Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

„Ekki er þetta kirkjunni að neinu gagni“: Íslensk söngbókabrot úr kaþólskum sið

View through CrossRef
Fjölmörg brot hafa varðveist úr þeim kaþólsku messu- og tíðasöngsbókum sem notaðar voru á Íslandi fram til siðaskipta. Fram til þessa hefur ekkert heildar yfirlit verið til yfir íslensk skinnbókabrot með nótum og því örðugt að átta sig á því hversu mörg slík brot hafa varðveist og hvers eðlis þau eru. Megnið af umræddum brotum er varðveitt í þremur söfnum: Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í Reykjavík og Árnasafni í Kaupmannahöfn. Einnig eru nokkur brot á Þjóðskjalasafni Íslands og á Konungsbókhlöðum í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi, stök brot eru í Uppsölum og í Cambridge í Bandaríkjunum og að minnsta kosti tvö söngbókabrot með nótum eru enn í einkaeigu. Alls hafa varðveist um 320 brot úr söngbókum sem taldar eru hafa verið ritaðar á Íslandi eða að minnsta kosti verið eign íslenskra kirkna og virðast þau hafa tilheyrt að minnsta kosti 130–140 bókum. Í þessari grein er brugðið upp heildstæðri mynd af þeim íslensku söngbókabrotum sem varðveist hafa og varpað ljósi á nokkur brot sem ekki hefur áður verið fjallað um á prenti. Einkum er sjónum beint að brotum á Konungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn og Konunglega bókasafninu í Stokkhólmi þar sem allnokkur brot eru geymd sem hafa litla athygli hlotið fram til þessa. Bent er á nokkur handritabrot sem tilheyrðu upphaflega sömu söngbók, til dæmis Add. 1 4to á Konungsbókhlöðu og Accessoria 7/Hs 15 í Árnasafni í Kaupmannahöfn, sem hafa að geyma söng við jólamessur. Að lokum eru könnuð söngbókabrot með hendi Jóns Þorlákssonar en hann var afkastamikill nótnaritari á 15. öld og sá eini sem starfaði við slíkt á miðöldum sem unnt er að nafngreina.
The National and University Library of Iceland
Title: „Ekki er þetta kirkjunni að neinu gagni“: Íslensk söngbókabrot úr kaþólskum sið
Description:
Fjölmörg brot hafa varðveist úr þeim kaþólsku messu- og tíðasöngsbókum sem notaðar voru á Íslandi fram til siðaskipta.
Fram til þessa hefur ekkert heildar yfirlit verið til yfir íslensk skinnbókabrot með nótum og því örðugt að átta sig á því hversu mörg slík brot hafa varðveist og hvers eðlis þau eru.
Megnið af umræddum brotum er varðveitt í þremur söfnum: Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í Reykjavík og Árnasafni í Kaupmannahöfn.
Einnig eru nokkur brot á Þjóðskjalasafni Íslands og á Konungsbókhlöðum í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi, stök brot eru í Uppsölum og í Cambridge í Bandaríkjunum og að minnsta kosti tvö söngbókabrot með nótum eru enn í einkaeigu.
Alls hafa varðveist um 320 brot úr söngbókum sem taldar eru hafa verið ritaðar á Íslandi eða að minnsta kosti verið eign íslenskra kirkna og virðast þau hafa tilheyrt að minnsta kosti 130–140 bókum.
Í þessari grein er brugðið upp heildstæðri mynd af þeim íslensku söngbókabrotum sem varðveist hafa og varpað ljósi á nokkur brot sem ekki hefur áður verið fjallað um á prenti.
Einkum er sjónum beint að brotum á Konungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn og Konunglega bókasafninu í Stokkhólmi þar sem allnokkur brot eru geymd sem hafa litla athygli hlotið fram til þessa.
Bent er á nokkur handritabrot sem tilheyrðu upphaflega sömu söngbók, til dæmis Add.
1 4to á Konungsbókhlöðu og Accessoria 7/Hs 15 í Árnasafni í Kaupmannahöfn, sem hafa að geyma söng við jólamessur.
Að lokum eru könnuð söngbókabrot með hendi Jóns Þorlákssonar en hann var afkastamikill nótnaritari á 15.
öld og sá eini sem starfaði við slíkt á miðöldum sem unnt er að nafngreina.

Related Results

Áhrif EES-réttar á réttarfar
Áhrif EES-réttar á réttarfar
Útdráttur: EES-samningurinn kveður ekki á um samræmingu reglna á sviði réttarfars. Í samræmi við það hefur EFTA-dómstóllinn, líkt og Evrópudómstóllinn, byggt á því að EES-ríkin njó...
Vernd mannréttinda samkvæmt EES-samningnum
Vernd mannréttinda samkvæmt EES-samningnum
Í meginmáli EES-samningsins er ekki að finna nein fyrirmæli um vernd mannréttinda samkvæmt samningnum. Því féll það í hlut EFTA-dómstólsins að móta reglur þar að lútandi innan EFTA...
Foreldraútilokun, reynsla útsettra foreldra í Tyrklandi
Foreldraútilokun, reynsla útsettra foreldra í Tyrklandi
Markmið rannsóknarinnar var að kanna reynslu útsettra foreldra í Tyrklandi af þeim útilokandi aðferðum sem notaðar voru til að útiloka þá frá barni sínu. Rannsóknin kannaði einnig ...
Ættmæði og peysuperrar – athugun á innsendum orðum á Nýyrðavefnum
Ættmæði og peysuperrar – athugun á innsendum orðum á Nýyrðavefnum
Greinin fjallar um Nýyrðavef Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum sem er vettvangur þar sem notendur geta lagt fram ný orð sem þeir hafa tekið eftir í samfélaginu eða búið...
Upplifun barna af leikskóladvöl „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf“
Upplifun barna af leikskóladvöl „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf“
Klukkan mótar starfshætti í leikskólum og stýrir tíma barna í daglegu starfi. Áhrif tímans á leikskólastarf og skipulag þess eru töluverð og er upplifun barna á tíma ekki sú sama o...
Allavega alveg
Allavega alveg
Í greininni er fjallað frá ýmsum hliðum um orðið alveg sem er í hópi algengustu orða málsins. Það er þó frekar nýtt í málinu, elsta trausta dæmið um það er frá því um 1800. Á síðar...
Forveri forseta. Konungur Íslands 1904-1944
Forveri forseta. Konungur Íslands 1904-1944
Hér er fjallað um konungsvaldið í íslenskum málum á heimastjórnartíma (1904-1918) og tíma íslenska konungsríkisins - í raun aðeins til 1940 því að ríkisstjóri gegndi hlutverki konu...

Back to Top