Javascript must be enabled to continue!
Hjá héraðslækni á Íslandi eftir mislukkaða heimsreisu: Albert Daudistel, alþjóðasinnaðar bókmenntir og útlegðin á Íslandi
View through CrossRef
Greinin fjallar um verk þýska byltingarsinnans og öreigahöfundarins Alberts Daudistel og lýsir tengslum þeirra við tvær tegundir rauðra heimsbókmennta frá upphafi þriðja áratugarins til loka þess fimmta. Hún kannar með hvaða hætti Daudistel, sem hafði tekið virkan þátt í þýsku nóvemberbyltingunni árið 1918 og gegnt pólitísku hlutverki á tíma ráðstjórnarlýðveldisins í Bæjaralandi vorið 1919, var fulltrúi þeirrar fyrri tegundar rauðra heimsbókmennta sem tók á sig mynd á þriðja áratugnum. Greinin dregur fram tengsl Daudistels við mikilvægar stofnanir þessa sérstæða bókmenntavettvangs og lykilaðila innan hans. Einnig varpar hún ljósi á hvernig Daudistel tengdist myndun nýs hefðarveldis byltingarsinnaðra bókmennta á þessu tímabili. Enn fremur er kannað, með hliðsjón af söguþræði og frásagnarbyggingu, að hvaða marki sumir texta höfundarins eru lýsandi dæmi um lykilhugmyndir þessarar fyrri tegundar rauðra heimsbókmennta, þ.á m. hugmyndina um misgengi byltingarþróunar og verkalýðsmenningar í ólíkum heimshlutum, sem síður var litið á sem veikleika en mögulegan styrk. Með greiningu á ævisögulegum heimildum og tveimur síðari textum, smásögunni „Beim Distriktarzt auf Island“ og óútgefnu skáldsögunni Die Insel des fremden Königs, er loks kannað með hvaða hætti Daudistel hélt fast í hugmyndir þessarar fyrri tegundar byltingarsinnaðra bókmennta í útlegð sinni á Íslandi, en miðlaði einnig meginhugmyndum síðari tegundar rauðra heimsbókmennta, sem kalla mætti „alþjóðasinnaðar samfylkingarbókmenntir“. Hér svipar stöðu hans að mörgu leyti til stöðu Egons Erwins Kisch sem var lykilhöfundur á samfylkingartímabilinu en hélt þó áfram að skrifa texta sem voru frekar í anda hugmynda um margbrotna alþjóðlega verkalýðsmenningu, sem rekja má til alþjóðasinnaðra bókmennta þriðja áratugarins.
Title: Hjá héraðslækni á Íslandi eftir mislukkaða heimsreisu: Albert Daudistel, alþjóðasinnaðar bókmenntir og útlegðin á Íslandi
Description:
Greinin fjallar um verk þýska byltingarsinnans og öreigahöfundarins Alberts Daudistel og lýsir tengslum þeirra við tvær tegundir rauðra heimsbókmennta frá upphafi þriðja áratugarins til loka þess fimmta.
Hún kannar með hvaða hætti Daudistel, sem hafði tekið virkan þátt í þýsku nóvemberbyltingunni árið 1918 og gegnt pólitísku hlutverki á tíma ráðstjórnarlýðveldisins í Bæjaralandi vorið 1919, var fulltrúi þeirrar fyrri tegundar rauðra heimsbókmennta sem tók á sig mynd á þriðja áratugnum.
Greinin dregur fram tengsl Daudistels við mikilvægar stofnanir þessa sérstæða bókmenntavettvangs og lykilaðila innan hans.
Einnig varpar hún ljósi á hvernig Daudistel tengdist myndun nýs hefðarveldis byltingarsinnaðra bókmennta á þessu tímabili.
Enn fremur er kannað, með hliðsjón af söguþræði og frásagnarbyggingu, að hvaða marki sumir texta höfundarins eru lýsandi dæmi um lykilhugmyndir þessarar fyrri tegundar rauðra heimsbókmennta, þ.
á m.
hugmyndina um misgengi byltingarþróunar og verkalýðsmenningar í ólíkum heimshlutum, sem síður var litið á sem veikleika en mögulegan styrk.
Með greiningu á ævisögulegum heimildum og tveimur síðari textum, smásögunni „Beim Distriktarzt auf Island“ og óútgefnu skáldsögunni Die Insel des fremden Königs, er loks kannað með hvaða hætti Daudistel hélt fast í hugmyndir þessarar fyrri tegundar byltingarsinnaðra bókmennta í útlegð sinni á Íslandi, en miðlaði einnig meginhugmyndum síðari tegundar rauðra heimsbókmennta, sem kalla mætti „alþjóðasinnaðar samfylkingarbókmenntir“.
Hér svipar stöðu hans að mörgu leyti til stöðu Egons Erwins Kisch sem var lykilhöfundur á samfylkingartímabilinu en hélt þó áfram að skrifa texta sem voru frekar í anda hugmynda um margbrotna alþjóðlega verkalýðsmenningu, sem rekja má til alþjóðasinnaðra bókmennta þriðja áratugarins.
Related Results
Kampen for succès d’estime og salgssucces William Heinesens publicerede romaner i 1930’erne / The battle for succès d'estime and sales success William Heinesens published novels in the 1930s
Kampen for succès d’estime og salgssucces William Heinesens publicerede romaner i 1930’erne / The battle for succès d'estime and sales success William Heinesens published novels in the 1930s
Abstract: The article throws new light on the Danish writing Faroese author William Heinesen’s long struggle for succes in his novelistic writing and for financial independence wit...
Ósýnileiki barna sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi í fylgd foreldra
Ósýnileiki barna sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi í fylgd foreldra
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) áætlar að á árinu 2017 hafi um 68,5 milljónir einstaklinga verið á flótta, þar af sé rúmlega helmingur börn (UNHCR, 2018). Umsækjandi ...
Jöfnuður og sanngjörn skattlagning
Jöfnuður og sanngjörn skattlagning
Því er stundum haldið fram að skattabreytingar síðustu sextán ára hafi aukið ójöfnuð á Íslandi, ekki síst lágur fjármagnstekjuskattur. En það er misskilningur að fjármagnstekjuskat...
Zum Hirnbau und Verhalten des Pilotwals, Globicephala melaena
Zum Hirnbau und Verhalten des Pilotwals, Globicephala melaena
Burtur úr ethologiskum eygleiðingum, í hyljum við sjógvi í, er komið upp, at grindahvalurin, Globicephala melaena, er sera vitugur og næmur. Anatomiskar kanningar av heilanum hjá g...
Dagleg einkunnagjöf í íslenskum skólum
Dagleg einkunnagjöf í íslenskum skólum
Greinin fylgir eftir rannsókn Lofts Guttormssonar (2007) á svonefndum „daglegum einkunnagjöfum“ í íslenskum barnaskólum, sérstaklega í Reykjavík, áratugina kringum 1900. Samsvarand...
ALBERT-QM: An ALBERT Based Method for Chinese Health Related Question Matching (Preprint)
ALBERT-QM: An ALBERT Based Method for Chinese Health Related Question Matching (Preprint)
BACKGROUND
Question answering (QA) system is widely used in web-based health-care applications. Health consumers likely asked similar questions in various n...
„Nicht das Ende der Welt“
„Nicht das Ende der Welt“
“This is not the end of the world, far from it [..]. Ísafjördur in northwestern Iceland is not the end [...].” These words are spoken by one of the characters in a novel by vagabon...

