Javascript must be enabled to continue!
Kynlífsmenning framhaldsskólanema frá sjónarhorni ungra karla
View through CrossRef
Kynlífsmenning ungs fólks hefur breyst hratt á undanförnum áratugum. Í greininni er fjallað um upplifun ungra karla af þeirri kynlífsmenningu sem tíðkast í framhaldsskólum nú á dögum. Spurt er hvaða skilning þeir leggja í kynlífsmenninguna, hvaðan hugmyndir þeirra um kynlíf koma, hvort þeir upplifa þrýsting í þessum efnum og hvernig hann birtist. Tekin voru einstaklings- og rýnihópaviðtöl við 11 stráka á aldrinum 18 til 21 árs úr tíu framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Fræðileg sjónarmið greinarinnar byggjast á því að kynlífsmenningin hverju sinni móti nokkurs konar kynlífshandrit eða forskrift að hegðun og væntingum. Kynlífshandrit geta verið mismunandi fyrir ólíka hópa og gefa þannig ólík skilaboð eftir því hvaða hópar eiga í hlut. Þannig eiga strákar og ungir karlar gjarnan að vera virkir kynferðislegir gerendur og mikil reynsla á kynlífssviðinu þykir eftirsóknarverð. Stelpur á hinn bóginn eiga að halda sig innan ákveðins ramma og takmarka fjölda bólfélaga, annars eiga þær á hættu að fá á sig druslustimpil. Niðurstöður benda til þess að félagsþrýstingur hafi töluverð áhrif á kynlífsmenningu ungra karla. Mikill þrýstingur er á þeim að vera ávallt reiðubúnir að stunda kynlíf og helst að deila þeirri reynslu með kunningjahópnum. Klám hefur mikil áhrif á hugmyndir þeirra um hvers er vænst af þeim í kynlífi og reyna þeir margir hverjir að standast þær væntingar. Þá telja þeir að mismunandi reglur gildi um kynhegðun karla og kvenna og að strákum leyfist meira í kynferðislegum efnum. Enda þótt stór hluti stráka taki þátt í ríkjandi kynlífsmenningu reynist hún mörgum þeirra erfið og kvíðavaldandi.
The National and University Library of Iceland
Title: Kynlífsmenning framhaldsskólanema frá sjónarhorni ungra karla
Description:
Kynlífsmenning ungs fólks hefur breyst hratt á undanförnum áratugum.
Í greininni er fjallað um upplifun ungra karla af þeirri kynlífsmenningu sem tíðkast í framhaldsskólum nú á dögum.
Spurt er hvaða skilning þeir leggja í kynlífsmenninguna, hvaðan hugmyndir þeirra um kynlíf koma, hvort þeir upplifa þrýsting í þessum efnum og hvernig hann birtist.
Tekin voru einstaklings- og rýnihópaviðtöl við 11 stráka á aldrinum 18 til 21 árs úr tíu framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu og utan þess.
Fræðileg sjónarmið greinarinnar byggjast á því að kynlífsmenningin hverju sinni móti nokkurs konar kynlífshandrit eða forskrift að hegðun og væntingum.
Kynlífshandrit geta verið mismunandi fyrir ólíka hópa og gefa þannig ólík skilaboð eftir því hvaða hópar eiga í hlut.
Þannig eiga strákar og ungir karlar gjarnan að vera virkir kynferðislegir gerendur og mikil reynsla á kynlífssviðinu þykir eftirsóknarverð.
Stelpur á hinn bóginn eiga að halda sig innan ákveðins ramma og takmarka fjölda bólfélaga, annars eiga þær á hættu að fá á sig druslustimpil.
Niðurstöður benda til þess að félagsþrýstingur hafi töluverð áhrif á kynlífsmenningu ungra karla.
Mikill þrýstingur er á þeim að vera ávallt reiðubúnir að stunda kynlíf og helst að deila þeirri reynslu með kunningjahópnum.
Klám hefur mikil áhrif á hugmyndir þeirra um hvers er vænst af þeim í kynlífi og reyna þeir margir hverjir að standast þær væntingar.
Þá telja þeir að mismunandi reglur gildi um kynhegðun karla og kvenna og að strákum leyfist meira í kynferðislegum efnum.
Enda þótt stór hluti stráka taki þátt í ríkjandi kynlífsmenningu reynist hún mörgum þeirra erfið og kvíðavaldandi.
Related Results
Abstract 1587: Targeted deletion of Fra-1 blocks oncogenic K-ras induced lung tumor development and progression in mice
Abstract 1587: Targeted deletion of Fra-1 blocks oncogenic K-ras induced lung tumor development and progression in mice
Abstract
Background: Fra-1 (Fosl1) is a dimeric partner of AP-1 transcription factor and regulates gene expression in a context-dependent (cell-type and stimulus-spe...
Mécanismes transcriptionnels gouvernés par Fra-1 et Fra-2 dans les cancers du sein agressifs
Mécanismes transcriptionnels gouvernés par Fra-1 et Fra-2 dans les cancers du sein agressifs
Le cancer du sein est la principale cause de mortalité par cancer chez la femme. Deux des facteurs de transcription de la famille Fos, Fra-1 et Fra-2, sont surexprimés dans les can...
Kortbladsbeskrivelse, Geologisk kort over Danmark, 1:50 000, Møn Dele af 1511 I, 1511 IV og 1512 II
Kortbladsbeskrivelse, Geologisk kort over Danmark, 1:50 000, Møn Dele af 1511 I, 1511 IV og 1512 II
Det geologiske kortblad Møn omfatter Møn med de tilgrænsende øer Langø, Lindholm og Nyord samt mindre dele af Sjælland og Falster. Kortet består af dele af de topografiske kortblad...
Podcastlytteren som hverdagskurator: En undersøgelse af podcastlytning som praksisfænomen i hverdagen
Podcastlytteren som hverdagskurator: En undersøgelse af podcastlytning som praksisfænomen i hverdagen
Streaming og on demand-mediebrug er en generel medietendens, der breder sig i disse år i kraft af digitaliseringen af medierne. Som et on demand-medie indebærer podcasten en meget...
Fortificaţia de la Ungra. Cercetări magnetometrice recente
Fortificaţia de la Ungra. Cercetări magnetometrice recente
Fortificaţia de la Ungra reprezintă unul dintre punctele de interes pentru arheologia epocii primelor secole ale erei creștine din cuprinsul judeţul Braşov. Situl arheologic este s...
Evolutionary conservation of midline axon guidance activity between
Drosophila
and
Tribolium
Frazzled
Evolutionary conservation of midline axon guidance activity between
Drosophila
and
Tribolium
Frazzled
Abstract
The regulation of midline crossing of axons is of fundamental importance for the proper development of nervous system connectivity in bi...
Stafræn tækni í leikskólastarfi: Sjónarhorn frumkvöðla
Stafræn tækni í leikskólastarfi: Sjónarhorn frumkvöðla
Snjalltækni hefur orðið hluti af daglegu lífi fólks og sífellt yngri börn hafa greiðari aðgang að henni. Skólar hafa væðst þessari nýju tækni og henni er ætlað að vera hluti af sta...
Profesjonsutvikling i partnerskap
Profesjonsutvikling i partnerskap
Profesjonsutvikling i partnerskap er den andre tekstsamlingen fra Universitetet i Stavanger som tar utgangspunkt i erfaringer og læring fra partnersamarbeid i Rogaland. Høsten 2017...

