Javascript must be enabled to continue!
Riftun verksamninga
View through CrossRef
Í greininni er fjallað um riftun verksamninga um mannvirkjaframkvæmdir. Umfjöllun og greining hverfist einkum um ákvæði ÍST 30 en til samanburðar og þar sem upp á vantar er einnig horft til settra laga, sem og sambærilegra samningsskilmála í norskum og dönskum rétti. Fyrst er fjallað stuttlega með almennum hætti um riftun og því næst um helstu réttarheimildir sem gilda um verksamninga auk þess sem skyldum aðila eru gerð skil. Þá er vikið að þeirri meginreglu að veruleg vanefndsé skilyrði riftunar og rakin þau viðmið sem koma helst til álita við mat á því hvort skilyrðinu sé fullnægt. Þá er gerð grein fyrir tilteknum tilvikum sem eiga það sammerkt að heimila riftun án þess að skilyrðinu um verulega vanefnd sé fullnægt á tímamarki riftunar. Því næst er fjallað um heimild annars vegar verkkaupa og hins vegar verktaka til þess að rifta verksamningi með hliðsjón af helstu vanefndum sem réttlætt geta beitingu úrræðisins. Þá er fjallað um framkvæmd riftunar, m.a. áskilnað um skriflega viðvörun, tilkynningu um riftun, riftunarúttekt og kröfugerð verktaka í kjölfar riftunar. Enn fremur eru réttaráhrifum riftunar gerð skil. Að endingu eru helstu niðurstöður dregnar saman auk þess sem fjallað er um að hvaða leyti breytinga sé þörf á ÍST 30.
Kröfuréttur. Verktakaréttur. Verksamningur. Riftun.
The National and University Library of Iceland
Title: Riftun verksamninga
Description:
Í greininni er fjallað um riftun verksamninga um mannvirkjaframkvæmdir.
Umfjöllun og greining hverfist einkum um ákvæði ÍST 30 en til samanburðar og þar sem upp á vantar er einnig horft til settra laga, sem og sambærilegra samningsskilmála í norskum og dönskum rétti.
Fyrst er fjallað stuttlega með almennum hætti um riftun og því næst um helstu réttarheimildir sem gilda um verksamninga auk þess sem skyldum aðila eru gerð skil.
Þá er vikið að þeirri meginreglu að veruleg vanefndsé skilyrði riftunar og rakin þau viðmið sem koma helst til álita við mat á því hvort skilyrðinu sé fullnægt.
Þá er gerð grein fyrir tilteknum tilvikum sem eiga það sammerkt að heimila riftun án þess að skilyrðinu um verulega vanefnd sé fullnægt á tímamarki riftunar.
Því næst er fjallað um heimild annars vegar verkkaupa og hins vegar verktaka til þess að rifta verksamningi með hliðsjón af helstu vanefndum sem réttlætt geta beitingu úrræðisins.
Þá er fjallað um framkvæmd riftunar, m.
a.
áskilnað um skriflega viðvörun, tilkynningu um riftun, riftunarúttekt og kröfugerð verktaka í kjölfar riftunar.
Enn fremur eru réttaráhrifum riftunar gerð skil.
Að endingu eru helstu niðurstöður dregnar saman auk þess sem fjallað er um að hvaða leyti breytinga sé þörf á ÍST 30.
Kröfuréttur.
Verktakaréttur.
Verksamningur.
Riftun.

