Javascript must be enabled to continue!
Ekki seinna en núna! Ákall um loftslagsréttlæti og tafarlausar aðgerðir
View through CrossRef
Í þessari grein er kastljósinu beint að ábyrgð mannfólksins á hlýnandi loftslagi og þeim afleiðingum sem breytt veðurfar hefur þegar haft í för með sér, og mun hafa á næstu árum, haldi áfram að hlýna. Hugtakið „loftslagsréttlæti“ (e. climate justice) gegnir hér mikilvægu hlutverki, en það er samsett úr hugtökunum loftslagsbreytingar (e. climate change) og félagslegt réttlæti (e. social justice). Með því er lögð áhersla á að loftslagsbreytingar kalli ekki bara á tæknilegar lausnir til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda, heldur þurfi viðbrögð okkar ekki síður að snúast um réttlæti til handa þolendum, þeim sem verða verst úti vegna breytinganna. Lögð er sérstök áhersla á áhrif hlýnunar á þær konur sem eru jaðarsettar í sínum samfélögum.
Horft er á viðfangsefnið út frá sjónarhorni femínískrar guðfræði og rýnt í þá guðfræðilegu orðræðu sem hefur verið að mótast á síðustu árum um loftslagsvána og afleiðingar hennar. Í guðfræðilegri umræðu um loftslagsbreytingar og loftslagsréttlæti eru áberandi hugtök sem hafa gegnt mikilvægu hlutverki innan kristinnar trúarhefðar frá upphafi, hugtök eins og sköpun, skapari, synd, iðrun og hjálpræði. Til grundvallar þessari umræðu liggur kristinn mannskilningur og guðsmynd. Það er í ljósi þessara lykilhugmynda sem kristin loftslags-guðfræði kallar eftir því að loftslagsréttlætið nái fram að ganga og gripið verði til aðgerða til þess að svo megi verða — og það án tafar.
The National and University Library of Iceland
Title: Ekki seinna en núna! Ákall um loftslagsréttlæti og tafarlausar aðgerðir
Description:
Í þessari grein er kastljósinu beint að ábyrgð mannfólksins á hlýnandi loftslagi og þeim afleiðingum sem breytt veðurfar hefur þegar haft í för með sér, og mun hafa á næstu árum, haldi áfram að hlýna.
Hugtakið „loftslagsréttlæti“ (e.
climate justice) gegnir hér mikilvægu hlutverki, en það er samsett úr hugtökunum loftslagsbreytingar (e.
climate change) og félagslegt réttlæti (e.
social justice).
Með því er lögð áhersla á að loftslagsbreytingar kalli ekki bara á tæknilegar lausnir til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda, heldur þurfi viðbrögð okkar ekki síður að snúast um réttlæti til handa þolendum, þeim sem verða verst úti vegna breytinganna.
Lögð er sérstök áhersla á áhrif hlýnunar á þær konur sem eru jaðarsettar í sínum samfélögum.
Horft er á viðfangsefnið út frá sjónarhorni femínískrar guðfræði og rýnt í þá guðfræðilegu orðræðu sem hefur verið að mótast á síðustu árum um loftslagsvána og afleiðingar hennar.
Í guðfræðilegri umræðu um loftslagsbreytingar og loftslagsréttlæti eru áberandi hugtök sem hafa gegnt mikilvægu hlutverki innan kristinnar trúarhefðar frá upphafi, hugtök eins og sköpun, skapari, synd, iðrun og hjálpræði.
Til grundvallar þessari umræðu liggur kristinn mannskilningur og guðsmynd.
Það er í ljósi þessara lykilhugmynda sem kristin loftslags-guðfræði kallar eftir því að loftslagsréttlætið nái fram að ganga og gripið verði til aðgerða til þess að svo megi verða — og það án tafar.
Related Results
Pierre Bourdieu (höfundur); Davíð Kristinsson (ritstjóri, ritar inngang); Björn Þorsteinsson, Egill Arnarson og Gunnar Harðarson (þýðendur): Almenningsálitið er ekki til
Pierre Bourdieu (höfundur); Davíð Kristinsson (ritstjóri, ritar inngang); Björn Þorsteinsson, Egill Arnarson og Gunnar Harðarson (þýðendur): Almenningsálitið er ekki til
Ég hlakkaði til að lesa þetta kver eftir Bourdieu, enda hef ég rannsakað lýðræði, kosningar og almenningsálit í þrjátíu ár og kennt námskeið um efnið. Hafði auk þess heyrt ýmsa tal...
Áhrif EES-réttar á réttarfar
Áhrif EES-réttar á réttarfar
Útdráttur:
EES-samningurinn kveður ekki á um samræmingu reglna á sviði réttarfars. Í samræmi við það hefur EFTA-dómstóllinn, líkt og Evrópudómstóllinn, byggt á því að EES-ríkin njó...
Vernd mannréttinda samkvæmt EES-samningnum
Vernd mannréttinda samkvæmt EES-samningnum
Í meginmáli EES-samningsins er ekki að finna nein fyrirmæli um vernd mannréttinda samkvæmt samningnum. Því féll það í hlut EFTA-dómstólsins að móta reglur þar að lútandi innan EFTA...
Ósýnileiki barna sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi í fylgd foreldra
Ósýnileiki barna sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi í fylgd foreldra
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) áætlar að á árinu 2017 hafi um 68,5 milljónir einstaklinga verið á flótta, þar af sé rúmlega helmingur börn (UNHCR, 2018). Umsækjandi ...
Foreldraútilokun, reynsla útsettra foreldra í Tyrklandi
Foreldraútilokun, reynsla útsettra foreldra í Tyrklandi
Markmið rannsóknarinnar var að kanna reynslu útsettra foreldra í Tyrklandi af þeim útilokandi aðferðum sem notaðar voru til að útiloka þá frá barni sínu. Rannsóknin kannaði einnig ...
Ættmæði og peysuperrar – athugun á innsendum orðum á Nýyrðavefnum
Ættmæði og peysuperrar – athugun á innsendum orðum á Nýyrðavefnum
Greinin fjallar um Nýyrðavef Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum sem er vettvangur þar sem notendur geta lagt fram ný orð sem þeir hafa tekið eftir í samfélaginu eða búið...
Upplifun barna af leikskóladvöl „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf“
Upplifun barna af leikskóladvöl „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf“
Klukkan mótar starfshætti í leikskólum og stýrir tíma barna í daglegu starfi. Áhrif tímans á leikskólastarf og skipulag þess eru töluverð og er upplifun barna á tíma ekki sú sama o...
Peruvian Popping Beans: Breeding and Performance Data of Beans Cultivated in the U.S.
Peruvian Popping Beans: Breeding and Performance Data of Beans Cultivated in the U.S.
Nuña beans (Phaseolus vulgaris L.) are a class of common beans found in South America. They are grown in the mountainous areas of Peru, Ecuador and Bolivia. Nuña beans are unique b...

