Javascript must be enabled to continue!
Foreldraútilokun, reynsla útsettra foreldra í Tyrklandi
View through CrossRef
Markmið rannsóknarinnar var að kanna reynslu útsettra foreldra í Tyrklandi af þeim útilokandi aðferðum sem notaðar voru til að útiloka þá frá barni sínu. Rannsóknin kannaði einnig skoðanir útsettra foreldra á þeirri þjónustu sem þeir fengu hjá fagaðilum innan geðheilbrigðisþjónustu og hjá lögfræðingum meðan á aðskilnaði fjölskyldunnar stóð. Áttatíu og fjórir útsettir foreldrar tóku þátt í og luku við netkönnun. Könnunin fólst í spurningum varðandi félags- og lýðfræðilegar upplýsingar, spurningum varðandi reynslu útsettra foreldra sem rannsakendur sjálfir mótuðu og spurningum um 13 útilokandi aðferðir sem lýst hefur verið í fræðunum. Meirihluti þátttakenda voru karlkyns (94%) og meðalaldur þeirra var 42 ár. Þátttakendur greindu frá því að hafa sætt margvíslegum aðferðum útilokunar og næstum helmingur þeirra hafði ekki hitt barnið sitt, þrátt fyrir að dómsúrskurður um umgengni lægi fyrir. Helmingi þátttakenda hafði verið vísað til fagaðila innan geðheilbrigðisþjónustu meðan á skilnaðarferlinu stóð og flestir voru þessir þátttakendur þeirrar skoðunar að fagaðilarnir hefðu ekki nægilega þekkingu á foreldraútilokun. Að sama skapi var skoðun flestra þátttakenda sú að þeir lögfræðingar sem þeir áttu í samskiptum við, hafi ekki haft nægilega þekkingu á foreldraútilokun. Þátttakendur sögðust einnig hafa upplifað vonleysi, örvæntingu, einmanaleika, kvíða og ekki getað notið lífsins. Þessar niðurstöður eru í samræmi við rannsóknir gerðar á þátttakendum frá öðrum löndum.
The National and University Library of Iceland
Title: Foreldraútilokun, reynsla útsettra foreldra í Tyrklandi
Description:
Markmið rannsóknarinnar var að kanna reynslu útsettra foreldra í Tyrklandi af þeim útilokandi aðferðum sem notaðar voru til að útiloka þá frá barni sínu.
Rannsóknin kannaði einnig skoðanir útsettra foreldra á þeirri þjónustu sem þeir fengu hjá fagaðilum innan geðheilbrigðisþjónustu og hjá lögfræðingum meðan á aðskilnaði fjölskyldunnar stóð.
Áttatíu og fjórir útsettir foreldrar tóku þátt í og luku við netkönnun.
Könnunin fólst í spurningum varðandi félags- og lýðfræðilegar upplýsingar, spurningum varðandi reynslu útsettra foreldra sem rannsakendur sjálfir mótuðu og spurningum um 13 útilokandi aðferðir sem lýst hefur verið í fræðunum.
Meirihluti þátttakenda voru karlkyns (94%) og meðalaldur þeirra var 42 ár.
Þátttakendur greindu frá því að hafa sætt margvíslegum aðferðum útilokunar og næstum helmingur þeirra hafði ekki hitt barnið sitt, þrátt fyrir að dómsúrskurður um umgengni lægi fyrir.
Helmingi þátttakenda hafði verið vísað til fagaðila innan geðheilbrigðisþjónustu meðan á skilnaðarferlinu stóð og flestir voru þessir þátttakendur þeirrar skoðunar að fagaðilarnir hefðu ekki nægilega þekkingu á foreldraútilokun.
Að sama skapi var skoðun flestra þátttakenda sú að þeir lögfræðingar sem þeir áttu í samskiptum við, hafi ekki haft nægilega þekkingu á foreldraútilokun.
Þátttakendur sögðust einnig hafa upplifað vonleysi, örvæntingu, einmanaleika, kvíða og ekki getað notið lífsins.
Þessar niðurstöður eru í samræmi við rannsóknir gerðar á þátttakendum frá öðrum löndum.
Related Results
Foreldraútilokun: Vitundarvakning á rannsóknarsviðinu
Foreldraútilokun: Vitundarvakning á rannsóknarsviðinu
Foreldraútilokun er lítt þekkt og misskilin birtingarmynd heimilisofbeldis. Rannsóknir á foreldraútilokun og þeirri hegðun sem veldur henni byggja á lagalegri og klínískri skráning...
Jöfnuður og sanngjörn skattlagning
Jöfnuður og sanngjörn skattlagning
Því er stundum haldið fram að skattabreytingar síðustu sextán ára hafi aukið ójöfnuð á Íslandi, ekki síst lágur fjármagnstekjuskattur. En það er misskilningur að fjármagnstekjuskat...

