Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

Gervi-Egill og vísur hans í Egils sögu

View through CrossRef
Þessi grein fjallar um eina lausavísu í 49. kafla Egils sögu. Egill kveður vísuna um sjóorrustu þar sem hann tekst á við þrjótinn Eyvind skreyju. Vísan sýnir nokkur merki þess að hafa verið kveðin af söguhöfundi frekar en af Agli sjálfum. Fyrst er vísan borin saman við aðrar heimildir um hinn dularfulla Eyvind skreyju, þar á meðal lausavísur eftir Eyvind skáldaspilli sem eru varðveittar í Fagurskinnu. Síðan er gerð grein fyrir tungumáli vísunnar, bragarhætti og stíl og borið saman við aðrar vísur í sögunni sem ætla má að séu ekki eftir Egil sjálfan heldur annað skáld sem kalla mætti Gervi-Egil. Í rannsókninni er bent á eiginleika sem eru dæmigerðir fyrir Gervi-Egil, til dæmis dálæti á orðinu ‘víkingur’ og endursköpun vísuorða úr öðrum kvæðum. Nærtækast er að Gervi-Egill sé höfundur sögunnar og í greininni er grennslast fyrir um vinnubrögð hans, þar á meðal heimildir hans og getu til að líkja eftir fornum kveðskap. Að lokum eru þessir eiginleikar metnir í ljósi þeirrar útbreiddu fræðitilgátu að höfundur Egils sögu og vísnanna hafi verið Snorri Sturluson.
The National and University Library of Iceland
Title: Gervi-Egill og vísur hans í Egils sögu
Description:
Þessi grein fjallar um eina lausavísu í 49.
kafla Egils sögu.
Egill kveður vísuna um sjóorrustu þar sem hann tekst á við þrjótinn Eyvind skreyju.
Vísan sýnir nokkur merki þess að hafa verið kveðin af söguhöfundi frekar en af Agli sjálfum.
Fyrst er vísan borin saman við aðrar heimildir um hinn dularfulla Eyvind skreyju, þar á meðal lausavísur eftir Eyvind skáldaspilli sem eru varðveittar í Fagurskinnu.
Síðan er gerð grein fyrir tungumáli vísunnar, bragarhætti og stíl og borið saman við aðrar vísur í sögunni sem ætla má að séu ekki eftir Egil sjálfan heldur annað skáld sem kalla mætti Gervi-Egil.
Í rannsókninni er bent á eiginleika sem eru dæmigerðir fyrir Gervi-Egil, til dæmis dálæti á orðinu ‘víkingur’ og endursköpun vísuorða úr öðrum kvæðum.
Nærtækast er að Gervi-Egill sé höfundur sögunnar og í greininni er grennslast fyrir um vinnubrögð hans, þar á meðal heimildir hans og getu til að líkja eftir fornum kveðskap.
Að lokum eru þessir eiginleikar metnir í ljósi þeirrar útbreiddu fræðitilgátu að höfundur Egils sögu og vísnanna hafi verið Snorri Sturluson.

Related Results

Urk. Barth 279
Urk. Barth 279
Hans Peter Schreiner and his wife Regina Certificate that they are being taken care of by the Heidelberg almsmen (Abraham Rollius, Marx Vesu [?] from the chancellery, Johann Gorg L...
Poesía y economía en la Saga de Egill
Poesía y economía en la Saga de Egill
This paper analyses the relationship between poetry and economics in Egils saga Skalla-Grímssonar, a long narrative work in prosimetrum form composed in Iceland during the first ha...
Clever Hans
Clever Hans
Hans’s mother asks: ‘Where you off to, Hans?’ Hans answers: ‘To Gretel’s.’ ‘Behave yourself, Hans.’ ‘I will. ’Bye, mother.’ ‘ ’Bye, Hans.’ Hans goes to Gretel’s. ‘Go...
Clever Hans
Clever Hans
Hans’s mother asks: ‘Where you off to, Hans?’ Hans answers: ‘To Gretel’s.’ ‘Behave yourself, Hans.’ ‘I will. ’Bye, mother.’ ‘ ’Bye, Hans.’ Hans goes to Gretel’s. ‘Go...
Hans Scharoun y la ciudad orgánica: otra mirada al fenómeno urbano moderno
Hans Scharoun y la ciudad orgánica: otra mirada al fenómeno urbano moderno
(English) German architect Hans Scharoun's (1893-1972) body of work (written, drawn and constructed) pays careful attention to the urban phenomenon of the modern city. One of the a...
Hans-Peter Schultze, a great paleoichthyologist for whom work is synonymous with enjoyment
Hans-Peter Schultze, a great paleoichthyologist for whom work is synonymous with enjoyment
In the summer of 1982, Hans-Peter Schultze and Gloria Arratia were invited to a small museum located on a fossiliferous site of the Devonian Escuminac Formation in Miguasha, Quebec...
Veiled Menace: Word-Play ( Ofljóst ) in a Stanza by Egill Skallagrímsson
Veiled Menace: Word-Play ( Ofljóst ) in a Stanza by Egill Skallagrímsson
Les trois poèmes improvisés que compose Egill Skallagrímsson au manoir royal sur l’île d’Atley dans la présence du roi Eiríkr, de sa reine Gunnhildr et de leur gérant Bárðr réalise...

Back to Top