Javascript must be enabled to continue!
Ekki eins og það á að vera. Merking syndahugtaksins í kristinni trúarhefð fyrr og nú
View through CrossRef
Í greininni verður rakin sagan af þróun syndahugtaksins í kristinni trúarhefð, með áherslu á hugmyndir sem tengjast siðbótarmanninum Marteini Lúther og guðfræðinga sem byggðu á siðbótarhugmyndum hans. Það sem einkennir helst hugmyndir Lúthers er sá greinarmunur sem hann gerði á syndahugtakinu í eintölu og fleirtölu, þar sem eintalan vísar til ástands og fleirtalan til verka sem eru afleiðinginar hins synduga ástands. Sá guðfræðingur fornkirkjunnar sem hafði mest áhrif á Lúther var Ágústínus biskup í Hippó, en í svari sínu til Erasmusar frá Rotterdam byggði Lúther á kenningum Ágústínusar um erfðasyndina og ánauð viljans. Í kjölfar upplýsingarinnar var farið að efast um að viðteknar hugmyndir um syndina stæðust skoðun en gagnrýnin beindist einkum að hugmyndinni um erfðasyndina.
Á 20. öld komu fram ferskar hugmyndir um syndina hjá guðfræðingum sem meðal annars voru undir sterkum áhrifum frá tilvistarheimspekinni. Milli 1960 og 1970 urðu kaflaskil í kristinni trúarhefð með tilkomu guðfræðinga sem kölluðu eftir róttækri endurskoðun á guðfræðikenningum liðinna alda í ljósi sögulegra aðstæðna, þar með talið túlkun syndahugtaksins. Í lok greinarinnar verður sjónum beint að túlkun tveggja guðfræðinga sem fjalla um merkingu og hlutverk syndarinnar í samhengi kristinnar trúar í upphafi 21. aldar, út frá sjónarhorni femínískrar og hinsegin (e. queer) guðfræði.
Title: Ekki eins og það á að vera. Merking syndahugtaksins í kristinni trúarhefð fyrr og nú
Description:
Í greininni verður rakin sagan af þróun syndahugtaksins í kristinni trúarhefð, með áherslu á hugmyndir sem tengjast siðbótarmanninum Marteini Lúther og guðfræðinga sem byggðu á siðbótarhugmyndum hans.
Það sem einkennir helst hugmyndir Lúthers er sá greinarmunur sem hann gerði á syndahugtakinu í eintölu og fleirtölu, þar sem eintalan vísar til ástands og fleirtalan til verka sem eru afleiðinginar hins synduga ástands.
Sá guðfræðingur fornkirkjunnar sem hafði mest áhrif á Lúther var Ágústínus biskup í Hippó, en í svari sínu til Erasmusar frá Rotterdam byggði Lúther á kenningum Ágústínusar um erfðasyndina og ánauð viljans.
Í kjölfar upplýsingarinnar var farið að efast um að viðteknar hugmyndir um syndina stæðust skoðun en gagnrýnin beindist einkum að hugmyndinni um erfðasyndina.
Á 20.
öld komu fram ferskar hugmyndir um syndina hjá guðfræðingum sem meðal annars voru undir sterkum áhrifum frá tilvistarheimspekinni.
Milli 1960 og 1970 urðu kaflaskil í kristinni trúarhefð með tilkomu guðfræðinga sem kölluðu eftir róttækri endurskoðun á guðfræðikenningum liðinna alda í ljósi sögulegra aðstæðna, þar með talið túlkun syndahugtaksins.
Í lok greinarinnar verður sjónum beint að túlkun tveggja guðfræðinga sem fjalla um merkingu og hlutverk syndarinnar í samhengi kristinnar trúar í upphafi 21.
aldar, út frá sjónarhorni femínískrar og hinsegin (e.
queer) guðfræði.
Related Results
Áhrif EES-réttar á réttarfar
Áhrif EES-réttar á réttarfar
Útdráttur:
EES-samningurinn kveður ekki á um samræmingu reglna á sviði réttarfars. Í samræmi við það hefur EFTA-dómstóllinn, líkt og Evrópudómstóllinn, byggt á því að EES-ríkin njó...
Pierre Bourdieu (höfundur); Davíð Kristinsson (ritstjóri, ritar inngang); Björn Þorsteinsson, Egill Arnarson og Gunnar Harðarson (þýðendur): Almenningsálitið er ekki til
Pierre Bourdieu (höfundur); Davíð Kristinsson (ritstjóri, ritar inngang); Björn Þorsteinsson, Egill Arnarson og Gunnar Harðarson (þýðendur): Almenningsálitið er ekki til
Ég hlakkaði til að lesa þetta kver eftir Bourdieu, enda hef ég rannsakað lýðræði, kosningar og almenningsálit í þrjátíu ár og kennt námskeið um efnið. Hafði auk þess heyrt ýmsa tal...
Listin að spyrja
Listin að spyrja
Dr. Jón Torfi Jónasson hefur bent á að menntaumræða hafi á síðustu áratugum ekki fjallað um það sem hún ætti að fjalla um, sem séu grundvallarspurningar um eðli menntunar, hlutverk...
Forveri forseta. Konungur Íslands 1904-1944
Forveri forseta. Konungur Íslands 1904-1944
Hér er fjallað um konungsvaldið í íslenskum málum á heimastjórnartíma (1904-1918) og tíma íslenska konungsríkisins - í raun aðeins til 1940 því að ríkisstjóri gegndi hlutverki konu...
Ekki seinna en núna! Ákall um loftslagsréttlæti og tafarlausar aðgerðir
Ekki seinna en núna! Ákall um loftslagsréttlæti og tafarlausar aðgerðir
Í þessari grein er kastljósinu beint að ábyrgð mannfólksins á hlýnandi loftslagi og þeim afleiðingum sem breytt veðurfar hefur þegar haft í för með sér, og mun hafa á næstu árum, h...
Vernd mannréttinda samkvæmt EES-samningnum
Vernd mannréttinda samkvæmt EES-samningnum
Í meginmáli EES-samningsins er ekki að finna nein fyrirmæli um vernd mannréttinda samkvæmt samningnum. Því féll það í hlut EFTA-dómstólsins að móta reglur þar að lútandi innan EFTA...
Jöfnuður og sanngjörn skattlagning
Jöfnuður og sanngjörn skattlagning
Því er stundum haldið fram að skattabreytingar síðustu sextán ára hafi aukið ójöfnuð á Íslandi, ekki síst lágur fjármagnstekjuskattur. En það er misskilningur að fjármagnstekjuskat...
Allavega alveg
Allavega alveg
Í greininni er fjallað frá ýmsum hliðum um orðið alveg sem er í hópi algengustu orða málsins. Það er þó frekar nýtt í málinu, elsta trausta dæmið um það er frá því um 1800. Á síðar...

