Javascript must be enabled to continue!
„Ég elska flæðið, minna stress, minna um árekstra“
View through CrossRef
Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á hvernig innleiðing flæðis í leikskólastarf getur stutt við samskipti barna og meðvitund starfsfólks um eigið hlutverk. Auk þess var sjónum beint að hlutverki faglegs leiðtoga í breytingaferli. Margar rannsóknir sýna að leikskólabörn læra best í gegnum leik þar sem áhugi þeirra og frumkvæði fær að njóta sín. Rannsóknir sýna jafnframt að flæðisskipulag í leikskólum veitir börnum meira vald yfir eigin námi sem styður um leið við vellíðan þeirra. Í rannsókninni sem hér segir frá er byggt á kenningu Csikszentmihalyi um flæði þar sem megináherslan er á frumkvæði og áhuga barna. Einnig er stuðst við kenningar um forystu þar sem litið er á mikilvægi hlutverks faglegs leiðtoga í að innleiða breytingar og styðja starfsfólk í því ferli.
Rannsóknin var með starfendarannsóknarsniði, fór fram í einum leikskóla og stóð yfir í tvö ár. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að aðferðafræði starfendarannsókna sé áhrifarík nálgun til að þróa starfshætti og innleiða breytingar. Gögnum var safnað með fjölbreyttum hætti, eins og viðtölum, vettvangsathugunum, ljósmyndum og dagbókarskrifum. Gögnin voru greind með þemagreiningu.
Niðurstöðurnar benda til þess að innleiðing flæðis hafi haft áhrif á samskipti barnanna í leikskólanum. Þau urðu glaðari og árekstrum þeirra á milli fækkaði. Starfsfólkið upplifði minni streitu í starfi og aukin tækifæri til sveigjanleika. Ígrundun og samtal á milli starfsfólks studdi það í að skilja og verða virkt í flæðisskipulaginu. Rannsóknin er mikilvægt innlegg í umræðu um leikskólastarf og styður einnig við hugmyndir um að starfendarannsóknir séu góð leið til að bæta skólastarf.
The National and University Library of Iceland
Title: „Ég elska flæðið, minna stress, minna um árekstra“
Description:
Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á hvernig innleiðing flæðis í leikskólastarf getur stutt við samskipti barna og meðvitund starfsfólks um eigið hlutverk.
Auk þess var sjónum beint að hlutverki faglegs leiðtoga í breytingaferli.
Margar rannsóknir sýna að leikskólabörn læra best í gegnum leik þar sem áhugi þeirra og frumkvæði fær að njóta sín.
Rannsóknir sýna jafnframt að flæðisskipulag í leikskólum veitir börnum meira vald yfir eigin námi sem styður um leið við vellíðan þeirra.
Í rannsókninni sem hér segir frá er byggt á kenningu Csikszentmihalyi um flæði þar sem megináherslan er á frumkvæði og áhuga barna.
Einnig er stuðst við kenningar um forystu þar sem litið er á mikilvægi hlutverks faglegs leiðtoga í að innleiða breytingar og styðja starfsfólk í því ferli.
Rannsóknin var með starfendarannsóknarsniði, fór fram í einum leikskóla og stóð yfir í tvö ár.
Fyrri rannsóknir hafa sýnt að aðferðafræði starfendarannsókna sé áhrifarík nálgun til að þróa starfshætti og innleiða breytingar.
Gögnum var safnað með fjölbreyttum hætti, eins og viðtölum, vettvangsathugunum, ljósmyndum og dagbókarskrifum.
Gögnin voru greind með þemagreiningu.
Niðurstöðurnar benda til þess að innleiðing flæðis hafi haft áhrif á samskipti barnanna í leikskólanum.
Þau urðu glaðari og árekstrum þeirra á milli fækkaði.
Starfsfólkið upplifði minni streitu í starfi og aukin tækifæri til sveigjanleika.
Ígrundun og samtal á milli starfsfólks studdi það í að skilja og verða virkt í flæðisskipulaginu.
Rannsóknin er mikilvægt innlegg í umræðu um leikskólastarf og styður einnig við hugmyndir um að starfendarannsóknir séu góð leið til að bæta skólastarf.
Related Results
An Analysis of the Impact of Deviatoric Stress and Spherical Stress on the Stability of Surrounding Rocks in Roadway
An Analysis of the Impact of Deviatoric Stress and Spherical Stress on the Stability of Surrounding Rocks in Roadway
In this study, a detailed analysis was conducted to evaluate the impacts of the deviatoric stress component and spherical stress component on the stability of surrounding rocks in ...
Mean stress correction in fatigue design under consideration of welding residual stress
Mean stress correction in fatigue design under consideration of welding residual stress
AbstractThe fatigue strength of welded steels is affected by the applied load mean stress and the residual stress in the vicinity of the weld. The mean stress correction in fatigue...
Spatial Dynamics of Land Use Land Cover of Minna City and Environs, Niger State, Nigeria
Spatial Dynamics of Land Use Land Cover of Minna City and Environs, Niger State, Nigeria
Aims: Spatial dynamics of land use land cover of Minna city and environs, Niger State, Nigeria.
Study Design: Survey and longitudinal research were carried out.
Place a...
Stakeholder Green Pressure and Green Innovation: Evidence from Some Selected Bakery and Confessionary Firms in Minna, Niger State
Stakeholder Green Pressure and Green Innovation: Evidence from Some Selected Bakery and Confessionary Firms in Minna, Niger State
The increased environmental awareness of stakeholders, have put firms under pressure to improve their corporate image and market competitiveness through green innovation. The main ...
Geographical Disparities of uncertainty stress and life stress among university students in China
Geographical Disparities of uncertainty stress and life stress among university students in China
Abstract
Background
Ecological models have emphasized that mental stress both is an individual phenomenon and an environmental outcome. However, many mental stress studies...
Optimum Time and Critical Re-Orientation Pressure of Re-Fracturing
Optimum Time and Critical Re-Orientation Pressure of Re-Fracturing
Abstract
Up to 2014, low production wells of CNPC oil fields account for 10%~30% in all the production wells, the number of old wells is huge. How to develop the low...
State of stress in the conterminous United States
State of stress in the conterminous United States
Inferring principal stress directions from geologic data, focal mechanisms, and in situ stress measurements, we have prepared a map of principal horizontal stress orientations for ...
Numerical Simulation Study of Thermoelastic Stress Field Around the Wellbore
Numerical Simulation Study of Thermoelastic Stress Field Around the Wellbore
ABSTRACT:
Analysis of the stress field around the wellbore is a prerequisite for predicting the formation breakdown pressure. With the development of hot dry rock...

