam)
Eysteinn Tryggvason – minning (in memoriam)
Eysteinn Tryggvason jarðeðlisfræðingur lést 11. janúar 2021, í hárri elli. Hann fæddist á Litlulaugum í Reykjadal 19. júlí 1924 og ólst þar upp í stórum systkinahópi. Foreldrar han...
Sköpunarsmiðjur í þremur grunnskólum: Þróunarverkefni á góðri siglingu
Sköpunarsmiðjur í þremur grunnskólum: Þróunarverkefni á góðri siglingu
Þrír grunnskólar austast og vestast í Reykjavík; Ingunnarskóli, Selásskóli og Vesturbæjarskóli, standa að þróunarstarfi um innleiðingu á sköpunarsmiðjum (e. makerspaces). Þar er ka...
Marine Malacostraca (Arthropoda, Crustacea) from the Gulf of Oran (Algerian west coast)
Marine Malacostraca (Arthropoda, Crustacea) from the Gulf of Oran (Algerian west coast)
Abstract This present paper presents an inventory of benthic Malacostraca in the Gulf of Oran. The softbottom crustacean fauna was studied between February 2021 and September 2021....
Traust og samvinna um skapandi skólastarf í opnu og sveigjanlegu námsumhverfi
Traust og samvinna um skapandi skólastarf í opnu og sveigjanlegu námsumhverfi
Greinin sem hér fer á eftir og rannsóknin sem þar er lýst beinast að viðburðaríkum starfsferli og um margt einstæðri reynslu Margrétar Einarsdóttur grunnskólakennara og skólastjóra...
„Þá má ekki missa kúlið“ Tilfinningar og tilfinningavinna grunnskólakennara
„Þá má ekki missa kúlið“ Tilfinningar og tilfinningavinna grunnskólakennara
Kulnun í kennslu hefur talsvert verið í umræðunni undanfarin misseri og er yfirleitt rakin til aukins álags í störfum kennara. Á vettvangi stjórnmála og í allri umfjöllun um skólam...
Er syndin náttúruleg? Um mikilvægi heimsmynda og uppsprettu gilda
Er syndin náttúruleg? Um mikilvægi heimsmynda og uppsprettu gilda
Eins og kunnugt er blasir við okkur alvarlegur umhverfisvandi sem ógnar lífi á jörðinni. Framferði mannsins á þar stærstan hlut að máli. Á líkingamáli má segja að orðið hafi misgen...
On Flores Island, do "ape-men" still exist? https://www.sapiens.org/biology/flores-island-ape-men/
On Flores Island, do "ape-men" still exist? https://www.sapiens.org/biology/flores-island-ape-men/
<span style="font-size:11pt"><span style="background:#f9f9f4"><span style="line-height:normal"><span style="font-family:Calibri,sans-serif"><b><spa...
Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
Árið 2016 tók Ísland á móti hópi sýrlenskra kvótaflóttamanna í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Í þessari eigindlegu rannsókn er upplifun hluta þessa hóps, kenn...

Back to Top