Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

Fagleg forysta eða stjórnun í erli dagsins: Hlutverk og staða aðstoðarskólastjóra í grunnskólum Reykjavíkur

View through CrossRef
Niðurstöður rannsókna á erlendum vettvangi sýna að hlutverk aðstoðarskólastjóra í stjórnun og forystu skóla verður umfangsmeira eftir því sem kröfur um árangur nemenda aukast og skólastarf verður flóknara. Einnig sýna rannsóknir að hlutverk aðstoðarskólastjóra í grunnskólum getur verið mjög margþætt og brotakennt. Greinin fjallar um reynslu aðstoðarskólastjóra af hlutverki sínu og stöðu þegar kemur að stjórnun og forystu, og er byggð á viðtölum við átta aðstoðarskólastjóra sem valdir voru af handahófi úr hópi aðstoðarskólastjóra í grunnskólum Reykjavíkur. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að aðstoðarskólastjórar í Reykjavík sjá sjálfa sig sem stjórnendur skóla fremur en faglega leiðtoga, enda fer mestur tími þeirra í daglega stjórnun skólans, svo sem að leysa úr forföllum starfsfólks og koma að úrlausnum ýmissa mála er snúa að nemendum og starfsfólki. Aðstoðarskólastjórarnir vildu gjarnan geta sinnt faglegri forystu í meiri mæli en þeir gera, en þeir upplifa að í erli dagsins gefist þeim fá tækifæri til slíkrar forystu. Niðurstöðurnar vekja upp áleitnar spurningar um starfsumhverfi aðstoðarskólastjóra, stöðu þeirra og óskýrt hlutverk.
Title: Fagleg forysta eða stjórnun í erli dagsins: Hlutverk og staða aðstoðarskólastjóra í grunnskólum Reykjavíkur
Description:
Niðurstöður rannsókna á erlendum vettvangi sýna að hlutverk aðstoðarskólastjóra í stjórnun og forystu skóla verður umfangsmeira eftir því sem kröfur um árangur nemenda aukast og skólastarf verður flóknara.
Einnig sýna rannsóknir að hlutverk aðstoðarskólastjóra í grunnskólum getur verið mjög margþætt og brotakennt.
Greinin fjallar um reynslu aðstoðarskólastjóra af hlutverki sínu og stöðu þegar kemur að stjórnun og forystu, og er byggð á viðtölum við átta aðstoðarskólastjóra sem valdir voru af handahófi úr hópi aðstoðarskólastjóra í grunnskólum Reykjavíkur.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að aðstoðarskólastjórar í Reykjavík sjá sjálfa sig sem stjórnendur skóla fremur en faglega leiðtoga, enda fer mestur tími þeirra í daglega stjórnun skólans, svo sem að leysa úr forföllum starfsfólks og koma að úrlausnum ýmissa mála er snúa að nemendum og starfsfólki.
Aðstoðarskólastjórarnir vildu gjarnan geta sinnt faglegri forystu í meiri mæli en þeir gera, en þeir upplifa að í erli dagsins gefist þeim fá tækifæri til slíkrar forystu.
Niðurstöðurnar vekja upp áleitnar spurningar um starfsumhverfi aðstoðarskólastjóra, stöðu þeirra og óskýrt hlutverk.

Related Results

Hvaða augum líta börn leikskólakennara? Hlutverk og miðlun gilda í leikskólum
Hvaða augum líta börn leikskólakennara? Hlutverk og miðlun gilda í leikskólum
Greinin byggir á tveimur rannsóknum þar sem leitað var eftir hugmyndum barna um hlutverk og ábyrgð leikskólakennara. Þannig var reynt að skilja þau ómeðvituðu og meðvituðu gildi se...
Sératkvæði dómara
Sératkvæði dómara
Í fjölskipuðum dómi má gera ráð fyrir því að dómarar séu ekki alltaf á einu máli um niðurstöðu eða rökstuðning fyrir henni. Í íslenskri réttarfarslöggjöf er almennt gert ráð fyrir ...
Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
Sýrlenskir nemendur í íslenskum grunnskólum: Upplifun nemenda, foreldra og kennara
Árið 2016 tók Ísland á móti hópi sýrlenskra kvótaflóttamanna í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Í þessari eigindlegu rannsókn er upplifun hluta þessa hóps, kenn...
Öryggishlutverk lögreglu
Öryggishlutverk lögreglu
grein þessari er fjallað um öryggishlutverk lögreglu samkvæmt a-lið 2. mgr. 1. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 frá sjónarhóli lögregluréttar. Fjallað er um hlutverk lögreglu almennt o...
Sköpunarsmiðjur í þremur grunnskólum: Þróunarverkefni á góðri siglingu
Sköpunarsmiðjur í þremur grunnskólum: Þróunarverkefni á góðri siglingu
Þrír grunnskólar austast og vestast í Reykjavík; Ingunnarskóli, Selásskóli og Vesturbæjarskóli, standa að þróunarstarfi um innleiðingu á sköpunarsmiðjum (e. makerspaces). Þar er ka...
Sköpunar- og tæknismiðjur í þremur grunnskólum: Framkvæmd og kennslufræði fyrstu skrefin
Sköpunar- og tæknismiðjur í þremur grunnskólum: Framkvæmd og kennslufræði fyrstu skrefin
Samtíminn er fullur af móthverfum sem fela í sér ógnir og tækifæri, álitamál og áskoranir. Nútímasamfélag kallar á skólastarf, þar sem nemendur eru virkir og skapandi þátttakendur,...
Thomas Piketty: Capital in the Twenty-First Century (Le Capital au XXIe siècle). (Ensk þýðing: Arthur Goldhammer).
Thomas Piketty: Capital in the Twenty-First Century (Le Capital au XXIe siècle). (Ensk þýðing: Arthur Goldhammer).
Í umsögn gagnrýnanda kemur meðal annars eftirfarandi fram: Ritinu er ekki ætlað að vera lokaorðin um viðfangsefnið heldur miklu frekar grunnur að frekari umræðu og rannsóknum. Það ...
Antony Beevor [þýðandi Jón Þ. Þór]: Fall Berlínar 1945. [Á frummálinu: Berlin the Downfall 1945.]
Antony Beevor [þýðandi Jón Þ. Þór]: Fall Berlínar 1945. [Á frummálinu: Berlin the Downfall 1945.]
Ófáar bækur og bíómyndir hafa verið gerðar um síðari heimstyrjöldina. Flestar hafa fjallað um hlut bandamanna í styrjöldinni og hvernig þeim tókst að þrauka í gegnum árásir Þjóðver...

Back to Top