Javascript must be enabled to continue!
Í átt til rauðra heimsbókmennta: Um þýðingar og mótun hefðarveldis innan róttæku vinstrihreyfingunnar á Íslandi 1919–1943
View through CrossRef
Greinin hefur að geyma kortlagningu á umfangsmikilli þýðingaútgáfu róttæku vinstrihreyfingarinnar á tímabilinu 1919–1943 og varpar ljósi á þá markvissu uppbyggingu á nýju hefðarveldi rauðra heimsbókmennta sem þar á sér stað. Sjónum er beint að tengslum við starfsemi Kominterns og dreifingu róttæks lesefnis á erlendum málum og útgáfan hér á landi könnuð sem angi af alþjóðlegri útgáfustarfsemi vinstrihreyfingarinnar á þeim tíma þegar unnið er að uppbyggingu nýs alþjóðasinnaðs bókmenntakerfis á heimsvísu. Greiningin snýr annars vegar að þýðingum í íslenskum tímaritum, þar sem horft er jöfnum höndum til Réttar, Rauða fánans og Rauðra penna, sem komu út á vegum vinstrihreyfingarinnar, og þýddum bókmenntaverkum alþjóðasinna í menningartímaritum eins og Iðunni, Eimreiðinni og Dvöl. Hins vegar er fjallað um útgáfu þýðinga á bókarformi, bæði á vegum forlaga sem tilheyrðu róttæku vinstrihreyfingunni og annarra forlaga. Kortlagningin bregður upp mynd af þeim margbrotnu fjölþjóðlegu straumum sem berast inn í íslenskt bókmenntakerfi með þýðingum á alþjóðasinnuðu lesefni á tímabilinu. Á meðal þeirra verka sem tekin eru til umfjöllunar eru textar eftir Maksím Gorkij, Martin Andersen Nexø, Upton Sinclair og aðra höfunda sem gegndu veigamiklu hlutverki í íslensku bókmenntalífi á tímabilinu, en einnig vettvangsfrásagnir og aðrar smærri bókmenntagreinar og verk höfunda á borð við Jack London og B. Traven, sem hér eru tengd við hefð rauðra svaðilfarasagna.
Title: Í átt til rauðra heimsbókmennta: Um þýðingar og mótun hefðarveldis innan róttæku vinstrihreyfingunnar á Íslandi 1919–1943
Description:
Greinin hefur að geyma kortlagningu á umfangsmikilli þýðingaútgáfu róttæku vinstrihreyfingarinnar á tímabilinu 1919–1943 og varpar ljósi á þá markvissu uppbyggingu á nýju hefðarveldi rauðra heimsbókmennta sem þar á sér stað.
Sjónum er beint að tengslum við starfsemi Kominterns og dreifingu róttæks lesefnis á erlendum málum og útgáfan hér á landi könnuð sem angi af alþjóðlegri útgáfustarfsemi vinstrihreyfingarinnar á þeim tíma þegar unnið er að uppbyggingu nýs alþjóðasinnaðs bókmenntakerfis á heimsvísu.
Greiningin snýr annars vegar að þýðingum í íslenskum tímaritum, þar sem horft er jöfnum höndum til Réttar, Rauða fánans og Rauðra penna, sem komu út á vegum vinstrihreyfingarinnar, og þýddum bókmenntaverkum alþjóðasinna í menningartímaritum eins og Iðunni, Eimreiðinni og Dvöl.
Hins vegar er fjallað um útgáfu þýðinga á bókarformi, bæði á vegum forlaga sem tilheyrðu róttæku vinstrihreyfingunni og annarra forlaga.
Kortlagningin bregður upp mynd af þeim margbrotnu fjölþjóðlegu straumum sem berast inn í íslenskt bókmenntakerfi með þýðingum á alþjóðasinnuðu lesefni á tímabilinu.
Á meðal þeirra verka sem tekin eru til umfjöllunar eru textar eftir Maksím Gorkij, Martin Andersen Nexø, Upton Sinclair og aðra höfunda sem gegndu veigamiklu hlutverki í íslensku bókmenntalífi á tímabilinu, en einnig vettvangsfrásagnir og aðrar smærri bókmenntagreinar og verk höfunda á borð við Jack London og B.
Traven, sem hér eru tengd við hefð rauðra svaðilfarasagna.
Related Results
Hjá héraðslækni á Íslandi eftir mislukkaða heimsreisu: Albert Daudistel, alþjóðasinnaðar bókmenntir og útlegðin á Íslandi
Hjá héraðslækni á Íslandi eftir mislukkaða heimsreisu: Albert Daudistel, alþjóðasinnaðar bókmenntir og útlegðin á Íslandi
Greinin fjallar um verk þýska byltingarsinnans og öreigahöfundarins Alberts Daudistel og lýsir tengslum þeirra við tvær tegundir rauðra heimsbókmennta frá upphafi þriðja áratugarin...
Hur mår HBTIQ-unga i Finland?
Hur mår HBTIQ-unga i Finland?
Under våren 2013 kartlades välmående bland unga HBTIQ-personer i Finland (HBTIQ står för homosexuell, bisexuell, transperson, interkönad och queer) i en omfattande nätenkät. Unders...
Mat, miljö och hållbarhet : hur påverkar den mat vi svenskar äter planeten?
Mat, miljö och hållbarhet : hur påverkar den mat vi svenskar äter planeten?
Denna rapport sammanfattar det vetenskapliga kunskapsläget när det gäller ämnet en hållbar kost och hållbar matkonsumtion. En hållbar kost kan definieras som en kost som främjar in...
Smarta applikationer för behovsstyrd skötsel av träd
Smarta applikationer för behovsstyrd skötsel av träd
Skötseln av våra städer blir alltmer central allteftersom städerna växer och klimatet förändras. Existerande, samt planerade, grönytor, parker och trädplanteringar bör därför förva...
Varhaiskasvatuksen opettajaopintoihin ja varhaiskasvatusalaan sitoutuminen
Varhaiskasvatuksen opettajaopintoihin ja varhaiskasvatusalaan sitoutuminen
Tämä raportti esittelee Opetus- ja kulttuuriministeriön rahoittaman ja Jyväskylän yliopiston toteuttaman Varhaiskasvatuksen opettajaopintoihin ja varhaiskasvatusalaan sitoutuminen ...
Möjliga tillämpningar av nya genomiska tekniker inom integrerat växtskydd
Möjliga tillämpningar av nya genomiska tekniker inom integrerat växtskydd
Det pågår en omställning av jord- och trädgårdsbruket, både med hänsyn till hållbar produktion och pågående klimatförändringar. Som en del av EUs arbete att utveckla lantbruket mot...
Ledarskap för lärande
Ledarskap för lärande
Ledarskap för lärande handlar om det som är lärares viktigaste uppdrag, nämligen att leda undervisning, det vill säga det didaktiska ledarskapet (se Samuelsson et al., 2020. Didakt...

