Javascript must be enabled to continue!
Eftirsóttasti minnihlutahópurinn? Fyrstu mánuðir fjögurra karla í grunnskólakennslu
View through CrossRef
Tilefni þessarar greinar er umræða um mögulegan kennaraskort í grunnskólum en einkum þó staða og fækkun kennslukarla í grunnskólum. Fræðilegur bakgrunnur hennar er annars vegar rannsóknir á leiðsögn við nýliða í starfi og hins vegar er sjónum beint að kennslukörlum í starfi. Sagt er frá rannsókn þar sem rætt var við fjóra nýbrautskráða karla og þeim fylgt eftir fyrstu sex mánuðina í starfi með þremur viðtölum við hvern þeirra skólaárið 2017–2018. Þeir voru spurðir hvernig hefði gengið í starfinu að loknu námi og hvort þeir hefðu upplifað einhverja þætti sem líklegt væri að tengdust því að þeir væru karlar. Meginrannsóknarspurningin var tvíþætt: Hvernig gengur nýbrautskráðum körlum á vettvangi starfsins og þurfa þeir sérhæfðan stuðning í starfinu á grundvelli kyns síns? Í greininni er gerð grein fyrir þremur þemum: Upplifun karlanna af nýjum starfsvettvangi og starfsumhverfinu þar; reynslu þeirra af leiðsögn við þá sem nýliða; og loks hvort og hvernig kyn og kyngervi birtast í frásögnum þeirra. Viðmælendur okkar töldu að sér hefði gengið vel að fóta sig í starfi og þeir voru ánægðir með leiðsögnina, þótt hún hefði ekki verið jafn formleg og mælt er með í fræðum og rannsóknum um leiðsögn. Svarið við spurningunni hvort það þurfi sérhæfðan stuðning eftir kyni er ekki einhlítt. Í svörum viðmælenda kom fram að í þremur skólanna sem þeir störfuðu hefðu verið karlaklúbbar sem þeir töldu að hefðu verið sér gagnlegir við að aðlagast skólabragnum. Höfundar telja rétt að kanna hvort kynskiptir klúbbar gagnist í því viðfangsefni að nýliðar haldist í starfinu. Mikilvægi markvissrar leiðsagnar fyrir nýliða í starfi er þó ekki kynbundið atriði heldur verður að leggja áherslu á að allir nýir kennarar, óháð kyni, fái góða leiðsögn þegar þeir stíga sín fyrstu skref í starfi. Kynjaskipt leiðsögn væri þá einungis hluti af heildstæðu og vönduðu kerfi nýliðaþjálfunar.
The National and University Library of Iceland
Title: Eftirsóttasti minnihlutahópurinn? Fyrstu mánuðir fjögurra karla í grunnskólakennslu
Description:
Tilefni þessarar greinar er umræða um mögulegan kennaraskort í grunnskólum en einkum þó staða og fækkun kennslukarla í grunnskólum.
Fræðilegur bakgrunnur hennar er annars vegar rannsóknir á leiðsögn við nýliða í starfi og hins vegar er sjónum beint að kennslukörlum í starfi.
Sagt er frá rannsókn þar sem rætt var við fjóra nýbrautskráða karla og þeim fylgt eftir fyrstu sex mánuðina í starfi með þremur viðtölum við hvern þeirra skólaárið 2017–2018.
Þeir voru spurðir hvernig hefði gengið í starfinu að loknu námi og hvort þeir hefðu upplifað einhverja þætti sem líklegt væri að tengdust því að þeir væru karlar.
Meginrannsóknarspurningin var tvíþætt: Hvernig gengur nýbrautskráðum körlum á vettvangi starfsins og þurfa þeir sérhæfðan stuðning í starfinu á grundvelli kyns síns? Í greininni er gerð grein fyrir þremur þemum: Upplifun karlanna af nýjum starfsvettvangi og starfsumhverfinu þar; reynslu þeirra af leiðsögn við þá sem nýliða; og loks hvort og hvernig kyn og kyngervi birtast í frásögnum þeirra.
Viðmælendur okkar töldu að sér hefði gengið vel að fóta sig í starfi og þeir voru ánægðir með leiðsögnina, þótt hún hefði ekki verið jafn formleg og mælt er með í fræðum og rannsóknum um leiðsögn.
Svarið við spurningunni hvort það þurfi sérhæfðan stuðning eftir kyni er ekki einhlítt.
Í svörum viðmælenda kom fram að í þremur skólanna sem þeir störfuðu hefðu verið karlaklúbbar sem þeir töldu að hefðu verið sér gagnlegir við að aðlagast skólabragnum.
Höfundar telja rétt að kanna hvort kynskiptir klúbbar gagnist í því viðfangsefni að nýliðar haldist í starfinu.
Mikilvægi markvissrar leiðsagnar fyrir nýliða í starfi er þó ekki kynbundið atriði heldur verður að leggja áherslu á að allir nýir kennarar, óháð kyni, fái góða leiðsögn þegar þeir stíga sín fyrstu skref í starfi.
Kynjaskipt leiðsögn væri þá einungis hluti af heildstæðu og vönduðu kerfi nýliðaþjálfunar.
Related Results
Alþjóðlegur bakgrunnur, skólasókn og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum 2001-2021
Alþjóðlegur bakgrunnur, skólasókn og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum 2001-2021
Jón Torfi Jónasson hefur á ferli sínum dregið fram hið lítt öfundsverða hlutskipti íslenskra framhaldskólanema sem birtist í miklu brotthvarfi þeirra frá námi. Í þessari rannsókn e...
Stafræn tækni í leikskólastarfi: Sjónarhorn frumkvöðla
Stafræn tækni í leikskólastarfi: Sjónarhorn frumkvöðla
Snjalltækni hefur orðið hluti af daglegu lífi fólks og sífellt yngri börn hafa greiðari aðgang að henni. Skólar hafa væðst þessari nýju tækni og henni er ætlað að vera hluti af sta...
Altækir sjúkdómar og birtingamynd þeirra í munni – hluti 1
Altækir sjúkdómar og birtingamynd þeirra í munni – hluti 1
Vefir í munni geta orðið fyrir breytingum eða skaða vegna sjúkdóma sem hafa aðallega áhrif á önnur líkamskerfi. Einkenni slíkra
altækra sjúkdóma sem birtast í munni geta verið afar...
Como narrar a voz do outro? Uma conversa sobre o(s) retrato(s) do regionalismo brasileiro oitocentista com Ana Karla Canarinos
Como narrar a voz do outro? Uma conversa sobre o(s) retrato(s) do regionalismo brasileiro oitocentista com Ana Karla Canarinos
Para a entrevista nacional da edição número 50, volume 25, da Miscelânea, a Palimpsesto – revista do corpo discente do Programa de Pós-graduação em Letras da UERJ – teve a oportun...
Kynlífsmenning framhaldsskólanema frá sjónarhorni ungra karla
Kynlífsmenning framhaldsskólanema frá sjónarhorni ungra karla
Kynlífsmenning ungs fólks hefur breyst hratt á undanförnum áratugum. Í greininni er fjallað um upplifun ungra karla af þeirri kynlífsmenningu sem tíðkast í framhaldsskólum nú á dög...
Að finna taktinn: Um hæglátt leikskólastarf
Að finna taktinn: Um hæglátt leikskólastarf
Markmið rannsóknarinnar sem fjallað er um í þessari grein voru annars vegar að varpa ljósi á starfshætti sem gera börnum kleift að stunda nám og leik í takt við eigin forvitni og h...
ANÁLISE DISCURSIVA DA HOMOFOBIA CORDIAL NO ETHOS RELIGIOSO DE BRUNA KARLA
ANÁLISE DISCURSIVA DA HOMOFOBIA CORDIAL NO ETHOS RELIGIOSO DE BRUNA KARLA
A partir dos pressupostos da Análise do Discurso, este trabalho tem como objetivo analisar um recorte da manifestação discursiva da cantora gospel Bruna Karla no podcast “Positivam...

