Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

Sköpunarsmiðjur í þremur grunnskólum: Þróunarverkefni á góðri siglingu

View through CrossRef
Þrír grunnskólar austast og vestast í Reykjavík; Ingunnarskóli, Selásskóli og Vesturbæjarskóli, standa að þróunarstarfi um innleiðingu á sköpunarsmiðjum (e. makerspaces). Þar er kallað eftir atbeina nemenda og lögð áhersla á sköpun. Stefnt er að bættu námsumhverfi, aukinni samvinnu, sjálfstæði nemenda, skapandi efnistökum við lausn verkefna, tækninotkun og samþættingu námsgreina. Kennarar hafa komið saman í menntabúðum til að kynna sér efnivið, tæki, hugbúnað og kennsluhugmyndir og gert ýmsar tilraunir tengdar smiðjustarfi í sinni kennslu. Reykjavíkurborg hefur stutt verkefnið og við rannsakendur við Háskóla Íslands lagt verkefninu lið. Nýleg rannsóknargrein (Svanborg R. Jónsdóttir o.fl., 2021) endurspeglar upphafið, byggt á viðtölum við stjórnendur og rýnihópa kennara en hér segir frá könnun á viðhorfi kennara til verkefnisins á miðri leið. Alls 22 spurningar voru í febrúar 2021 settar upp á vef og 75 af 80 kennurum skólanna þriggja brugðust við þeim. Flestir sögðust hafa góðan skilning á verkefninu, sáu í því tækifæri og töldu það mikilvægt fyrir nám og hæfni nemenda. Fjórir af hverjum fimm sögðust hafa prófað sumt sem kynnt hafði verið í menntabúðum og margir höfðu aukið áherslu á sköpun og tækni í sinni kennslu. Þá þótti verkefninu vel stýrt. Ekki voru allir jafn áhugasamir og sumir kennaranna töldu sig þurfa aukinn tíma eða ráðgjöf. Nokkur munur var á viðhorfum eftir skólum og gæti hann ráðist af skapandi starfi sem fyrir var, stöðu tæknivæðingar, aldursspönn og sóttvörnum við einstaka skóla. Hér verður í inngangsköflum gerð grein fyrir félagslegri vistfræðisýn á kennsluhætti og í ályktunum um niðurstöður stuðst við hana. Dregið er fram hvernig þættir í nærkerfi, grenndarkerfi, ytra kerfi og lýðkerfi skólanna þriggja gætu haft áhrif á þróunarstarfið. Um frekari athuganir okkar á síðari stigum verður fjallað síðar enda viljum við greina sem best hvernig finna megi sköpunarsmiðjum farveg í starfi íslenskra grunnskóla.
Title: Sköpunarsmiðjur í þremur grunnskólum: Þróunarverkefni á góðri siglingu
Description:
Þrír grunnskólar austast og vestast í Reykjavík; Ingunnarskóli, Selásskóli og Vesturbæjarskóli, standa að þróunarstarfi um innleiðingu á sköpunarsmiðjum (e.
makerspaces).
Þar er kallað eftir atbeina nemenda og lögð áhersla á sköpun.
Stefnt er að bættu námsumhverfi, aukinni samvinnu, sjálfstæði nemenda, skapandi efnistökum við lausn verkefna, tækninotkun og samþættingu námsgreina.
Kennarar hafa komið saman í menntabúðum til að kynna sér efnivið, tæki, hugbúnað og kennsluhugmyndir og gert ýmsar tilraunir tengdar smiðjustarfi í sinni kennslu.
Reykjavíkurborg hefur stutt verkefnið og við rannsakendur við Háskóla Íslands lagt verkefninu lið.
Nýleg rannsóknargrein (Svanborg R.
Jónsdóttir o.
fl.
, 2021) endurspeglar upphafið, byggt á viðtölum við stjórnendur og rýnihópa kennara en hér segir frá könnun á viðhorfi kennara til verkefnisins á miðri leið.
Alls 22 spurningar voru í febrúar 2021 settar upp á vef og 75 af 80 kennurum skólanna þriggja brugðust við þeim.
Flestir sögðust hafa góðan skilning á verkefninu, sáu í því tækifæri og töldu það mikilvægt fyrir nám og hæfni nemenda.
Fjórir af hverjum fimm sögðust hafa prófað sumt sem kynnt hafði verið í menntabúðum og margir höfðu aukið áherslu á sköpun og tækni í sinni kennslu.
Þá þótti verkefninu vel stýrt.
Ekki voru allir jafn áhugasamir og sumir kennaranna töldu sig þurfa aukinn tíma eða ráðgjöf.
Nokkur munur var á viðhorfum eftir skólum og gæti hann ráðist af skapandi starfi sem fyrir var, stöðu tæknivæðingar, aldursspönn og sóttvörnum við einstaka skóla.
Hér verður í inngangsköflum gerð grein fyrir félagslegri vistfræðisýn á kennsluhætti og í ályktunum um niðurstöður stuðst við hana.
Dregið er fram hvernig þættir í nærkerfi, grenndarkerfi, ytra kerfi og lýðkerfi skólanna þriggja gætu haft áhrif á þróunarstarfið.
Um frekari athuganir okkar á síðari stigum verður fjallað síðar enda viljum við greina sem best hvernig finna megi sköpunarsmiðjum farveg í starfi íslenskra grunnskóla.

Related Results

Sköpunar- og tæknismiðjur í þremur grunnskólum: Framkvæmd og kennslufræði fyrstu skrefin
Sköpunar- og tæknismiðjur í þremur grunnskólum: Framkvæmd og kennslufræði fyrstu skrefin
Samtíminn er fullur af móthverfum sem fela í sér ógnir og tækifæri, álitamál og áskoranir. Nútímasamfélag kallar á skólastarf, þar sem nemendur eru virkir og skapandi þátttakendur,...
Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
Árið 2016 tók Ísland á móti hópi sýrlenskra kvótaflóttamanna í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Í þessari eigindlegu rannsókn er upplifun hluta þessa hóps, kenn...
Fagleg forysta eða stjórnun í erli dagsins: Hlutverk og staða aðstoðarskólastjóra í grunnskólum Reykjavíkur
Fagleg forysta eða stjórnun í erli dagsins: Hlutverk og staða aðstoðarskólastjóra í grunnskólum Reykjavíkur
Niðurstöður rannsókna á erlendum vettvangi sýna að hlutverk aðstoðarskólastjóra í stjórnun og forystu skóla verður umfangsmeira eftir því sem kröfur um árangur nemenda aukast og sk...
Draumaskólinn
Draumaskólinn
Virk þátttaka barna í samfélagi er ein leið til farsældar þeirra og því er það helsta verkefni menntakerfisins að tryggja öllum börnum hlutdeild í samfélagi jafnaldra. Greinin fjal...

Back to Top