Javascript must be enabled to continue!
Athugasemd við fyrirsögnina “Tveggja Postola Saga” í Postola sögum Ungers
View through CrossRef
Í útgáfu sinni á Postola sögum (Christiania 1874) setti hinn afkastamikli útgefandi íslenskra fornsagna, Norðmaðurinn Carl Richard Unger (1817 –1897), fjórar sams konar fyrirsagnir yfir jafnmörg pör forníslenskra þýðinga úr latínu af Apókrýfum postulasögum: tveggia postola saga petrs ok pals, tveggia postola saga jons ok jacobs, tveggia postola saga philippus og jacobs og tveggia postola saga simonis ok jude. Í inngangi sínum segir Unger að allar fyrirsagnir í útgáfunni sem prentaðar séu með hástöfum séu hans eigin til- búningur en skáletraðar fyrirsagnir og titlar komi úr handritunum sem textar útgáfunnar séu grundvallaðir á. Ofangreindar fyrirsagnir eru allar prentaðar með hástöfum í útgáfunni. Höfundur greinarinnar athugar nánar stöðu slíkra fyrir- sagna í útgáfunni og staðfestir að þær koma hvergi fyrir í handritum, eins og Unger bendir á, heldur eru búnar til gagngert fyrir þessa útgáfu og þá líklega með heiti messudagsins „Tveggja postola messa,“ hinn 1. maí, í huga en dagurinn var helgaður Pilippusi og Jacobi postulum. Enn fremur er almenn notkun þessara tilbúnu yfirskrifta Ungers meðal síðari fræðimanna rakin til Kristians Kålund (1844–1919), höfundar handritaskrárinnar Katalog over den Arnamagnæanske hånd- skriftsamling, sem án athugasemda tók upp fyrirsagnir Ungers og notaði þær í lýsingum sínum á innihaldi handrita.
Title: Athugasemd við fyrirsögnina “Tveggja Postola Saga” í Postola sögum Ungers
Description:
Í útgáfu sinni á Postola sögum (Christiania 1874) setti hinn afkastamikli útgefandi íslenskra fornsagna, Norðmaðurinn Carl Richard Unger (1817 –1897), fjórar sams konar fyrirsagnir yfir jafnmörg pör forníslenskra þýðinga úr latínu af Apókrýfum postulasögum: tveggia postola saga petrs ok pals, tveggia postola saga jons ok jacobs, tveggia postola saga philippus og jacobs og tveggia postola saga simonis ok jude.
Í inngangi sínum segir Unger að allar fyrirsagnir í útgáfunni sem prentaðar séu með hástöfum séu hans eigin til- búningur en skáletraðar fyrirsagnir og titlar komi úr handritunum sem textar útgáfunnar séu grundvallaðir á.
Ofangreindar fyrirsagnir eru allar prentaðar með hástöfum í útgáfunni.
Höfundur greinarinnar athugar nánar stöðu slíkra fyrir- sagna í útgáfunni og staðfestir að þær koma hvergi fyrir í handritum, eins og Unger bendir á, heldur eru búnar til gagngert fyrir þessa útgáfu og þá líklega með heiti messudagsins „Tveggja postola messa,“ hinn 1.
maí, í huga en dagurinn var helgaður Pilippusi og Jacobi postulum.
Enn fremur er almenn notkun þessara tilbúnu yfirskrifta Ungers meðal síðari fræðimanna rakin til Kristians Kålund (1844–1919), höfundar handritaskrárinnar Katalog over den Arnamagnæanske hånd- skriftsamling, sem án athugasemda tók upp fyrirsagnir Ungers og notaði þær í lýsingum sínum á innihaldi handrita.
Related Results
Contemporary Sagas (Bishops’ sagas and Sturlunga saga)
Contemporary Sagas (Bishops’ sagas and Sturlunga saga)
Contemporary sagas tell of people and events in Iceland in the twelfth and thirteenth centuries. They were written soon after the events they describe. The secular contemporary sag...
Eysteinn Tryggvason – minning (in memoriam)
Eysteinn Tryggvason – minning (in memoriam)
Eysteinn Tryggvason jarðeðlisfræðingur lést 11. janúar 2021, í hárri elli. Hann fæddist á Litlulaugum í Reykjadal 19. júlí 1924 og ólst þar upp í stórum systkinahópi. Foreldrar han...
Penelusuran Pustaka Potensi Tanaman Saga (Abrus precatorius .L) sebagai Antimikroba Patogen pada Sistem Pencernaan
Penelusuran Pustaka Potensi Tanaman Saga (Abrus precatorius .L) sebagai Antimikroba Patogen pada Sistem Pencernaan
Abstract. Digestive system disease is a disease that has a fairly high prevalence in Indonesia. The most common digestive system pathogens found are Salmonella typhi, Escherichia c...
Mellem Færeyinga saga og Sigmundarkvæðið eldra / Between Færeyinga saga and Sigmundarkvæði eldra
Mellem Færeyinga saga og Sigmundarkvæðið eldra / Between Færeyinga saga and Sigmundarkvæði eldra
ÚrtakTað føroyska Sigmundarkvæðið eldra varð yrkt í styttri ella longri tíð fyri 1673, tá ið Lucas Debes nevndi tað í sínari bók. Evnið var komið – ígjøgnum millumliðir – úr tí ísl...
Sköpunarsmiðjur í þremur grunnskólum: Þróunarverkefni á góðri siglingu
Sköpunarsmiðjur í þremur grunnskólum: Þróunarverkefni á góðri siglingu
Þrír grunnskólar austast og vestast í Reykjavík; Ingunnarskóli, Selásskóli og Vesturbæjarskóli, standa að þróunarstarfi um innleiðingu á sköpunarsmiðjum (e. makerspaces). Þar er ka...
The SAGA coactivator complex acts on the whole transcribed genome and is required for RNA polymerase II transcription
The SAGA coactivator complex acts on the whole transcribed genome and is required for RNA polymerase II transcription
The SAGA (Spt–Ada–Gcn5 acetyltransferase) coactivator complex contains distinct chromatin-modifying activities and is recruited by DNA-bound activators to regulate the expression o...
Traust og samvinna um skapandi skólastarf í opnu og sveigjanlegu námsumhverfi
Traust og samvinna um skapandi skólastarf í opnu og sveigjanlegu námsumhverfi
Greinin sem hér fer á eftir og rannsóknin sem þar er lýst beinast að viðburðaríkum starfsferli og um margt einstæðri reynslu Margrétar Einarsdóttur grunnskólakennara og skólastjóra...
Dámusta saga
La saga islandese di Dámusti, il Cavaliere della Vergine
Dámusta saga
La saga islandese di Dámusti, il Cavaliere della Vergine
Dámusta saga belongs to the genre of original riddarasögur, the chivalric literature of medieval Iceland. The saga was likely composed sometime in the late fourteenth century and i...

