Search engine for discovering works of Art, research articles, and books related to Art and Culture
ShareThis
Javascript must be enabled to continue!

Skáldskapurinn er leið til að lifa af

View through CrossRef
Það að segja sögur hefur alltaf verið ein af leiðum mannskepnunnar til að takast á við lífið, vinna úr tilfinningum og tengjast öðru fólki. Frásögukvæði eru þar á meðal. Ný rannsókn á sagnadönsum rennir stoðum undir þá kenningu að þeir tengist konum sterkum böndum; umfjöllunarefni þeirra er gjarnan samskipti karla og kvenna og í mörgum þeirra er ofbeldi sem karlar beita konur áberandi. Þeim kvæðum lyktar þó oft með því að konurnar hefna og hljóta ekki refsingu fyrir. Annars staðar koma tilfinningar og sjónarhorn kvenna sem þurfa að yfirgefa börn sín skýrt í ljós. Sögusamúð kvæðanna er því augljóslega kvennanna megin. Lagarammi samfélagsins á þeim tíma sem kvæðin voru helst skrifuð upp var strangur og refsingar fyrir svokölluð siðferðisbrot mjög harðar, jafnvel dauðarefsing. Freistandi er að líta á flutning sagnadansanna sem eins konar kaþarsis eða hreinsandi afl fyrir konur sem höfðu jafnvel þurft að sæta ofbeldi, í samfélagi þar sem sönnunarskylda í kynferðisbrotamálum var mjög þung.
The National and University Library of Iceland
Title: Skáldskapurinn er leið til að lifa af
Description:
Það að segja sögur hefur alltaf verið ein af leiðum mannskepnunnar til að takast á við lífið, vinna úr tilfinningum og tengjast öðru fólki.
Frásögukvæði eru þar á meðal.
Ný rannsókn á sagnadönsum rennir stoðum undir þá kenningu að þeir tengist konum sterkum böndum; umfjöllunarefni þeirra er gjarnan samskipti karla og kvenna og í mörgum þeirra er ofbeldi sem karlar beita konur áberandi.
Þeim kvæðum lyktar þó oft með því að konurnar hefna og hljóta ekki refsingu fyrir.
Annars staðar koma tilfinningar og sjónarhorn kvenna sem þurfa að yfirgefa börn sín skýrt í ljós.
Sögusamúð kvæðanna er því augljóslega kvennanna megin.
Lagarammi samfélagsins á þeim tíma sem kvæðin voru helst skrifuð upp var strangur og refsingar fyrir svokölluð siðferðisbrot mjög harðar, jafnvel dauðarefsing.
Freistandi er að líta á flutning sagnadansanna sem eins konar kaþarsis eða hreinsandi afl fyrir konur sem höfðu jafnvel þurft að sæta ofbeldi, í samfélagi þar sem sönnunarskylda í kynferðisbrotamálum var mjög þung.

Related Results

Að lifa með ólýsanlegri örmögnun
Að lifa með ólýsanlegri örmögnun
Þótt þreyta sé daglegur hluti lífsins þá er það oft hlutskipti langveiks fólks að lifa með meiri þreytu; ólýsanlegri örmögnun og orkuskerðingu. Á síðustu árum hefur komið betur og ...
Analisis Sistem Informasi Penjualan kacamata pada Optik Lifa di Kabupaten Sumenep
Analisis Sistem Informasi Penjualan kacamata pada Optik Lifa di Kabupaten Sumenep
 Optik Lifa merupakan usaha yang mengkhususkan dalam menjual kacamata. Sistem informasi penjualan yang sedang berjalan saat ini masih bersifat manual sehingga masih banyak kendala-...
„Ég elska flæðið, minna stress, minna um árekstra“
„Ég elska flæðið, minna stress, minna um árekstra“
Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á hvernig innleiðing flæðis í leikskólastarf getur stutt við samskipti barna og meðvitund starfsfólks um eigið hlutverk. Auk þess var sjó...
Álitamál tengd innleiðingu hæfnimiðaðs námsmats í skyldunámi
Álitamál tengd innleiðingu hæfnimiðaðs námsmats í skyldunámi
Rannsóknastofa um námskrár, námsmat og námsskipulag stóð fyrir tveimur málþingum um námskrár og námsmat á vordögum 2019. Gestur fyrra málþingsins var hollenski námskrárfræðingurinn...
Krefjandi lífsreynsla og flókin sorg: Að lifa af sjálfsvíg dóttur eða sonar
Krefjandi lífsreynsla og flókin sorg: Að lifa af sjálfsvíg dóttur eða sonar
Tilgangur Sjálfsvíg eru alþjóðlegt heilbrigðisvandamál og fjórða algengasta dánarorsökin í aldurshópnum 15–29 ára. Reynsla foreldra af því að missa son eða dóttur í sjálfsvígi hefu...
Myndaþáttur eftir Kristin Ingvarsson
Myndaþáttur eftir Kristin Ingvarsson
Íslenskt samfélag tók hröðum breytingum eftir að fyrsta tilfelli Covid-19 greindist á landinu í lok febrúar 2020. Rúmum tveimur vikum síðar var fyrsta samkomubannið sett á þar sem ...
Ákall um nýjan alheimssáttmála. Guð, maður og náttúra í vistguðfræðilegum skrifum Rosemary Radford Ruether
Ákall um nýjan alheimssáttmála. Guð, maður og náttúra í vistguðfræðilegum skrifum Rosemary Radford Ruether
Í þessari grein er sjónum beint að femínískri vistguðfræði Rosemary Radford Ruether (1936 –2022). Litið er svo á að Ruether setji fram nýjan sáttmála milli Guðs, mannkyns og náttúr...
Hafsteinn Þór Hauksson Skúli Magnússon: Kaflar í réttarheimspeki
Hafsteinn Þór Hauksson Skúli Magnússon: Kaflar í réttarheimspeki
Í umsögn gagnrýnenda kemur meðal annars eftirfarandi fram: Um stutt verk er að ræða og gefur auga leið að ekki er hægt að fjalla um alla þá kennismiði og flokka, sem venjulega fá u...

Back to Top