Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

Foreldraútilokun: Vitundarvakning á rannsóknarsviðinu

View through CrossRef
Foreldraútilokun er lítt þekkt og misskilin birtingarmynd heimilisofbeldis. Rannsóknir á foreldraútilokun og þeirri hegðun sem veldur henni byggja á lagalegri og klínískri skráningu síðustu áratuga, en skráningarnar hafa leitt til vaxtar eða vitundarvakningar á þessu sviði. Rannsakendur eru sammála um hvaða hegðun megi flokka sem foreldraútilokun og hvernig hún hefur áhrif á börn og fjölskylduna í heild. Í þessari grein förum við yfir fræðin og gefum nákvæma lýsingu á foreldraútilokun, hvernig hún er ólík öðrum samskiptavanda foreldra og barns, á borð við fráhvarf (e. estrangement) og hollustutogstreitu (e. loyalty conflict), og hvernig slíkri hegðun er viðhaldið milli mismunandi félagskerfa. Að lokum bendum við á hvaða svið þurfi frekari rannsókna við, þróunar eða prófana, svo hægt sé að draga úr þeim skaðlegu áhrifum sem foreldraútilokun getur haft. Hún er nefnilega ekki aðeins ofbeldi gagnvart barninu, heldur einnig birtingarmynd heimilisofbeldis sem beinist bæði að barninu og útilokaða foreldrinu.
The National and University Library of Iceland
Title: Foreldraútilokun: Vitundarvakning á rannsóknarsviðinu
Description:
Foreldraútilokun er lítt þekkt og misskilin birtingarmynd heimilisofbeldis.
Rannsóknir á foreldraútilokun og þeirri hegðun sem veldur henni byggja á lagalegri og klínískri skráningu síðustu áratuga, en skráningarnar hafa leitt til vaxtar eða vitundarvakningar á þessu sviði.
Rannsakendur eru sammála um hvaða hegðun megi flokka sem foreldraútilokun og hvernig hún hefur áhrif á börn og fjölskylduna í heild.
Í þessari grein förum við yfir fræðin og gefum nákvæma lýsingu á foreldraútilokun, hvernig hún er ólík öðrum samskiptavanda foreldra og barns, á borð við fráhvarf (e.
estrangement) og hollustutogstreitu (e.
loyalty conflict), og hvernig slíkri hegðun er viðhaldið milli mismunandi félagskerfa.
Að lokum bendum við á hvaða svið þurfi frekari rannsókna við, þróunar eða prófana, svo hægt sé að draga úr þeim skaðlegu áhrifum sem foreldraútilokun getur haft.
Hún er nefnilega ekki aðeins ofbeldi gagnvart barninu, heldur einnig birtingarmynd heimilisofbeldis sem beinist bæði að barninu og útilokaða foreldrinu.

Related Results

Foreldraútilokun, reynsla útsettra foreldra í Tyrklandi
Foreldraútilokun, reynsla útsettra foreldra í Tyrklandi
Markmið rannsóknarinnar var að kanna reynslu útsettra foreldra í Tyrklandi af þeim útilokandi aðferðum sem notaðar voru til að útiloka þá frá barni sínu. Rannsóknin kannaði einnig ...

Back to Top