Javascript must be enabled to continue!
Sköpunar- og tæknismiðjur í þremur grunnskólum: Framkvæmd og kennslufræði fyrstu skrefin
View through CrossRef
Samtíminn er fullur af móthverfum sem fela í sér ógnir og tækifæri, álitamál og áskoranir. Nútímasamfélag kallar á skólastarf, þar sem nemendur eru virkir og skapandi þátttakendur, færir um að móta eigið nám. Þessi rannsókn segir frá fyrsta ári af þremur í þróunarverkefni þriggja grunnskóla í Reykjavík um sköpunar- og tæknismiðjur (e. makerspaces). Hún á að auka skilning á hvað þarf til að nýsköpun og hönnun í anda sköpunarsmiðja skjóti rótum í starfi grunnskóla og á hvaða uppeldis- og kennslufræði þar er byggt. Leitast er við að greina hvað helst einkenndi og hafði áhrif á innleiðingu tæknilausna, nemendavinnu og kennsluhátta í þeim anda. Byggt er á eigindlegri nálgun og reynt að fá innsýn í reynslu fólks, viðhorf og hugsun í verkefninu. Rannsóknargögn samanstanda af vettvangsathugunum, viðtölum við skólastjórnendur, verkefnisstjóra og teymi kennara í skólunum þremur, auk styrkumsóknar, upplýsingavefs og síðu Facebook- -hóps. Lýst er hvernig margir þættir spila saman og takast á við framgang verkefnisins ásamt tilraunum kennara á þeim grunni. Ekki síst er athygli beint að hugmyndum um kennslu og eflandi kennslufræði sem þar birtast eða búa að baki. Viðhorf og stuðningur skólastjórnenda, starf verkefnisstjóranna, viðhorf, reynsla og færni kennara, skilningur á verkefninu og mikilvægi þess, skipulag stundaskrár, samtal og samstaða eru þættir sem virðast skipta máli í innleiðingunni en einnig sérstaða einstakra skóla auk hefðar fyrir þemanámi þvert á greinasvið, teymiskennslu og skapandi starfi. Mörg uppbyggileg skref voru stigin á þessu fyrsta ári sem þarf að fylgja eftir með virku samtali og samvirkni þessara þátta.
The National and University Library of Iceland
Title: Sköpunar- og tæknismiðjur í þremur grunnskólum: Framkvæmd og kennslufræði fyrstu skrefin
Description:
Samtíminn er fullur af móthverfum sem fela í sér ógnir og tækifæri, álitamál og áskoranir.
Nútímasamfélag kallar á skólastarf, þar sem nemendur eru virkir og skapandi þátttakendur, færir um að móta eigið nám.
Þessi rannsókn segir frá fyrsta ári af þremur í þróunarverkefni þriggja grunnskóla í Reykjavík um sköpunar- og tæknismiðjur (e.
makerspaces).
Hún á að auka skilning á hvað þarf til að nýsköpun og hönnun í anda sköpunarsmiðja skjóti rótum í starfi grunnskóla og á hvaða uppeldis- og kennslufræði þar er byggt.
Leitast er við að greina hvað helst einkenndi og hafði áhrif á innleiðingu tæknilausna, nemendavinnu og kennsluhátta í þeim anda.
Byggt er á eigindlegri nálgun og reynt að fá innsýn í reynslu fólks, viðhorf og hugsun í verkefninu.
Rannsóknargögn samanstanda af vettvangsathugunum, viðtölum við skólastjórnendur, verkefnisstjóra og teymi kennara í skólunum þremur, auk styrkumsóknar, upplýsingavefs og síðu Facebook- -hóps.
Lýst er hvernig margir þættir spila saman og takast á við framgang verkefnisins ásamt tilraunum kennara á þeim grunni.
Ekki síst er athygli beint að hugmyndum um kennslu og eflandi kennslufræði sem þar birtast eða búa að baki.
Viðhorf og stuðningur skólastjórnenda, starf verkefnisstjóranna, viðhorf, reynsla og færni kennara, skilningur á verkefninu og mikilvægi þess, skipulag stundaskrár, samtal og samstaða eru þættir sem virðast skipta máli í innleiðingunni en einnig sérstaða einstakra skóla auk hefðar fyrir þemanámi þvert á greinasvið, teymiskennslu og skapandi starfi.
Mörg uppbyggileg skref voru stigin á þessu fyrsta ári sem þarf að fylgja eftir með virku samtali og samvirkni þessara þátta.
Related Results
Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
Árið 2016 tók Ísland á móti hópi sýrlenskra kvótaflóttamanna í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Í þessari eigindlegu rannsókn er upplifun hluta þessa hóps, kenn...
Fagleg forysta eða stjórnun í erli dagsins: Hlutverk og staða aðstoðarskólastjóra í grunnskólum Reykjavíkur
Fagleg forysta eða stjórnun í erli dagsins: Hlutverk og staða aðstoðarskólastjóra í grunnskólum Reykjavíkur
Niðurstöður rannsókna á erlendum vettvangi sýna að hlutverk aðstoðarskólastjóra í stjórnun og forystu skóla verður umfangsmeira eftir því sem kröfur um árangur nemenda aukast og sk...
Sköpunarsmiðjur í þremur grunnskólum: Þróunarverkefni á góðri siglingu
Sköpunarsmiðjur í þremur grunnskólum: Þróunarverkefni á góðri siglingu
Þrír grunnskólar austast og vestast í Reykjavík; Ingunnarskóli, Selásskóli og Vesturbæjarskóli, standa að þróunarstarfi um innleiðingu á sköpunarsmiðjum (e. makerspaces). Þar er ka...
Draumaskólinn
Draumaskólinn
Virk þátttaka barna í samfélagi er ein leið til farsældar þeirra og því er það helsta verkefni menntakerfisins að tryggja öllum börnum hlutdeild í samfélagi jafnaldra. Greinin fjal...
Forveri forseta. Konungur Íslands 1904-1944
Forveri forseta. Konungur Íslands 1904-1944
Hér er fjallað um konungsvaldið í íslenskum málum á heimastjórnartíma (1904-1918) og tíma íslenska konungsríkisins - í raun aðeins til 1940 því að ríkisstjóri gegndi hlutverki konu...
„Handan við lífið bíður ekkert, ekkert“: Um birtingarmyndir dauðans og trúarinnar í ljóðheimi Hannesar Péturssonar
„Handan við lífið bíður ekkert, ekkert“: Um birtingarmyndir dauðans og trúarinnar í ljóðheimi Hannesar Péturssonar
Hannes Pétursson hefur verið meðal merkustu samtímahöfunda þjóðarinnar allt frá því hann sendi frá sér fyrstu bók sína 1955. Því er mikilvægt að fjallað sé um ljóðlist hans út frá ...

