Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

Að finna taktinn: Um hæglátt leikskólastarf

View through CrossRef
Markmið rannsóknarinnar sem fjallað er um í þessari grein voru annars vegar að varpa ljósi á starfshætti sem gera börnum kleift að stunda nám og leik í takt við eigin forvitni og hins vegar að meta áhrif hæglætis á leik barna og fagvitund kennara. Þátttakendur í rannsókninni voru stjórnendur og deildarstjórar fjögurra leikskóla sem tóku þátt í þróunarverkefninu Stilla – hæglátt leikskólastarf sem unnið var í samstarfi leikskólanna og fræðimanna frá Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og Suðaustur-háskólanum í Noregi á árunum 2022–2025. Byggt var á aðferðum hönnunarmiðaðra rannsókna og gagna aflað með rýnihópaviðtölum og uppeldisfræðilegum skráningum. Niðurstöðurnar sýna að hæglæti felst ekki einungis í breyttum starfsháttum heldur faglegri og siðferðilegri afstöðu sem mótar samskipti, skipulag og menningu leikskólans. Birtingarmyndir hæglætis komu fram í fjórum meginstoðum: Að dvelja með börnum og rækta nærveru; að fara út af sporinu og sýna sveigjanleika gagnvart áhuga og líðan barnanna; að kafa djúpt og skapa skilyrði fyrir samfellu og merkingarbæru námi; og að horfa til lengri tíma. Kennarar lýstu aukinni ró, djúpstæðari tengslum við börn og betri skilyrðum fyrir flæði í leik og námi. Þeir töldu að börnin í leikskólunum sýndu aukna sjálfstjórn, félagsfærni og sköpun þegar þeim gafst lengri tími til könnunar og leiks. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að aukið hæglæti í leikskólastarfi geti verið raunhæf leið til að efla gæði, vellíðan og lýðræðislega þátttöku barna. Niðurstöðurnar kalla jafnframt á endurskoðun/hugsun á dagskipulagi leikskóla til að skapa rými fyrir „réttan takt“ (ít. tempo giusto) í leik, tengslum og samskiptum barna og fullorðinna.
The National and University Library of Iceland
Title: Að finna taktinn: Um hæglátt leikskólastarf
Description:
Markmið rannsóknarinnar sem fjallað er um í þessari grein voru annars vegar að varpa ljósi á starfshætti sem gera börnum kleift að stunda nám og leik í takt við eigin forvitni og hins vegar að meta áhrif hæglætis á leik barna og fagvitund kennara.
Þátttakendur í rannsókninni voru stjórnendur og deildarstjórar fjögurra leikskóla sem tóku þátt í þróunarverkefninu Stilla – hæglátt leikskólastarf sem unnið var í samstarfi leikskólanna og fræðimanna frá Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og Suðaustur-háskólanum í Noregi á árunum 2022–2025.
Byggt var á aðferðum hönnunarmiðaðra rannsókna og gagna aflað með rýnihópaviðtölum og uppeldisfræðilegum skráningum.
Niðurstöðurnar sýna að hæglæti felst ekki einungis í breyttum starfsháttum heldur faglegri og siðferðilegri afstöðu sem mótar samskipti, skipulag og menningu leikskólans.
Birtingarmyndir hæglætis komu fram í fjórum meginstoðum: Að dvelja með börnum og rækta nærveru; að fara út af sporinu og sýna sveigjanleika gagnvart áhuga og líðan barnanna; að kafa djúpt og skapa skilyrði fyrir samfellu og merkingarbæru námi; og að horfa til lengri tíma.
Kennarar lýstu aukinni ró, djúpstæðari tengslum við börn og betri skilyrðum fyrir flæði í leik og námi.
Þeir töldu að börnin í leikskólunum sýndu aukna sjálfstjórn, félagsfærni og sköpun þegar þeim gafst lengri tími til könnunar og leiks.
Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að aukið hæglæti í leikskólastarfi geti verið raunhæf leið til að efla gæði, vellíðan og lýðræðislega þátttöku barna.
Niðurstöðurnar kalla jafnframt á endurskoðun/hugsun á dagskipulagi leikskóla til að skapa rými fyrir „réttan takt“ (ít.
tempo giusto) í leik, tengslum og samskiptum barna og fullorðinna.

Related Results

„Ég elska flæðið, minna stress, minna um árekstra“
„Ég elska flæðið, minna stress, minna um árekstra“
Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á hvernig innleiðing flæðis í leikskólastarf getur stutt við samskipti barna og meðvitund starfsfólks um eigið hlutverk. Auk þess var sjó...
Perancangan Sistem Informasi Digital Marketing pada Finna Bakery
Perancangan Sistem Informasi Digital Marketing pada Finna Bakery
Penelitian mengenai sistem informasi digital marketing pada Finna Bakery telah dilaksanakan pada periode September hingga Desember 2024. Tujuan utama dari penelitian ini adalah unt...
ANTIOBESITY OF FRACTIONS WATER EXTRACT OF TAMARIND (TAMARINDUS INDICA L.) IN MALE WISTAR RATS INDUCED HIGH CARBOHYDRATE DIET
ANTIOBESITY OF FRACTIONS WATER EXTRACT OF TAMARIND (TAMARINDUS INDICA L.) IN MALE WISTAR RATS INDUCED HIGH CARBOHYDRATE DIET
Objective: The prevalence of obesity increases each year globally. Multifactorial etiology of obesity requires therapy management including changing of diet and medicines. Some of ...
Finna - käyttäjät ja trendit 2016 
Finna - käyttäjät ja trendit 2016 
Finna toteutti vuoden 2016 lopulla ison käyttäjäkyselyn osana Finnan trendiraporttia. Finnassa on alusta lähtien ollut periaate käyttäjäkeskeisestä kehittämisestä ja loppukäyttäjie...
Können Barrierepapiere Kunststoffverpackungen ersetzen?
Können Barrierepapiere Kunststoffverpackungen ersetzen?
Bislang zeigte der Trend bei flexiblen Verpackungen klar in Richtung Kunststoffe. In Bezug auf Nachhaltigkeit sind ihnen Monolösungen aus Papier jedoch deutlich überlegen. Durch ne...
The Finna service: meeting the new measurement challenges in libraries
The Finna service: meeting the new measurement challenges in libraries
PurposeIn the transformed information environment, the impact and value of the services are not adequately shown using the traditional library metrics. It needs to be supplemented ...
Þróun leikskóla á Íslandi: Samtal við skrif Jóns Torfa Jónassonar
Þróun leikskóla á Íslandi: Samtal við skrif Jóns Torfa Jónassonar
Árið 2006 gaf dr. Jón Torfi Jónasson, prófessor út bókina Frá gæslu til skóla: Um þróun leikskóla á Íslandi. Þar greindi hann þróun leikskólastigsins frá mörgum ólíkum sjónarhornum...
Upplifun barna af leikskóladvöl „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf“
Upplifun barna af leikskóladvöl „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf“
Klukkan mótar starfshætti í leikskólum og stýrir tíma barna í daglegu starfi. Áhrif tímans á leikskólastarf og skipulag þess eru töluverð og er upplifun barna á tíma ekki sú sama o...

Back to Top