Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

„Ég hef alltaf minni og minni áhuga á þessu hefðbundna sambandi“. Tilhugalíf fráskilinna framakvenna

View through CrossRef
Hér er rýnt í ástarreynslu kvenna á miðjum aldri sem hafa skilið við langtímamaka og eru að reyna að fóta sig í breyttum og sítengdum veruleika tilhugalífsins. Tekin voru djúpviðtöl við konur sem hafa náð góðum árangri á sínu starfssviði ásamt því að eiga börn og þau greind með aðstoð hugtaka úr smiðju Önnu Guðrúnar Jónasdóttur, Evu Illouz og Pierre Bourdieu. Ýmislegt hefur breyst í leikreglum tilhugalífsins frá því þær voru þar síðast. Þeim finnst erfiðara nú en áður að upplifa sérstöðu og öðlast fullvissu um eigin og annarra ástartilfinningar og varanleika þeirra; þrenna sem taldist eitt sinn grundvöllur ástarsambands. Þær hafa sumar enduruppgötvað sig sem kynverur og lifa ýmist meira í takt við neyslumenningu kynlífs og ástar eða eru í pásu frá ástinni sem birtist í óvirkni eða tímaböndum (e. situationship) og hafa samsamað sig frádrægum tengslum (e. negative relations). Það á ekki síst við um þær sem hafa dvalið lengst í tilhugalífinu. Konurnar hafa tileinkað sér ýmis gildi markaðarins til að finna með skjótum hætti þann ástarverðuga. Þær hafa sjálfar fundið á eigin skinni hversu auðvelt er að aftengjast mögulegu ástarviðfangi í skjóli tæknivæddrar fjarlægðar. Konurnar eru sjálfum sér nógar félagslega og efnahagslega og velja að búa án maka. Þær eru ekki að leita aftur að sambúð þótt þær séu að leita að ást. Vegna óvissunnar sem ríkir í rómantískum tengslum hafa þessar konur lagt enn meiri áherslu á vinatengsl og kvennasamstöðu sem jafnframt nýtist til að verja sig ástararðráni.
The National and University Library of Iceland
Title: „Ég hef alltaf minni og minni áhuga á þessu hefðbundna sambandi“. Tilhugalíf fráskilinna framakvenna
Description:
Hér er rýnt í ástarreynslu kvenna á miðjum aldri sem hafa skilið við langtímamaka og eru að reyna að fóta sig í breyttum og sítengdum veruleika tilhugalífsins.
Tekin voru djúpviðtöl við konur sem hafa náð góðum árangri á sínu starfssviði ásamt því að eiga börn og þau greind með aðstoð hugtaka úr smiðju Önnu Guðrúnar Jónasdóttur, Evu Illouz og Pierre Bourdieu.
Ýmislegt hefur breyst í leikreglum tilhugalífsins frá því þær voru þar síðast.
Þeim finnst erfiðara nú en áður að upplifa sérstöðu og öðlast fullvissu um eigin og annarra ástartilfinningar og varanleika þeirra; þrenna sem taldist eitt sinn grundvöllur ástarsambands.
Þær hafa sumar enduruppgötvað sig sem kynverur og lifa ýmist meira í takt við neyslumenningu kynlífs og ástar eða eru í pásu frá ástinni sem birtist í óvirkni eða tímaböndum (e.
situationship) og hafa samsamað sig frádrægum tengslum (e.
negative relations).
Það á ekki síst við um þær sem hafa dvalið lengst í tilhugalífinu.
Konurnar hafa tileinkað sér ýmis gildi markaðarins til að finna með skjótum hætti þann ástarverðuga.
Þær hafa sjálfar fundið á eigin skinni hversu auðvelt er að aftengjast mögulegu ástarviðfangi í skjóli tæknivæddrar fjarlægðar.
Konurnar eru sjálfum sér nógar félagslega og efnahagslega og velja að búa án maka.
Þær eru ekki að leita aftur að sambúð þótt þær séu að leita að ást.
Vegna óvissunnar sem ríkir í rómantískum tengslum hafa þessar konur lagt enn meiri áherslu á vinatengsl og kvennasamstöðu sem jafnframt nýtist til að verja sig ástararðráni.

Related Results

Assessing the Ability of Reiki Practitioners to Detect Human Energy Fields
Assessing the Ability of Reiki Practitioners to Detect Human Energy Fields
Reiki is a form of energy healing that has gained popularity in the United States, but there remains skepticism about its scientific validity. This study examines the ability of Re...
Management of high-energy tibial shaft fractures using the hexapod circular external fixator
Management of high-energy tibial shaft fractures using the hexapod circular external fixator
Abstract Background The hexapod external fixator (HEF) is increasingly used for high-energy tibial shaft fracture care as more general orthopedic su...
Reverse Genetics with a Full-length Infectious cDNA Clone of Bovine Torovirus
Reverse Genetics with a Full-length Infectious cDNA Clone of Bovine Torovirus
Abstract Torovirus (ToV) has recently been classified in the new family Tobaniviridae, although it belonged to the Coronavirus (CoV) family historically. Reverse ge...
Influenza D pseudotyped lentiviruses: production, neutralisation assay and serological surveillance
Influenza D pseudotyped lentiviruses: production, neutralisation assay and serological surveillance
Influenza D virus (IDV) has been reported in many animal species and potentially humans worldwide. Cattle are considered the major reservoir. There are currently three main lineage...
Hannes Hólmsteinn Gissurarson: Laxness
Hannes Hólmsteinn Gissurarson: Laxness
Í þriðju bók Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um Halldór Kiljan Laxness er skáldinu fylgt eftir frá árinu 1948 til dauðadags 1998. Á þessu tímabili hlýtur Halldór Laxness Nóbelsve...
„Ég elska flæðið, minna stress, minna um árekstra“
„Ég elska flæðið, minna stress, minna um árekstra“
Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á hvernig innleiðing flæðis í leikskólastarf getur stutt við samskipti barna og meðvitund starfsfólks um eigið hlutverk. Auk þess var sjó...
Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
Árið 2016 tók Ísland á móti hópi sýrlenskra kvótaflóttamanna í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Í þessari eigindlegu rannsókn er upplifun hluta þessa hóps, kenn...

Back to Top