Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

Myndaþáttur eftir Kristin Ingvarsson

View through CrossRef
Íslenskt samfélag tók hröðum breytingum eftir að fyrsta tilfelli Covid-19 greindist á landinu í lok febrúar 2020. Rúmum tveimur vikum síðar var fyrsta samkomubannið sett á þar sem miðað var við að ekki kæmu fleiri saman en hundrað manns. Ekki leið vika þangað til að reglur voru hertar enn frekar og fjöldatakmarkanir settar við 20 manns. Tveimur dögum síðar, þann 24. mars, hóf Kristinn Ingvarsson ljósmyndari að fanga nýjan veruleika með hjálp myndavélarinnar. Við birtum hér myndaþátt úr smiðju Kristins sem sýnir einangrunina í faraldrinum; hvernig nýjar reglugerðir og ótti við smit urðu til þess að fólk hélt sig til hlés, umferð farartækja um götur borgarinnar dvínaði og mannaferðir á vinnustöðum, eins og Háskóla Íslands, urðu fátíðar. Ljósmyndirnar vitna auk þess um fjarlægðartakmarkanir, grímunotkun og einsemd, en ljósmyndarinn gaf sér töluna einn sem útgangspunkt verkefnisins, enda vorum við öll ein í einhverjum skilningi orðsins. Myndirnar sem hér birtast eru einnig heimild um nýja hversdagstilveru á farsóttartímum.
The National and University Library of Iceland
Title: Myndaþáttur eftir Kristin Ingvarsson
Description:
Íslenskt samfélag tók hröðum breytingum eftir að fyrsta tilfelli Covid-19 greindist á landinu í lok febrúar 2020.
Rúmum tveimur vikum síðar var fyrsta samkomubannið sett á þar sem miðað var við að ekki kæmu fleiri saman en hundrað manns.
Ekki leið vika þangað til að reglur voru hertar enn frekar og fjöldatakmarkanir settar við 20 manns.
Tveimur dögum síðar, þann 24.
mars, hóf Kristinn Ingvarsson ljósmyndari að fanga nýjan veruleika með hjálp myndavélarinnar.
Við birtum hér myndaþátt úr smiðju Kristins sem sýnir einangrunina í faraldrinum; hvernig nýjar reglugerðir og ótti við smit urðu til þess að fólk hélt sig til hlés, umferð farartækja um götur borgarinnar dvínaði og mannaferðir á vinnustöðum, eins og Háskóla Íslands, urðu fátíðar.
Ljósmyndirnar vitna auk þess um fjarlægðartakmarkanir, grímunotkun og einsemd, en ljósmyndarinn gaf sér töluna einn sem útgangspunkt verkefnisins, enda vorum við öll ein í einhverjum skilningi orðsins.
Myndirnar sem hér birtast eru einnig heimild um nýja hversdagstilveru á farsóttartímum.

Related Results

Gervi-Egill og vísur hans í Egils sögu
Gervi-Egill og vísur hans í Egils sögu
Þessi grein fjallar um eina lausavísu í 49. kafla Egils sögu. Egill kveður vísuna um sjóorrustu þar sem hann tekst á við þrjótinn Eyvind skreyju. Vísan sýnir nokkur merki þess að h...
Forveri forseta. Konungur Íslands 1904-1944
Forveri forseta. Konungur Íslands 1904-1944
Hér er fjallað um konungsvaldið í íslenskum málum á heimastjórnartíma (1904-1918) og tíma íslenska konungsríkisins - í raun aðeins til 1940 því að ríkisstjóri gegndi hlutverki konu...
Analisis Kostum Tokoh Julie Dan Kristin Pada Naskah “Miss Julie” Karya August Strindberg
Analisis Kostum Tokoh Julie Dan Kristin Pada Naskah “Miss Julie” Karya August Strindberg
Analisis karya ini didasarkan pada pendekatan practice-led research  dilakukan melalui studi praktik studio perancangan busana untuk tokoh Julie dan Kristin pada naskah “Miss Julie...
Madness in music
Madness in music
Name: May Kristin Svanholm Hegvold Main Subject: Early Music Singing Research Supervisor: Inês de Avena Braga Title of Research: Madness in music Research Question: How can one...
Ütopya Arzusunda Bir Distopya: Berci Kristin Çöp Masalları
Ütopya Arzusunda Bir Distopya: Berci Kristin Çöp Masalları
Türk edebiyatının önemli yazarlarından olan Latife Tekin’in Berci Kristin Çöp Masalları (1984)adlı eseri, esere konu olan mekânda, Çiçektepe’nin insanlarının yaşadığı inşa ve yıkı...
Drilling Fluids in an HP/HT Reservoir: Experiences With Three Different Systems on the Kristin Field Development
Drilling Fluids in an HP/HT Reservoir: Experiences With Three Different Systems on the Kristin Field Development
Abstract Kristin is a HP/HT field developed on Haltenbanken offshore mid-Norway. The Kristin development consists of 4 templates with a total of 12 subsea wells. The...

Back to Top